Fréttablaðið - 04.10.2004, Blaðsíða 51
FÓTBOLTI Chelsea hafði betur gegn
Liverpool á Stamford Bridge í
gærdag. Eitt mark skildi liðin að
og það skoraði Joe Cole á 64. mín-
útu eftir lúmska aukaspyrnu frá
Frank Lampard.
Annars voru leikmenn Chelsea
í nokkrum erfiðleikum með að
skapa sér hættuleg færi og það
var greinilega dagsskipunin hjá
Rafael Benitez og hans mönnum
hjá Liverpool að verjast vel. Þeir
stilltu upp með fimm manna
miðju og þá var Djibril Cisse einn
í framlínunni en alls voru gerðar
fimm breytingar á liðinu frá síð-
asta leik sem var tap gegn Olymp-
iakos í Grikklandi í Meistaradeild-
inni. Meðal annars var Chris
Kirkland mættur í markið og
hann stóð sig vel. Þá voru þeir
Salif Diao og Djimi Traore í byrj-
unarliðinu, flestum til nokkurrar
undrunar. Liverpool skapaði sér
engin færi en nokkur hálffæri litu
dagsins ljós og þurfti markvörður
Chelsea, Petr Cech, aðeins að taka
einu sinni í öllum leiknum á hon-
um stóra sínum.
Chelsea varð fyrir miklu áfalli
á 38. mínútu en þá þurfti fram-
herjinn Didier Drogba að yfirgefa
völlinn vegna eymsla í maga. Hins
vegar var skiptingin góð því í stað
Drogba kom inná markaskorarinn
Joe Cole. Sanngjarn sigur Chelsea
því staðreynd en leikurinn var
hins vegar ekki eins skemmtileg-
ur og vonir stóðu til. Eiður Smári
Guðjohnsen spilaði allan leikinn.
Birmingham og Newcastle átt-
ust einnig við í gærdag á og skildu
þau jöfn, 2-2. Það var Jermaine
Jenas sem kom Newcastle yfir
strax á 3. mínútu en Dwight Yorke
jafnaði metin tuttugu mínútum
síðar. Matthew Upson kom síðan
heimamönnum í Birmingham yfir
á 57. mínútu en Nicky Butt skor-
aði jöfnunarmark Newcastle tíu
mínútum síðar, hans fyrsta fyrir
félagið frá því að hann kom frá
Manchester United í sumar. Undir
lokin sóttu heimamenn síðan af
krafti en markvörður Newcastle,
Shay Given, sýndi frábæra takta
og tryggði stigið. ■
MÁNUDAGUR 4. október 2004 19
Stjórn körfuknattleiksdeildar KR ogCurtis King hafa komist að sam-
komulagi þess efnis að King verði
leystur undan samn-
ingi. Leikmaðurinn
kom að máli við
stjórnina fyrir helgina
og bað um að fá að
fara heim og var sú
bón samþykkt. KR-
ingar hafa þegar haf-
ið leit að nýjum leik-
manni til að fylla
skarð hans. Annar bandarískur leik-
maður er í herbúðum KR-inga,
Damon Garris að nafni.
Tindastólsmenn leita nú logandiljósi að leikmönnum til að fylla
skörð þeirra tveggja erlendu leik-
manna sem sendir voru heim á dög-
unum en þeir þóttu ekki standa und-
ir væntingum.
Orðrómur er á kreiki
þess efnis að Stólarn-
ir séu að semja við
Dan Trammel sem
lék með Grindvíking-
um hluta úr síðustu
leiktíð. Hann þótti
standa sig mjög vel
þar en var sagt upp störfum af ein-
hverjum ástæðum. Trammel hafi
skilað rúmlega tólf fráköstum að
meðaltali í leik auk fimmtán stiga.
Hann kemur án efa til með að styrk-
ja vængbrotið lið Stólanna náist
samningar við kappann.
Petter Solberg, hinn knái norskirallari, vann sigur í Ítalíurallinu
sem fram fór á Sardiníu um helgina
en þar eru alls eknar nítján sérleiðir.
Solberg, sem ekur á Subaru Impresa,
var tveimur mínútum og sjö sekúnd-
um á undan Frakkanum Sebastien
Loeb sem ekur á Citroen Xsara. Þriðji
kom svo Spánverjinn Carlos Sainz
sem einnig ekur á Citroen. Sigurinn
var sá þriðji í röð hjá Solberg en þrjár
umferðir eru eftir af keppnistímabil-
inu. Sebastien Loeb er efstur í heild-
arkeppninni með 100 stig og hefur
nánast tryggt sér titilinn. Petter Sol-
berg er annar með 74 stig og Carlos
Sainz þar á eftir með 61.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Burt með
sóðaskapinn!
Stubbahólkarnir okkar eru alfarið íslensk hönnun, sem
tekur tillit til íslensks veðurfars og hafa reynst mjög vel.
Það er mjög einfalt að setja þá upp og losa þá.
Stubbahólkarnir fást í fimm litum:
grænir - brúnir - svartir - gráir - hvítir.
Þú færð stubbahólkana okkar hjá eftirtöldum aðilum:
BYKO Akranesi, BYKO Breiddinni Kópavogi, BYKO Furuvöllum
Akureyri, BYKO Glerártorgi Akureyri, BYKO Hafnarfirði, BYKO
Hringbraut Reykjavík, BYKO Reyðarfirði, BYKO Selfossi, BYKO
Víkurbraut Suðurnesjum, KHB byggingarvörur Egilsstöðum
Bjóðum stubbahólka á góðu verði tilbúna til uppsetningar
á veröndinni, á húsvegginn eða bara frístandandi.
