Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 16
Mæt og virt baráttukona, kenn- ari og fyrrum borgarfulltrúi, Elín G. Ólafsdóttir, skrifaði grein hér á dögunum þar sem hún lagði út af ævintýrinu um Unga litla sem hélt að himinninn væri að hrynja og lét skolla ginna sig inn í greni sitt með fyrirsjáanlegum endalokum. Skilaboð Elínar til kennara eru: standið saman, trúið ekki fagur- gala lágfótu, allt sanngjarnt fólk styður ykkur. Sjálfur er ég væntanlega ekki í hópi þeirra sanngjörnu: frá fyrsta degi hef ég látið í ljós þá skoðun mína – kannski full eindregið stundum – að réttur barna til skólagöngu sé æðri rétti kennara til verkfalls, nema um algjöra neyð sé að ræða, og þá í mesta lagi í nokkra daga. Það að kenna börnum er ekki sambærilegt við að pakka inn vöru eða flaka fisk: maður notar ekki stál og hníf við kennslu, svo að vísað sé til söngs kennara í Garðabæ á baráttusamkomu. Í kennslu eru í húfi verðmæti sem ekki verða mæld í krónum og aurum og eru þar með ósegjanlega miklu mikilvægari en til dæmis þegar verkfall sjó- manna skellur á: líf og þroski ungra manneskja. Umræðan um verkfallið hefur of mikið snúist um hags- muni þeirra fullorðnu: vandræði foreldranna (sem ég er þó ekki að gera lítið úr), lítið svigrúm sveitarfélaganna, væntingar kennaranna. Allt bliknar þetta hjá því að börn eru svipt skóla- göngu sinni: hægt er að vinna upp peningaskort og redda hlut- um en börnin geta ekki endur- heimt þann tíma í skólanum sem þau hafa misst. Þeir dagar eru liðnir og koma aldrei aftur. Harkan í þessu verkfalli er of mikil og hefur skaðað orðspor merkrar stéttar. Sagt er að kennarar séu ekki of sælir af launum sínum (hver sem þau eru: það munar næstum hundr- að þúsund krónum á upplýsing- um um þau eftir því hver talar) ñ látum svo vera, vitaskuld eiga kennarar að fá gott kaup: en það eitt og sér er bara ekki nógu góð ástæða til að fara í verkfall gagnvart börnum í fimm vikur. Endastöðinni er löngu náð. Ég treysti mér ekki til að tala fyrir munn alls sanngjarns fólks en mig langar að biðja deiluaðila að hafa hér eftir hagsmuni barn- anna að leiðarljósi. Í Speglinum í Ríkisútvarpinu var í vikunni viðtal við einn full- trúa kennara í samninganefnd sveitarfélaganna í kjölfarið á málefnalegri og beittri gagnrýni Hafsteins Karlssonar skóla- stjóra í Salaskóla í Kópavogi á vinnubrögð deiluaðila, sem vakið hefur mikla athygli. Í um- mælum fulltrúans kom fram að ástæðan fyrir því að viðræðu- nefndir deiluaðila hefðu ekkert hist í allt sumar væri sú að svo mikið hefði skilið á milli. Það var fróðlegt svar. Það tók því ekki að tala saman því að svo mikið skildi á milli. Með leyfi: eru samningaviðræður þá ekki til að leita lausna? Af svarinu hlaut maður að ráða að stefnt hefði verið að verkfalli allar götur frá því í fyrra, samninga- nefndin hefði ekki talið um neitt að ræða fyrr en réttur „þrýst- ingur“ væri farinn að skapast. Í sama viðtali var fulltrúinn úr samninganefndinni spurður um hinar langvinnu viðræður um svokallaða vinnutímatilhögun, hvers vegna í ósköpunum kenn- arar mættu ekki bara í vinnuna eins og annað fólk klukkan átta og væru til fjögur og fengju greitt í samræmi við það. Gerðu þá