Fréttablaðið - 15.10.2004, Qupperneq 1
● farinn til englands með starf í huga
Guðjón Þórðarson:
▲
SÍÐA 30
Lætur Grind-
víkinga bíða
● forsprakka prodigy
„Ég ræð“
▲
SÍÐUR 34-35
Viðtal við
Liam Howlett
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
HK MÆTIR FRAM Fjórir leikir verða á
Íslandsmóti karla í handbolta. Klukkan
19.15 tekur Víkingur á móti Selfossi og HK
sækir Fram heim. Klukkan 20 mætast Val-
ur og ÍBV og Afturelding tekur á móti FH.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
15. október 2004 – 282. tölublað – 4. árgangur
BULLANDI VERÐSTRÍÐ Verð á bens-
íni hefur sveiflast upp og niður það sem af
er þessum mánuði. Orkan breytti verði í
tvígang í gær. sjá síðu 4
MILLJARÐAR TEKNIR AF BARNA-
FÓLKI Össur Skarphéðinsson, Samfylking-
unni, segir að frá því að Framsóknarflokkur-
inn settist í ríkisstjórn og til 2003 hafi ellefu
milljarðar verið „plokkaðir af barnafólki“
með lækkun barnabóta. Sjá síðu 2
FANGAR FELA EINELTI Einelti fanga
á Litla-Hrauni er haldið leyndu eftir að for-
stjóri Fangelsismálastofnunar sendi bréf til
allra fanga þar sem segir að þeir sem gerist
sekir um slíkt eigi von á agaviðurlögum.
Sjá síðu 8
SPK SKOÐAR SAMEININGU Stjórn
Sparisjóðs Kópavogs lítur sameiningu
Sparisjóðs Reykjavíkur og Sparisjóðs vél-
stjóra jákvæðum augum. Óformlegar við-
ræður hafa átt sér stað um þátttöku SPK.
Sjá síðu 26
nr. 41 2004
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
15
. o
kt
. -
2
1.
ok
t.
stjörnuspá fólk tíska bækur matur hönnun
FASTUR PUNKTUR
Orkan
heimaf™Ääx|z
Sólveig Arnarsdóttir
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Orkan heima
betri en í Berlín
● hráfæði ● litli svarti jakkinn
Regína Þorvaldsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tekur slátur á
hverju ári
● tilboð ● matur
Kvikmyndir 34
Tónlist 36
Leikhús 24
Myndlist 24
Íþróttir 30
Sjónvarp 40
VERKALÝÐSMÁL Kristján Gunnars-
son, formaður Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur, var kjör-
inn formaður Starfsgreinasam-
bands Íslands á ársfundi sam-
bandsins í gær. Signý Jóhannes-
dóttir, formaður verkalýðsfélags-
ins Vöku á Siglufirði, bauð sig
fram gegn honum, en meirihluti
uppstillingarnefndar lagði til að
Kristján yrði formaður.
Kristján hlaut 489 atkvæði, eða
rúm 64 prósent atkvæða, en Signý
269 atkvæði, rúm 35 prósent. Þrjá-
tíu verkalýðsfélög með um 40.000
félagsmenn eru innan vébanda
Starfsgreinasambandsins.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Iðju á Akureyri, var kjörinn vara-
formaður Sambandsins. Signý Jó-
hannesdóttir bauð sig einnig fram
til varaformanns en hlaut rúm 32
prósent atkvæða gegn rúmum 67
prósentum Björns.
Kristján segir að fyrsta verk-
efni sitt verði að verja tilverurétt
verkalýðshreyfingarinnar, sem nú
sé ógnað í Sólbaksdeilunni á Akur-
eyri. -ghg
Sjá síðu 6
Halldór Björnsson lét af störfum sem formaður Starfsgreinasambandsins í gær:
Kristján kjörinn formaður
VERKFALL Um 65 mikið fötluðum
nemendum hefur verið synjað
um undanþágu til kennslu í
kennaraverkfallinu. Undanþág-
ur hafa verið veittar vegna um
150 nemenda.
