Fréttablaðið - 25.10.2004, Side 8
8 25. október 2004 MÁNUDAGUR
Bandaríska leyniþjónustan gagnrýnd:
Flutti 12 fanga
í laumi frá Írak
WASHINGTON, AP Bandaríska leyni-
þjónustan, CIA, hefur flutt tólf
fanga í laumi út úr Írak á síðustu
sex mánuðum til yfirheyrslna.
Talið er hugsanlegt að þar með sé
hún að brjóta gegn Genfarsátt-
málanum. Þetta kom fram í dag-
blaðinu Washington Post í Banda-
ríkjunum.
Í mars undirritaði bandaríska
dómsmálaráðuneytið skjal að
beiðni CIA þar sem leyniþjónust-
unni var gefið leyfi til að yfir-
heyra fangana í skamman tíma í
öðru landi. Þar með telur leyni-
þjónustan sig ekki vera að brjóta
nein lög. Hefur hún hvorki látið
Alþjóða Rauða krossinn né aðrar
stofnanir vita af þessum yfir-
heyrslum sínum.
Sérfræðingar í alþjóðlegum
lögum hafa bent á að aðgerðir
leyniþjónustunnar séu brot á 49.
grein Genfarsáttmálans. Kveður
hún á um verndun almenna borg-
ara á meðan á stríðstíma og her-
námi stendur. Í frétt Washington
Post eru leiddar líkur að því að
fangarnir hafi verið pyntaðir.
Minnist blaðið í því samhengi
skjals sem Lögfræðiráð Banda-
ríkjanna sendi frá sér fyrir tveim-
ur árum. Þar var CIA og forseta
Bandaríkjanna greint frá því að
hægt væri að réttlæta pyntingar
liðsmanna al-Kaída sem hefðu
verið handsamaðir. Vakti málið
mikla hneykslan um allan heim. ■
Íslenski hesturinn sló
í gegn á stórsýningu
Íslenski hesturinn sló sannarlega í gegn á stórsýningu og keppni í Bret-
landi, að sögn Jónasar R. Jónssonar, umboðsmanns íslenska hestsins. Ís-
lensku sýningarnar fengu frábær viðbrögð hjá þúsundum áhorfenda.
HESTAMENNSKA Um 60.000 manns
sáu og hrifust af íslenska hestin-
um á stórsýningu og keppni í
Bretlandi nýverið, að sögn Jónas-
ar R. Jónssonar, umboðsmanns ís-
lenska hestsins. Er þetta í fyrsta
sinn sem Íslendingar taka þátt í
þessum atburði. Til stendur að
fylgja þessari mikilvægu kynn-
ingu vel eftir þar í
landi.
„Þetta er eins
konar landsmót
þeirra Breta,“
sagði Jónas.
„Þarna fór fram
u m f a n g s m i k i l
keppni, auk þess
sem þrjú hesta-
kyn voru sýnd
sérstaklega. Það
voru íslenski
hesturinn, lífverð-
ir Bretadrottningar á hestum sín-
um og Lipizzaneres, hvítu Vínar -
hestarnir.“
Ellefu knapar sýndu tólf ís-
lenska hesta á sýningunum, sem
voru sjö talsins í höll sem tekur
um 9.000 manns í sæti. Hestarnir
komu víðs vegar að úr Evrópu.
„Aðdragandinn var sá að einn
af stjórnarmeðlimum sýningar-
innar hafði séð íslenska hestinn á
sýningu í Þýskalandi,“ sagði
Jónas. „Hann hreifst svo af eigin-
leikum hans þar, að stjórnin
spurðist fyrir hjá okkur um hvort
við værum til í að koma með hesta
og knapa á sýninguna. Við ákváð-
um að taka þátt og undirbúningur
okkar hafði staðið mánuðum sam-
an. Það varð úr og þarna var sýnd
munsturreið og allar gangtegund-
ir. Við heilluðum áhorfendur og
þeir gripu andann á lofti og klöpp-
uðu með. Þeir nutu til hins ítrasta
að horfa á hestana og láta koma
sér á óvart. Þeir vissu að hverju
þeir gengu með öll önnur hesta-
kyn, en þarna var eitthvað alveg
nýtt á ferðinni.“
jss@frettabladid.is
JOHN KERRY
John Kerry er dyggilega studdur í
kosningabaráttu sinni.
Demókratinn John Kerry:
Fær stuðn-
ing Wash-
ington Post
BANDARÍKIN Hið áhrifaríka dagblað
Washington Post hefur lýst yfir
stuðningi á demókratanum John
Kerry í framboði hans til forseta
Bandaríkjanna.
Að sögn blaðsins var valið
erfitt en Kerry hafði vinninginn
vegna þeirra leiða sem hann kýs
að fara í mörgum stefnumálum
sínum. Gagnrýndi það jafnframt
George W. Bush, núverandi
Bandaríkjaforseta, fyrir utanrík-
isstefnu sína. Dagblaðið The New
York Times hafði áður lýst yfir
stuðningi við Kerry auk þess sem
samtök múslima hafa ákveðið að
styðja hann. ■
,,Þarna fór
fram um-
fangsmikil
keppni, auk
þess sem
þrjú hesta-
kyn voru
sýnd sér-
staklega.
