Fréttablaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 49
MÁNUDAGUR 4. október 2004 St Jo hn s’Nú verða tvær skemmti- ogjólaverslunarferðir til Kanada24. - 27. nóv. (uppselt)og 28. nóv. - 1. des. Verð frá kr. 48.600 m.v. tvo í herbergi á Holiday Inn. Í St.John´s er hagstætt að versla og þú færð sannkallaða jólastemningu í kaupbæti. Aðeins um 3 klst. flug og gist er á glæsilegum hótelum. Skoðunarferðir, frábærir veitingastaðir og írsk pöbbastemning. VR-ávísun gildir. Á N Ý F U N D N A L A N D I Ferðaskrifstofan Vestfjarðaleið Hesthálsi 10 s: 562 9950 og 587 6000 www.vesttravel.is info@vesttravel.is .MÓTMÆLANDI ÍSLANDS Helgi Hóseasson lét sig ekki vanta þegar Vantrú.net efndi til mótmæla við þingsetninguna á föstudaginn. Mót-mælendur buðu þingmönnum upp á skyr og minntust þannig á táknrænan hátt þess þegar Helgi lét til skarar skríða og sletti skyri á þing- heim fyrir þremur áratugum. Það vakti athygli viðstaddra að þegar Dorrit Moussaieff forsetafrú gerði sig líklega til að heilsa upp á mótmæl- endur og jafnvel þiggja af þeim skyr blandaði lögreglan sér í málið og hefti för forsetafrúarinnar sem hvarf á braut með forsetanum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M JPV Útgáfa hefur gefið út nýja bókeftir Jacqueline Wilson sem ber heitið Lóla Rós. Áður hafa bækurnar Stelpur í stuði, Stelpur í stressi, Stelpur í strákaleit og Stelpur í sárum komið út á ís- lensku eftir sama höfund. Þegar allt fer í háa- loft á heimilinu verða Jayni, mamma hennar og litli bróðir að pakka saman og flýja um miðja nótt. Þótt þau séu hrædd um að ofbeldisfullur heimilisfaðirinn komist á slóð þeirra er flóttinn býsna ævintýralegur og spennandi, svona fyrst í stað. Þau velja sér ný nöfn og Jayni verður hin glæsilega, fullkomna Lóla Rós. Þau flækjast um Lundúni og búa á mis- góðum hótelum. En nýja lífið tekur brátt á sig aðra og dekkri mynd. Lóla Rós er sú skynsama í fjölskyldunni og henni líkar ekki starfið sem mamma hennar hefur fengið og því síður líst henni á nýja kærastann. Hún er ekki viss um strákana í skól- anum heldur. Þegar mamma hennar veikist og fer á spítala neyðist Lóla Rós til að taka stjórnina í sínar hend- ur og verða miklu fullorðnari en hún kærir sig um. JPV ÚTGÁFA hefur einnig sent frásér nýja bók eftir Eoin Colfer, höf- und Artemis Fowl bókanna. Nýja bókin heitir Barist við ókunn öfl. Höfundurinn fékk hin virtu Herald Angel verðlaun árið 2004. Cosmo Hill er fjórt- án ára og þráir að flýja af Stofnun Clarissu Frayne fyr- ir munaðarlausa drengi. Þegar stundin kemur grípur hann tækifær- ið en allt fer í handaskolum. Cosmo finnur að lífið er sogað úr honum af sérkennilegum bláum sníkjudýrum. En þá koma nokkrir kjaftforir krakkar æðandi, sprengja skaðvaldinn og bjarga lífi hans. Guðni Kolbeinsson þýddi. JPV ÚTGÁFA hefur endurútgefiðVirgil litla eftir Ole Lund Kirkegaard en hún kom fyrst út á ís- lensku 1982 en er nú prýdd litmynd- um. Virgill litli á heima í hænsnakofa í litl- um bæ ásamt ein- fættum hana sem vekur hann á hverj- um morgni. Vinir Virgils litla eru Ósk- ar og Karl Emil og þeir félagarnir lenda í mörgum ævintýrum. Eitt fjall- ar um einmana stork og annað um afmælisveislu Karls Emils. Og ekki nóg með það – Virgill litli og vinir hans þurfa líka að fást við dreka með tvö höfuð og sjö fætur. Barnabækur Ole Lund Kirkegaard eru fyrir löngu orðnar sígildar og sjálfur teiknaði hann myndirnar sem prýða bækur hans. Nú hefur dóttir hans, Maya Bang Kirkegaard, hresst upp á þær með líflegum litum. Þá hefur JPV-útgáfa einnig gefið útbókina Abarat eftir Clive Barker sme er þekktastur fyrir hrollvekjur sínar en sýnir nú á sér aðrar hliðar. Sagan hefst á leiðinlegasta stað sem hugsast getur: Kjúklingabæ í Banda- ríkjunum. Þar á Candy Quackenbush heima og þráir heitt að fá einhverja NÝJAR BÆKUR vísbendingu um hvað framtíð hennar ber í skauti sér. Svarið sem hún fær er allt öðruvísi en hún átti von á. Nánast upp úr þurru brestur á flóðbylgja og Candy fylgir manni sem nefn- ist Jón Hrekkur (bræður hans búa í hornum á höfði hans), stekkur út í freyðandi sjóinn og er hrifin brott. Flóðbylgjan ber hana til Abarats sem er stór eyjaklasi þar sem hver eyja er mismunandi klukkustund sólarhrings- ins, allt frá Hausnum mikla við Rökk- ursund, klukkan átta að kvöldi, til sól- glitaðra undranna klukkan þrjú síð- degis þar sem drekar eru á ferð, elleg- ar myrkra ógna Dofrabóls þar sem Kristófer Carrion, lávarður af mið- nætti, ræður ríkjum. Candy er ætlað hlutverk í þessum undarlega heimi: Hún er þangað komin til að bjarga Abarat frá myrkum öflum sem eru eldri en sjálfur tíminn og búa yfir meiri illsku en Candy hef- ur nokkurn tíma komist í tæri við. Hún er undarleg kvenhetja, það veit hún. En þetta er líka undarlegur heimur. Og í Abarat getur allt gerst.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.