Eldshöfða 14 - 110 Reykjavík - sími: 587 3400 - e-mail: burek@burek.is - www.burek.is
Heildsöludreifing:
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
Birmingham–Newcastle 2–2
0–1 Jermaine Jenas (3.), 1–1 Dwight
Yorke (23.), 2–1 Matthew Upson (57.),
2–2 Nicky Butt (67.).
Man. Utd–Middlesbrough 1–1
0–1 Stewart Downing (23.), 1–1 Alan
Smith (81.).
Chelsea–Liverpool 1–0
1–0 Joe Cole (64.).
Arsenal 8 7 1 0 26-7 22
Chelsea 8 6 2 0 8-1 20
Everton 8 5 1 2 9-7 16
Man. Utd 8 3 4 1 9-7 13
Tottenham 8 3 4 1 5-3 13
Newcastle 8 3 3 2 16-13 12
Bolton 8 3 3 2 13-11 12
Aston Villa 8 2 5 1 10-9 11
Middlesbr. 8 3 2 3 12-12 11
Charlton 8 3 2 3 8-14 11
Liverpool 7 3 1 3 10-6 10
Man. City 8 2 2 4 8-7 8
Portsmouth 7 2 2 3 11-11 8
Fulham 7 2 2 3 8-11 8
West Brom 8 1 4 3 8-13 7
Birmingham 8 1 4 3 7-9 7
Blackburn 8 1 3 4 7-14 6
Southampton 8 1 2 5 6-11 5
Norwich 8 0 5 3 7-14 5
Crystal Palace 7 0 2 5 6-14 2
Viggó Sigurðsson í viðræður við HSÍ en hefur FH í
bakhöndinni ef það gengur ekki eftir:
Orð eru til alls fyrst
ALAN SMITH Sést hér fagna jöfnunar-
marki sínu gegn Middlesborugh en hann
kom inn á sem varamaður í leiknum.
Enska úrvalsdeildin:
Alan Smith
bjargaði
stigi
FÓTBOLTI Manchester United náði
aðeins jafntefli, 1–1, gegn
Middlesborugh á Old Trafford í
ensku úrvalsdeildinni í gær þrátt
fyrir að stilla upp Wayne Rooney,
Ruud van Nistelrooy, Ryan Giggs
og Cristiano Ronaldo í sóknarlínu
sinni.
Wayne Rooney spilaði sinn
fyrsta deildarleik með United og
eftir þrennuna í fyrsta leik sínum
gegn Fenerbahce á þriðjudaginn
var búist við flugeldasýningu frá
kappanum. Hann hafði hins vegar
frekar hægt um sig og það þurfti
varamanninn Alan Smith til að
bjarga stiginu fyrir United níu
mínútum fyrir leikslok.
Áður hafði Stuart Downing
komið Middlesbrough yfir á 23.
mínútu og allt virtist stefna í
óvæntan sigur Middlesbrough
þegar Smith dúkkaði upp og jafn-
aði metin. United er í fjórða sæti
deildarinnar eftir leikinn. ■
HANDBOLTI Viðræður eru að hefjast
milli Viggó Sigurðssonar og for-
ráðamanna HSÍ þess efnis að
Viggó taki að sér landsliðsþjálf-
arastöðuna eftir að Guðmundur
Þórður Guðmundsson lét af störf-
um í síðustu viku.
Það er ekki seinna vænna að
ráða landsliðsþjálfara því stutt er
í næsta stórverkefni landsliðsins
en það tekur þátt í World-Cup í
Svíþjóð í nóvember.
Viggó vill gjarnan taka við
landsliðinu að ákveðnum skilyrð-
um uppfylltum. Fréttablaðið
heyrði í Viggó í gærdag.
„Ég mun eiga fund með for-
ráðamönnum HSÍ í dag eða á
þriðjudag og við ætlum bara að
sjá hvernig landið liggur – orð eru
til alls fyrst,“ sagði Viggó. Sam-
kvæmt heimildum íþróttadeildar
Fréttablaðsins hefur Viggó gefið
FH-ingum vilyrði um að taka við
liðinu, fari viðræður hans og HSÍ
út um þúfur.
Eins og af þessu má ráða eru
FH-ingar enn ekki búnir að ráða
sér þjálfara til að taka við af Þor-
bergi Aðalsteinssyni sem lét af
störfum á dögunum.
Þeir hafa leitað til þeirra Geirs
Sveinssonar og Atla Hilmarssonar
en báðir hafa gefið afsvar. Fyrsti
kostur FH-inga var þó, og er,
Viggó Sigurðsson og þeir munu
því væntanlega bíða eftir hvað
kemur út úr viðræðum Viggós og
HSÍ áður en þeir negla eitthvað
niður. ■
VIGGÓ SIGURÐSSON Mun eiga viðræður við stjórn HSÍ í dag um að taka við lands-
liðinu af Guðmundi Guðmundssyni.
Cole tryggði Chelsea sigur
Skoraði sigurmark liðsins gegn Liverpool eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
JOE COLE Sést hér fagna sigurmarki sínu gegn Liverpool.