hitt og þetta þennan tíma en hættu að tæta viðfangsefni sín niður í flókna launaliði eins og nú virðist vera: ég á að fá þetta kaup fyrir að sitja fundi í x tíma á viku, þetta fyrir að kenna x tíma á viku, þetta fyrir að búa til glærur, þetta fyrir að semja próf... Ekkert benti til þess að viðmælandi Spegilsins skildi þann þankagang sem bjó að baki spurningunni um venjulega 40 stunda vinnuviku kennara eins og annarra. Ævintýri eru til í margvísleg- um gerðum og sjálfur þekki ég svolítið aðra gerð af sögunni um Unga litla en Elín nefnir þótt sorglegur endirinn sé að vísu sá sami: Einu sinni fékk Ungi litli þá hugmynd að himinninn væri að hrynja og hann yrði að forða sér í skjól. Hann lagði af stað í leiðangur og fékk alla með sér sem hann hitti – það var prúð og samtaka fylking sem þrammaði beint inn í greni refsins. Ég hélt alltaf að mórall sögunnar væri að gera ekki of mikið veður út af hlutunum, reyna að temja sér raunsæi og að hóphugsun, múg- æsing, geti leitt út í ógöngur og loks – sem ekki er síst um vert – að leggja ekki út í leiðangur án þess að vita hvernig hann muni enda. ■ E f eitthvað eitt hefur fært Íslendingum þau lífskjörsem þjóðin býr við í dag er það sú gæfa að mennta-hugsun náði að festa rætur meðal þjóðarinnar áður en hún varð í raun bjargálna. Þessi hugsun einkenndi ekki einungis forkólfa samfélags- ins, heldur sveif andi hennar yfir stórum hluta samfélagsins. Fjöldi íslensks alþýðufólks fékk í senn tækifæri og hafði metnað og löngun til að afla sér menntunar. Þannig eignaðist þjóðin á undraskömmum tíma menntaða millistétt sem verið hefur og mun verða hryggjarstykki samfélagsins. Samhliða uppbyggingu eigin menntakerfis hafa Íslending- ar notið aðgengis að menntakerfi annarra þjóða. Lánasjóður íslenskra námsmanna var ódýr aðgöngumiði samfélagsins að menntun meðal nágrannaþjóða okkar. Meðgjöf þessara þjóða er töluverð. Einkum hafa frændur okkar á Norðurlöndum lagt drjúgt af mörkum til menntunar þjóðarinnar með ókeyp- is menntun fyrir fjölda Íslendinga. Menntun Íslendinga víða um lönd hefur skapað hér suðu- pott hugmynda þar sem mætast straumar ólíkra þjóða. Margir eru þeirrar skoðunar að sá fjölþjóðlegi bakgrunnur sem einkennir forystu margra íslenskra fyrirtækja sé lykill- inn að velgengni þeirra í sífellt alþjóðlegra viðskiptaum- hverfi. Önnur ríkjandi skoðun er sú að fjárfesting nútímans í menntun þeirra kynslóða sem nú vaxa úr grasi muni ráða úrslitum um efnahagslega stöðu þjóðarinnar til framtíðar. Hátt menntunarstig, skýrar almennar leikreglur og frjáls- lynd viðhorf til athafnalífsins eru þrír lyklar að framtíðar- velgengni þjóðarinnar. Enginn þessara þátta er sjálfgefinn og um alla þarf að standa vörð. Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands, velti fyrir sér gildismati þjóðarinnar á tímum kennaraverkfalls við útskrift Háskólans um helgina. Niðurstaða Páls er sú að við van- metum gildi menntunar fyrir okkur sjálf og þjóðfélagið í heild um leið og við ímyndum okkur ranglega að við getum haldið uppi góðu menntakerfi með lægri tilkostnaði en mögu- legt er í reynd. Háskólarektor segir þetta háskalega vanmat benda til þess að við höfum ekki enn gert okkur ljósa