Fréttablaðið - 04.10.2004, Qupperneq 6
6 4. október 2004 MÁNUDAGUR
Hækkandi tíðni brjóstakrabbameins:
Október helgað-
ur baráttunni
HEILBRIGÐISMÁL Nú, fimmta árið í
röð, mun Krabbameinsfélagið
helga októbermánuði baráttunni
gegn brjóstakrabbameini með
fræðslu og hvatningu til kvenna
að nýta sér boð Leitarstöðvar
Krabbameinsfélagsins um rönt-
genmyndatöku. Tíðni brjósta-
krabbameins á Íslandi og fjöldi
nýrra tilfella hefur aukist ár frá
ári, mest hjá konum á aldrinum 30
til 60 ára.
Ár hvert greinast um 170 ís-
lenskar konur með þennan vágest
og samkvæmt útreikningum frá
Krabbameinsskránni fær tíunda
hver kona brjóstakrabbamein ein-
hvern tímann ævinnar. Lífshorfur
kvenna sem greinast með krabba-
mein í brjóstum hafa batnað á síð-
ustu fjórum áratugum eða um 30
prósent. Það þýðir að 80 prósent
geta vænst þess að lifa í fimm ár
eða lengur eftir greiningu sjúk-
dómsins. Í dag eru á lífi rúmlega
1700 íslenskar konur sem fengið
hafa brjóstakrabbamein.
Í tilefni átaksins verður Ráð-
húsið í Reykjavík lýst upp í bleik-
um lit dagana 3. til 7. október og
einnig verða sett bleik ljós í stau-
ra umhverfis Tjörnina. Bleik lýs-
ing verður einnig sýnileg annars
staðar á landinu í byrjun október
og með hliðstæðum hætti verða
lýst upp tvö hundruð mannvirki í
fjörtíu löndum í tilefni átaksins;
meðal annars Empire State í New
York, Niagara-fossarnir og versl-
unin Harrods í Lundúnum. ■
Sharon vill fjölga
hermönnum
Forsætisráðherra Ísraels ætlar ekki að draga herlið sitt til baka frá
norðurhluta Gaza-svæðisins. Sjö Palestínumenn létust í átökum
við Ísraelsher í gær.
JERÚSALEM,AP Ísraelsher heldur
áfram að drepa Palestínumenn á
Gaza í aðgerðum sem Ariel Sharon,
forsætisráðherra Ísraels, segir
vera til að stemma stigu við eld-
flaugaárásum Palestínumanna.
Ariel Sharon segist ætla að fjöl-
ga hermönnum Ísraels á norður-
hluta Gaza-svæðisins og kveðst
ekki munu draga herliðið til baka
fyrr en búið sé að „tryggja öryggi“
ísraelskra landnemabyggða.
Áhlaup Ísraelshers hófst fyrir
sex dögum eftir eldflaugaárás í
Sderot sem varð tveimur ísraelsk-
um börnum að bana. Síðan þá hafa
tveir ísraelskir hermenn fallið og
einn óbreyttur borgari. Yfir 60
Palestínumenn, þar á meðal
óbreyttur almenningur, hafa verið
drepnir í áhlaupum Ísraelshers.
Ráðamenn í Ísrael telja að sókn
hersins á Gaza-svæðinu verði til
þess að auðveldara verði fyrir her-
inn að draga sig alveg til baka, á
næsta ári. „Núverandi ástand getur
ekki haldið lengur áfram,“ sagði
Sharon. „Við verðum að færa okk-
ur á fleiri svæði til að koma í veg
fyrir að eldflaugarnar lendi á ísra-
elskum bæjum. Herinn þarf að
vera þarna meðan hættan er til
staðar,“ bætti hann við. Aðgerðir
Ísraelshers eru þær umfangs-
mestu á svæðinu í fjögur ár.
Alls eru 2.000 ísraelskir her-
menn staðsettir á norðurhluta Gaza
til að taka þátt í aðgerðunum nú.
Að minnsta kosti sjö Palestínu-
menn, þar á meðal 13 ára drengur,
létust í gær. Að auki lést annar 13
ára drengur af sárum sem hann
hafði hlotið í árásum Ísraelshers.
Palestínumenn á svæðinu, sem eru
um fimmtán þúsund talsins, eru
reiðir hermönnum Ísraela og segja
þá hafa eyðilagt heimili, vegi og
leikskóla í innrás sinni. Jafnframt
hafa íbúarnir verið án vatns og raf-
magns í marga daga auk þess að
hafa ekki komist á sjúkrahús eða
fengið afhent lyf. ■
GRÍMUKLÆDD MEÐ BLÓM
Kiki Kreofski frá Oregon-fylki heldur á hvítu
blómi með grímu fyrir andlitinu. Í bak-
grunni er eldfjallið Sankti-Helena. Þó svo
að ekkert öskufall hafi orðið enn frá fjall-
inu fannst Kiki öruggara að vera með grí-
muna á sér.
