Fréttablaðið - 04.10.2004, Page 12

Fréttablaðið - 04.10.2004, Page 12
Heimsslit? Ræða sem forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, flutti við setningu Alþingis féll í skuggann af uppnáminu sem varð vegna ræðu Halldórs Blöndal þingfor- seta. Einn ráðherranna, Björn Bjarna- son, hlustaði þó að venju af gaumgæfni á orð Ólafs Ragnars. Lét hann síðan eft- irfarandi ummæli falla á heimasíðu sinni og er ekki hægt að skilja þau öðruvísi en svo að ráðherrann sé að gera gys að forsetan- um: „Forseti Ís- lands flutti í ræðu sinni einskonar heimsslitaboð- skap vegna loftlagsbreyt- inga og áhrifa á hafstrauma og taldi, að alþingi hefði heimssögulegu hlutverki að gegna til að berjast gegn þeirri vá – ræða hans minnti mig á heimsslitaspár hans fyrr á árum vegna óttans við kjarn- orkustríð og þegar hann taldi nauðsyn- legt að snúast gegn Bandaríkjastjórn til að berjast gegn þeirri vá.“ Björn vill frek- ar taka mark á forstjóra olíurisans BP, John Browne, og vitnar í skrif hans í tímaritið Foreign Affairs um loftlags- breytingar og áhrif Kyoto-samkomu- lagsins „sem hann telur standa á veik- um grunni“. Málefnalegur Orð þau í ræðu Ólafs Ragnars sem einkum eru tilefni ummæla ráðherrans eru þessi – og ekki er annað að sjá en að þau séu málefnaleg: „Líkt og Alþingi vísaði veg í hafréttarmálum á liðinni öld og samstaða og einhugur hér í salnum voru forsenda árangurs sem skipti sköpum hefur Alþingi nú sögulegt tæki- færi til að taka forystu um viðbrögð við þeim breytingum sem eru að verða í hafinu við Íslandsstrendur, breytingum sem einnig ná til norðurslóða og munu hafa ógnvænleg áhrif á lífsskilyrði allra jarðarbúa, ekki eftir margar aldir heldur jafnvel innan fáeinna áratuga. Alþingi er í betri stöðu en þjóðþing flestra landa til að láta að sér kveða og tengja sam- an áreiðanlegustu niðurstöður fræði- manna og samræður á alþjóðavett- vangi um þá nýskipan sem getur forð- að okkur, börnum okkar og afkomend- um frá slíkum hættum.“ Mér varð það á að kaupa teikni- mynd á dögunum á útsölumarkaði sem reyndist ónýt þegar farið var að horfa á hana - gamalt drasl sem ég hafði verið ginntur til að kaupa. Slíkt virðist raunar svo al- gengt þar sem barnamyndir eiga í hlut, að það er eins og hvert ann- að happadrætti að leigja eða kaupa slíka mynd. Þetta er aðeins dálítið dæmi af ótal mörgum um þá virðingu sem börnum er sýnd hér á landi – allt frá hinum óhugnanlega Júgíó- heimi með þjóðarmorðum og annarri skemmtan sem kaup- mangarar keppast nú við að búa til barnaæði kringum og til þess að þau hafa nú í tvær vikur verið látin húka heima hjá sér aðgerða- lítil meðan geisar kjaradeila. Á kjaradeilunni fá blessuð börnin helst þá skýringu að því fylgi svo ómennskt álag að vera samvistum við þau að rausnarlega þurfi að borga slíkt starf, eigi nokkur al- mennileg og hæf manneskja að fást til þess – en manneskjur virð- ast því hæfari og betri, sam- kvæmt þessari einföldu fram- setningu, sem þær fá hærra kaup. Öll vitum við hins vegar að það er ekki svo. Virðingarröð starfa í samfélaginu er þrátt fyrir allt ekki einvörðungu undir því komin hversu vel þau gefa af sér. Hins vegar má segja að kjör kennara séu til marks um djúprætt og langvarandi vanmat í íslensku samfélagi á gildi menntunar – einkum virðist augljóst að laga þurfi kjör ungra kennara. Þetta vanmat á gildi menntunar gegn- sýrir enn þjóðfélagið. Við sjáum það í áhugaleysi sumra drengja í skóla og lélegri frammistöðu og við sjáum það í sjálfri atvinnu- stefnu kjörinna stjórnvalda: á Austurlandi er öllu náttúrufari umturnað með róttækari hætti en áður hefur þekkst til þess að skapa störf handa ómenntuðum karlmönnum sem þarf svo að sækja unnvörpum til annarra landa... Það er nefnilega satt sem stundum heyrist sagt í kvörtunar- tón, að Íslendingar séu hættir að nenna að vinna