Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 18
Hnífapör frá Boda Nova Falleg hönnun DUKA vandaðar heimilis og gjafavörur Nú er kominn tími til að raka haustlaufin úr innkeyrslunni, setja í poka og fara með í Sorpu. Hrein innkeyrsla er falleg innkeyrsla og því um að gera að drífa í þessu. Húsið númer ellefu við Klappar- stíg í Reykjavík hefur átt sín blóma- og hnignunarskeið á þeim tæpu hundrað árum sem liðin eru frá byggingu þess. Það er einkar reisulegt og þar eru sex íbúðir og iðnaðarhúsnæði. Nú standa yfir miklar og gagngerar endurbætur á því sem hófust á fyrra ári. „Hús- ið var að hruni komið og hélt hvorki vatni né vindi áður en ráð- ist var í viðgerðirnar,“ segir séra Flosi Magnússon, einn íbúa húss- ins nú. Hann ber mikið lof á yfir- smiðinn, Friðbert Friðbertsson, sem hann segir völund mikinn. „Friðbert er búinn að vinna kraftaverk,“ segir klerkurinn. Húsaverndarsjóður Reykjavíkur og húsafriðunarnefnd styrkja þessa framkvæmd sem öll er hin faglegasta. Upphaflega stóð steinbær á þessari lóð og var hann kallaður Krókur. Magnús Egilsson tómt- húsmaður byggði hann árið 1895 en bærinn var rifinn árið 1907. Þá reis þetta myndarlega hús sem enn stendur en ekki er vitað hver teiknaði það. Það er tvílyft íbúðar- hús á kjallara og með portbyggðu risi og kvistum. Fyrstu eigendur þess voru Jóhannes Kr. Jóhannes- son, Loftur Sigurðsson og Ari Ara- son. Árið 1917 var settur inn- gönguskúr á útitröppur við húsið og á honum voru þaksvalir. Í sömu úttekt er þess einnig getið að í kjallaranum sé fornsölubúð og að geymsluskúr hafi verið byggður á lóðinni. Árið 1915 keyptu Hannes Þor- steinsson þjóðskjalavörður og kona hans Jarþrúður Jónsdóttir húsið af hinu svokallað Milljóna- félagi en rétta nafn félagsins var P.J. Thorsteinsson & Co. Nafn félagsins er tilkomið vegna þess að hlutafé þess átti að verða um ein milljón króna, sem þó varð ekki. Áðurnefnd Jarþrúður var bráðgáfuð kona og fékkst nokkuð við ljóðagerð. Hún hafði áður ver- ið trúlofuð Þorsteini Erlingssyni skáldi. Skuggahverfið á sér líka sínar skuggahliðar og þetta hús gæti frá ýmsu sagt ef það mætti mæla. En nú er bjart yfir því og stutt í að stillansarnir hverfi. Þá kemur þokki þess og stílfegurð berlega í ljós. gun@frettabladid.is Þeir sem búa í gömlum húsum eða á vindsælum stöðum kannast við þegar hvessir og gnauðar og hriktir í hurðum og gluggum. Sumum finnst þetta notaleg hljóð og tala um að húsið hafi „sál“ en ýlfrið í einmana vindinum rænir aðra svefni og ró. Ráð við þessum hljóðum eru ekki einföld því ástæðurnar fyrir hávaðanum geta verið ýmsar. Loftstreymið inni í húsinu getur átt einhverja sök og svo ræður aldur hússins og frumfrágangur auðvitað miklu. En ekki er ráð að deyja ráðalaus. Í byggingavöruverslunum er hægt að fá þéttilista sem festir eru utan með hurðum og glugg- um. Þéttilistarnir eru þrenns kon- ar, hægt er að fá límlista sem er þó frekar bráðabirgðalausn en hefur þann kost að hann er ekki varanleg breyting á húsnæðinu. Heftilisti endist lengur, hann er heftur inn í karminn og svo er hægt að kalla til fagmenn til að fá lausn í málið í eitt skipti fyrir öll en þeir fræsa upp úr hurðakarm- inum og festa varanlegan lista inn í hann. Glugga er auðvitað nauð- syn að glerja upp á nýtt ef ástand- ið er orðið alvarlegt en hægt er að bjarga sér fyrir horn með títt- nefndum þéttilistum. Glugga sem ekki eru opnanlegir er hægt að þétta með því að sprauta kítti meðfram þeim. Það er því engin ástæða til að láta vindinn halda fyrir sér vöku. ■ Þegar haustvindarnir taka að dynja á landsmönnum er lágmark að ekki gæti roks innandyra. Þéttilistar fást í öllum byggingavöruverslunum: Ekki láta rokið ræna þig svefni Kvistir og svalir setja svip sinn á húsið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Smiðirnir og feðgarnir Friðbert Frið- bertsson og Gísli Páll Friðbertsson. Klapparstígur 11 árið 2002. Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is Klapparstígur 11: Rís úr öskustónni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.