grein fyrir menntabyltingunni sem gengur yfir heiminn. Orð Háskólarektors eru þörf áminning um að lengi býr að fyrstu gerð. Sá ávinningur sem íslenskt samfélag hefur í dag af góðri menntun landsmanna er ávöxtur metnaðar fyrri kynslóða. Sú kynslóð sem nú ræður ríkjum í samfélaginu verður metin síðar í þeim efnum. Menntun er vítt hugtak. Menntunin nær ekki einungis til þekkingar og færni, heldur einnig til grundvallarverðmæta í mannlegri tilveru; hvernig við skynjum okkur í samhengi við umheiminn. Núverandi Háskólarektor hefur verið iðinn við að benda á gildi andlegra verðmæta og mikilvægi þess að halda þeim til haga við mat á gildi menntunar. Hér ber því allt að sama brunni. Lífskjör framtíðarinnar, auk almennrar farsældar samfélagsins, hanga á þeirri spýtu að við lítum á menntun sem forgangsmál og vísustu leiðina til þess að skapa samfélag sem er ríkt af gæðum. Slík rök hljóta að vega þungt þegar leitað er lausna á deilumálum líðandi stundar. ■ 25. október 2004 MÁNUDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Háskólarektor hefur réttmætar áhyggjur af viðhorfum til menntunar. Hættulegt vanmat FRÁ DEGI TIL DAGS HIN VINSÆLU HEILSUÁTAKSNÁMSKEIÐ Ný námskeið að hefjast Skráning í síma 554 5488 eða 564 1766 sjk@sjk.is Einnig er boðið upp á stafagöngu og gönguhópa fyrir börn, unglinga og fullorðna ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Vanhæfir fréttamenn Stuðingsyfirlýsing Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu við kennara hefur farið fyrir brjóstið á Boga Ágústssyni, yfir- manns fréttasviðs stofnunarinn- ar. Hefur hann látið þau boð út ganga að stjórnar- menn fé- lagsins skuli ekki fjalla um kennaradeil- una. Róbert Marshall, formaður Blaða- mannafélagsins, sem er fréttamaður á Stöð 2, vildi að stjórn félagsins ályktaði um Sólbaksmálið en ekki náðist sam- staða um það mál. Róbert verður svo ekki umsjónarmaður Annáls ársins á Stöð 2 í fyrsta skipti í mörg ár og er ástæðan sú að hann hafi tekið svo af- dráttarlausa afstöðu í fjölmiðlamálinu að hann sé vanhæfur til að stýra ann- álnum. Jón Ásgeir kynnir Davíð Bresk blöð hafa að undanförnu mikið fjallað um strandhögg íslenskra fyrir- tækja á breskum markaði. Er gjarnan sagt að „víkingarnir“ séu komnir aftur. Hafa sjónir blaðanna einkum beinst að Baugi, Kaupþingi og Bakkavör. Velta blöðin fyrir sér hvernig á því standi að íslensku fyrirtækin séu svona öflug og er niðurstaða þeirra sú að það sé að þakka miklum hagvexti á Íslandi sem rekja megi til skynsamlegrar hagstjórn- ar undanfarinn áratug, einkavæðingar, skattalækkana og frjálsræðis í fyrir- tækjalöggjöf. Það má því segja að enginn kynni ár- angur Davíðs Oddssonar betur á alþjóðavett- vangi en Jón Ásgeir Jó- hannesson og félagar hans. gm@frettabladid.is Í DAG KENNARAVERKFALLIÐ GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON Ævintýri eru til í marg- víslegum gerðum og sjálfur þekki ég svolítið aðra gerð af sögunni um Unga litla en Elín nefnir þótt sorglegur endir- inn sé að vísu sá sami: Einu sinni fékk Ungi litli þá hugmynd að himinninn væri að hrynja... ,, Fylking á ferð SKOÐANIR OG UMRÆÐUR Á VISIR.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.