SVONA ERUM VIÐ
HVE MARGIR BERA NAFNIÐ......
SEM FYRSTA NAFN?
Adam 136
Eva 987
Askur 8
Embla 99
Þór 350
Sif 180
María 1.841
Jósef 84
Heimild: Hagstofa Íslands miðað við
þjóðskrá 31. desember 2002.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
YD
D
A
/S
IA
.I
S
/N
M
1
2
7
9
5
www.kbbanki.is
Tilvalinn fjárfestingarkostur fyrir flá sem
vilja binda fé í skamman tíma án mikillar
áhættu. Enginn munur er á kaup- og
sölugengi og innstæ›an er alltaf laus til
útborgunar.7,6%
Peningamarka›ssjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og fjárfestingarsjó›i.
Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings Búna›arbanka hf. Fjárfestingarsjó›ur telst vera áhættusamari
fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum
sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i. Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í
útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is.
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ U R
na f n á v ö x t u n*
* Nafnávöxtun sl. sex mánu›i á ársgrundvelli m.v. 1.10.2004
Í NEYÐARSKÝLI
Tugir þúsunda manns þurftu að dvelja í
neyðarskýlum eftir að heimili þeirra
eyðilögðust.
Jarðskjálfti í Japan:
21 fórst
JAPAN, AP Að minnsta kosti 21 fórst
og um tvö þúsund manns slösuð-
ust í mikilli jarðskjálftahrinu í
Japan sem hófst á laugardags-
kvöld.
Tugir þúsunda þurftu að dvelja
í neyðarskýlum vegna skjálftanna
eftir að heimili þeirra höfðu eyði-
lagst. Fyrsti skjáltinn var af
stærðinni 6,8 á Richter. Átti hann
upptök sín í borginni Ojiya, sem
er um 260 kílómetrum norðvestur
af Tókýó. Auk húsanna sem
eyðilögðust fór lest af sporinu og
slösuðust þar margir. Ekki hafa
fleiri farist í jarðskjálfta í Japan
síðan stór skjálfti skók borgina
Kobe í janúar árið 1995. Þá fórust
rúmlega 6.000 manns. ■
Áhrifa áfengis gætir lengi:
Enn undir
áhrifum dag-
inn eftir
HAFNARFJÖRÐUR Ökumaður var
tekinn í Hafnarfirði um klukkan
tvö í gær grunaður um ölvun við
akstur. Bíll var stöðvaður við
venjubundið eftirlit og ökumað-
urinn látinn blása í blöðru. Kom
þá í ljós að áfengismagn í blóði
hans var vel yfir leyfilegum
mörkum. Ökumaðurinn kvaðst
ekki hafa bragðað áfengi áður en
hann settist upp í bíl sinn í gær
en viðurkenndi hins vegar að
hafa verið úti að skemmta sér á
laugardagskvöldið og eimdi enn
eftir af þeirri skemmtan. Af
þessu tilefni vill lögreglan brýna
það fyrir akandi vegfarendum að
aka ekki of snemma af stað ef
áfengi er haft um hönd kvöldið
áður. ■
Hálka á Akureyri:
Rann út á
gatnamótin
AKUREYRI Ekki urðu meiðsli á fólki
við árekstur tveggja bíla á mótum
Dalsbrautar og Borgarbrautar á
Akureyri í gær.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri vildi slysið til með þeim hætti
að ökumaður á leið norður Dals-
braut reyndi að stöðva bíl sinn á
stöðvunarskyldu, en sökum hálku
vildi ekki betur til en svo að hann
rann inn í hliðina á bíl sem kom
austur Borgarbraut.
Annar bíllinn skemmdist nokk-
uð við áreksturinn og var dreginn
á braut með krana. Töluverð
hálka er nú á Akureyri og í ná-
grenni bæjarins og vill lögregla
því benda fólki á að fara varlega í
umferðinni og aka eftir aðstæð-
um. ■
SKRIÐDREKI
Bandarískur skriðdreki ekur um Bagdad, höfuðborg Íraks. Leyniþjónusta Bandaríkjanna
hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir yfirheyrslur sínar á íröskum föngum.
SÝNINGARLIÐ ÍSLANDS
Ellefu knapar sýndu íslenska hestinn í Bretlandi á dögunum. Jóhann R. Skúlason, heims-
meistari í tölti, sýndi mikil tilþrif í sýningunni á gæðingnum Snarpi; svo mikil að lífvörður
Bretadrottningar ætlaði að jafna um hann þegar íslenski hesturinn var valinn „stjarna sýn-
ingarinnar“ í stað hrossa lífvarðanna. Fyrirliði íslenska hópsins var Einar Öder Magnússon.
KYNNINGARBÁSINN
Útflutningsráð og umboðsmaður íslenska
hestsins settu upp kynningarbás á sýning-
unni. Hann var þrískiptur og hestur hafður
í miðjunni. Það brást ekki að svæðið troð-
fylltist þegar hesturinn var til sýnis, því
„hann virkaði eins og segulstál á gestina“
eins og umboðsmaður komst að orði.