„Ég hef viljað veita öllum
beiðnum nema einni, sem kom
frá Ísaksskóla, brautargengi,“
sagði Sigurður Óli Kolbeinsson,
lögfræðingur og fulltrúi launa-
nefndar sveitarfélaga í undan-
þágunefnd. Með honum í nefnd-
inni situr fulltrúi Kennarasam-
bands Íslands, en samþykki
beggja þarf til að undanþága
fáist. Fulltrúi kennara hefur
hafnað nemendunum 65, að sögn
Sigurðar Óla. Litlar upplýsingar
hafa fengist um starf nefndar-
innar nema undanþágur hafi
verið veittar. Spurður um hvort
fjöldi þeirra beiðna sem er á
borði nefndarinnar hverju sinni
sé trúnaðarmál kvað Sigurður
Óli svo ekki vera.
„En fulltrúi kennara byrjaði í
upphafi síðasta fundar að bóka
að hann lýsti yfir óánægju sam-
bandsins með umfjöllun fulltrúa
launanefndarinnar í fjölmiðlum
um störf fulltrúa sambandsins í
nefndinni og óskaði jafnframt
eftir því að störf nefndarinnar
yrðu ekki til umfjöllunar í fjöl-
miðlum,“ sagði Sigurður Óli. „Í
nefndinni kunna vissulega að
vera til umfjöllunar viðkvæm
mál um einstaklinga, sem ekki
eiga erindi til almennings. En
það á ekki við um störf nefndar-
innar almennt.
Allt eru þetta beiðnir fyrir
verulega fatlaða einstaklinga,
sem ég tel eðlilegt að fái í það
minnsta efnislega skoðun, þó
það sé nú ekki annað. Ef starf
nefndarinnar á að vera málefna-
legt ætti að veita undanþágu til
allra sem eru verr eða jafn illa
stödd og börnin í Öskjuhlíðar-
skóla.“
Spurður um hvort geðþótta-
ákvarðanir ráði við afgreiðslu
beiðna sagði Sigurður Óli ekki
vilja svara því játandi eða neit-
andi. „En ég get ekki neitað að
þarna séu einsleit mál afgreidd
með mismunandi hætti á sér-
kennilegum forsendum.“
jss@frettabladid.is
Takast á um
65 fatlaða
Átök hafa verið um synjun á undanþágubeiðn-
um mikið fatlaðra barna. Fulltrúi launanefndar
er ósáttur við vinnubrögð undanþágunefndar.
BÖRN MÓTMÆLA VERKFALLI „Við viljum aftur í skólann,“ sögðu sex börn úr Lækjar-
skóla í Hafnarfirði sem tóku sér stöðu við Alþingishúsið í gær og lýstu óánægju sinni með
að kennaraverkfallið hefði enn ekki leyst. Þá hafði verkfallið staðið í 25 daga og miðað
við yfirlýsingar forystumanna kennara og samninganefndar sveitarfélaga getur liðið langur
tími áður en deilan leysist. Sjá síðu 2
Allt landið
Me›alnotkun fjölmiðla
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups mars og ágúst '04
Meðallestur dagblaða.
Uppsafnað meðaltal virkra daga í sjónvarpi.
Uppsafnað yfir viku í tímaritum.
BESTA VEÐRIÐ Í BORGINNI Víða
skúraveður en þurrt í borginni og gæti
rofað þar til. Hiti 3-12 stig, svalast á
Vestfjörðum. Sjá síðu 6
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
KAST
KRINGLU
14. - 17. okt.
Nýtt kortatímabil
20 50%til
nýjum vörum
afsláttur
af
UNDANÞÁGUBEIÐNIR
Sumir fatlaðir nemendur hafa fengið
undanþágu, aðrir ekki.
KRISTJÁN GUNNARSSON OG HALLDÓR BJÖRNSSON
Kristján var kjörinn nýr formaður Starfsgreinasambandsins í gær er Halldór lét af störfum.