Eldfjallið St. Helena:
Aukin
skjálftavirkni
WASHINGTON, AP Bandarískir vís-
indamenn greindu aukna skálfta-
virkni í eldfjallinu Sankti-Helenu
í Washingtonríki í gærmorgun,
aðeins nokkrum klukkustundum
eftir að hundruð ferðamanna var
gert að yfirgefa nærliggjandi
svæði af ótta við eldgos.
Titringurinn stóð yfir í 25 mín-
útur og var nokkuð mildari en sá
sem kom upp á laugardaginn eftir
að gufustrókur hafði komið upp
úr fjallinu.
Vísindamenn telja að væntan-
legt eldgos í Sankti-Helenu verði
ekki eins kröftugt og það sem
varð árið 1980. Þá fórust 57
manns auk þess sem mikið ösku-
fall varð. Skjálftavirkni í fjallinu
hefur staðið yfir frá því 23. sept-
ember. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað safnaðist mikið í landssöfnun-inni Gengið til góðs?
2Hvað búast forystumenn stjórnarand-stöðunnar við miklu tapi á ríkissjóði?
3Hvað heitir franski leikstjórinn semætlaði að flytja inn fíla til Íslands?
Svörin eru á bls. 30
Villibráðarveisla
8. og 9. október 2004
Veislustjóri:
Ómar Ragnarsson
Fjögurra rétta villibráðarmatseðill
framreiddur af
matreiðslumeisturum Hótel Arkar.
Verð 5.100,- krónur
(9.400,- krónur með gistingu. Á mann í tvíbýli.)
Villibráðarveisla og jólahlaðborð
á Hótel Örk
Hafðu samband í síma 483 4700, info@hotel-ork.is,
www.hotel-ork.is Útvegum bíla fyrir hópa, stóra sem smáa.
Munið okkar frábæru árshátíðakjör.
Jólahlaðborð,
að hætti Eika
19. 20. 26. og 27. nóvember
03. 04. 10. og 11. desember
Veislustjóri:
Flosi Ólafsson
Drekkhlaðin veisluborðin svigna
undan gómsætum kræsingum úr
smiðju matreiðslumeistara Hótel
Arkar.
Verð: 4.490,- krónur
( með gistingu krónur 8.790,- á mann í tvíbýli).
Föstudagstilboð: 3.990,- krónur
( með gistingu krónur 7.990,- á mann í tvíbýli).
BRÆÐURNIR ORMSSON
Fyrirtækið, sem að mestu hefur verið í
eigu sömu fjölskyldu frá árinu 1921, hefur
nú verið selt.
Bræðurnir Ormsson:
Breytingar
ekki uppi á
borðum
VIÐSKIPTI Hópur fjárfesta hefur
gengið frá kaupum á öllum hluta-
bréfum í Bræðurnir Ormsson
ehf. Ekki fæst uppgefið á hvaða
kjörum fyrirtækið var selt, en
fjárfestarnir eru þeir Gunnar
Örn Kristjánsson, Birgir Sævar
Jóhannsson og Sigurður Sigfús-
son. Bræðurnir Ormsson hafa að
mestu verið í eigu sömu fjöl-
skyldu frá upphafi, en fyrirtæk-
ið var stofnað árið 1922.
Gunnar Örn Kristjánsson,
einn nýju eigendanna, segir enn
ekkert vera á teikniborðinu sem
miði að breytingum á starfsem-
inni. Fyrst og fremst ætli þeir
þremenningar að halda áfram að
byggja fyrirtækið upp og styrkja
reksturinn. ■
VINNUSLYS VIÐ KÁRAHNJÚKA
Betur fór en á horfðist þegar
starfsmaður við Kárahnjúka-
virkjun féll niður af steypujárna-
geymslu á sunnudagsmorgun. Í
fyrstu var talið að maðurinn væri
mikið slasaður á fæti en við nán-
ari skoðun kom í ljós að hann
hafði snúið sig illa við fallið. Ekki
reyndist þörf á sjúkraflutningi til
Egilsstaða vegna slyssins.
BLEIKU LJÓSIN TENDRUÐ
Þórólfur Árnason borgarstjóri kveikti í gærkvöld bleiku ljósin sem lýsa munu upp Ráðhús
Reykjavíkur til 7. október. Tilefnið er átak vegna brjóstakrabbameins.
ÍSRAELSKUR SKRIÐDREKI
Forsætisráðherrann Ariel Sharon ætlar ekki að draga herlið sitt til baka frá norðurhluta
Gaza-svæðisins.
HEIMILI Í RÚST
Þrír Palestínumenn safna saman því sem
eftir er af eigum sínum eftir að Ísraelsher
eyðilagði hús þeirra í Jebaliya-flótta-
mannabúðunum á norðurhluta Gaza-
svæðisins.
AP
/M
YN
D
IR