í fiski. Ef til vill er kominn tími til að stjórnvöld horf- ist í augu við það og átti sig á því að verðmæti framtíðarinnar eru fólgin í menntun. Þetta lýsir allt röngu verð- mætamati, rangri stefnu, skiln- ingsleysi þeirra sem ráða ferðinni – vanmati á gildi menntunar. En fyrir það á ekki að refsa börnum. Verkföll eiga ekki að beinast gegn börnum. Kennarastarfið nýtur almennt meiri virðingar í samfélaginu en launin segja til um og hefðu kenn- arasamtökin haft rænu á að nota einhverja peninga í sumar til þess að hrinda af stað auglýsingaher- ferð um kjör kennara og vinnuá- lag má telja líklegt að þrýstingur hefði aukist á viðsemjendur kenn- ara að leita samninga við þá. Í staðinn hafa kennarar ekkert hirt um almenningsálit og á stundum virðist manni að í þeirra hópi sé kynt undir nokkurs konar hóp- paranoju um að allir hati þessa stétt. Sem er fáránlegt. Alræmdasta dæmið um það hvernig forystumenn kennara- samtakanna gefa dauðann og djöfulinn í það sem fólkinu á göt- unni finnst er náttúrlega hinar furðulegu synjanir á undanþágum til handa fötluðum börnum með rökstuðningi sem nánast hefur virkað á fólk eins og hótfyndni – að ekki skapist neyðarástand fyrr en eftir tvær vikur vegna þess að jólafrí sé tvær vikur. Þetta hefur skaðað orðstír stéttarinnar stórkostlega og vakið djúpa hneysklan meðal fólks. Þetta hefur raunar valdið því að gleymst hefur að verkfall er óvið- unandi aðgerð gagnvart börnum. Skóli er ekki verksmiðja, börn eru ekki ál... Það er ekki verið að leg- gja niður framleiðslu á einhverj- um varningi heldur er verið að stöðva ferli í þroska barnanna. Í umræðunni um verkfallið hefur það eiginlega gleymst að á meðan verkfall geisar eru börnin svipt rétti sínum til að læra – meira að segja skólastofur eru lokaðar þeim foreldrum sem vilja sækja bækur barna sinna til að kenna þeim. Þarna er ekki um að ræða lítilsháttar óþægindi fyrir for- eldra sem fá ekki pössun fyrir börnin sín eins og margir tals- menn þessa verkfalls hafa látið liggja að í umræðunum - heldur er verið að hafa af börnunum tíma til menntunar sem þau fá aldrei aftur. Því má ekki gleyma að þessir septemberdagar koma aldrei aftur. Það sem tapast verð- ur ekki unnið upp. Sumarfrí skólanna er langt, starfsdagar kennara eru margir, jólafrí rausnarlegt, páskafrí - að ógleymdum öllum hinum óskilj- anlegu fimmtudagsfrídögum út- mánaða – og þegar að minnsta kosti tveggja vikna verkfall bæt- ist við allan þennan tíma sem barnið fær ekki notið skóla- göngu, þá má ljóst vera að þetta verkfall er atlaga að mikilsverð- um réttindum barna. Verið er að draga úr möguleikum þeirra til að búa sig sem best undir lífið. Þetta verkfall beinist ekki gegn foreldrum fyrst og fremst, sveitastjórnum, ráðherrum - ekki einu sinni Birgi Birni – það bein- ist gegn börnum. ■ H agvöxtur er á fleygiferð og framundan er tími vaxt-ar í þjóðarbúskapnum. Við slíkar aðstæður eyksthætta í efnahagslífinu. Það umhverfi sem nú blasir við gerir miklar kröfur um aðhaldssama stjórn ríkisfjár- mála. Innstreymi gjaldeyris vegna stóriðjuframkvæmda styrkir gengi krónunnar. Hækkandi vextir Seðlabankans styrkja einnig gengi krónunnar. Afleiðing sterkrar krónu er hagstætt verð innfluttra vara og aukinn viðskiptahalli. Mik- ill viðskiptahalli leiðir svo til leiðréttingar á gengi krónunn- ar þegar sér fyrir endann á veislunni með tilheyrandi verð- bólguskoti. Við lok síðustu uppsveiflu gerði ríkisstjórnin mistök. Verðbólgan fór yfir níu prósent í upphafi árs 2002. Hagkerf- ið náði mjúkri lendingu, meðal annars vegna vaxtar nýrra atvinnugreina. Ríkið sýndi ekki næga ráðdeild þegar á reyn- di, en heppnin var með okkur í það sinnið. Líklegt er að við stöndum frammi fyrir þessum hættum á ný við lok stóriðjuframkvæmda. Hvernig okkur reiðir af þá ræðst að nokkru leyti af viðbrögðum við þeim tímamótum, en að miklu leyti hvernig við tökumst á við efnahagslífið næstu tvö ár sem einkennast munu af vexti og hættu á þenslu. Seðlabankinn hefur þegar hafið hækkun vaxta, en hversu mikið bankinn þarf að hækka vexti ræðst fyrst og fremst af efnahagsákvörðunum ríkisstjórnarinnar. Skattalækkanir eru ekki ofarlega á óskalistanum frá hagstjórnarsjónarmiði, nema að skorið sé niður á móti í rekstri ríkisins. Fjárlagafrumvarp Geirs Haarde gerir ráð fyrir ríflega ellefu milljarða afgangi. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkisins verði 306 milljarðar króna. Ellefu milljarðar eru því ríflega þrjú og hálft prósent af tekjum ríkisins. Það verður að telj- ast í minna lagi ef gæta á aðhaldssamrar stefnu í ríkisfjár- málum. Ekki síst ef horft er um öxl og greint milli frum- varps og veruleika undanfarinna ára. Meðalfrávik fjárlaga og afkomu ríkissjóðs er þrettán milljarðar á ári síðustu ár. Ef árið 2005 verður meðalár í þessu tilliti þá verður tveggja milljarða halli á fjárlögum. Slíkt væri algjörlega óviðunandi og ógnun við framtíðar- stöðugleika. Samneysla hefur vaxið meira en sem nemur hagvexti undanfarin ár þrátt fyrir einkavæðingu. Það þýðir að ríkið tekur árvisst stærri og stærri sneið af verðmæta- sköpuninni. Þá þróun verður að stöðva. Ríkisútgjöld sem vaxa hraðar en atvinnuvegirnir draga að lokum máttinn úr þeim. Sígandi lukka er best í efnahagsmálum og slaki í hag- stjórn næstu tvö hagvaxtarár mun hefna sín af fullum þunga í framhaldinu. Öfgafullar gengissveiflur sem fylgja í kjöl- farið geta leitt til þeirrar sóunar sem fylgir gjaldþrotum fyrirtækja sem undir eðlilegum kringumstæðum byggja á ágætum rekstrargrunni. Alþingi verður allt að bera ábyrgð á hagstjórninni. Stjórnarandstaða sem leggur til aukin út- gjöld til málaflokka verður að sýna fram á niðurskurð á móti. Annað er ábyrgðarleysi. Reynslan sýnir að afar erfitt er að halda aftur af útgjöld- um ríkisins þegar vel árar. Það er eins og að ætla í megrun um jólin. Þess vegna eru fyrirheit um afgang sem nemur þremur og hálfu prósenti af tekjum engan veginn nægjanleg til þess að vekja vonir um að engin magapína fylgi átveisl- unni sem framundan er. ■ 4. október 2004 MÁNUDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Ellefu milljarða afgangur fjárlagafrumvapsins er ekki nóg. Sporin hræða Öll börn eiga að vera undanþegin verkfalli ORÐRÉTT Orð sem græta Það kvæði notuðu eldri syst- kini stundum til að pína yngri systkini sín; það brást ekki að eftir flutning á ljóðinu með miklum tilþrifum var litla barnið hágrátandi yfir ömur- leika lífsins. Illugi Jökulsson, rifjar upp að hafa lært Fýkur yfir hæðir eftir Jónas Hallgrímsson, í Skólaljóðunum fyrir margt löngu. Dagblaðið, 2. október. Staðföst þjóð Auk þess sem staða okkar í heiminum er á þann veg að, að engin ástæða er til tortryggni í okkar garð um að annað vaki fyrir okkur en við blasir. Sem er vandamál sem stórþjóðirnar standa frammi fyrir. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins segir þróunarlönd ekki hafa ástæðu til að tortryggja gott sem frá Íslend- ingum komi. Morgunblaðið, 3. október. FRÁ DEGI TIL DAGS Í DAG KENNARAVERKFALLIÐ GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Alræmdasta dæmið um það hvernig for- ystumenn kennarasamtak- anna gefa dauðann og djöf- ulinn í það sem fólkinu á götunni finnst er náttúrlega hinar furðulegu synjanir á undanþágum til handa fötl- uðum börnum með rök- stuðningi sem nánast hefur virkað á fólk eins og hót- fyndni – að ekki skapist neyðarástand fyrr en eftir tvær vikur vegna þess að jólafrí sé tvær vikur. ,, Tómstunda- og fræðsluefni sem stuðla að auknum þroska og betri námsárangri. Í vefverslun á www.skola.is er m.a. að finna allt útgáfuefni Námsgagnastofunar. Smiðjuvegur 5. K gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.