Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 14
14 25. október 2004 MÁNUDAGUR
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SESSELJA MAGNEA MATTHÍASDÓTTIR
„Það kemur fyrir að fólk hringir hingað
og vill koma á framfæri sínu hugmynd-
um um hvernig leysa eigi kennaradeil-
una,“ segir Sesselja Magnea Matthías-
dóttir, sem hefur ýmis störf með hönd-
um hjá Ríkissáttasemjara, meðal annars
að svara í síma og hella upp á könnuna
fyrir þaulsætnar samninganefndir. „Ann-
ars eru það mest fréttamenn sem
hringja hingað til að athuga hvernig við-
ræðurnar gangi,“ segir hún.
„Ég get trúað að það fari að minnsta
kosti 2-3 kaffipakkar hérna á góðum
degi, stundum meira. En eftir að vatns-
vélin var sett upp hérna hefur kaffi-
drykkjan minnkað. Það segir sig sjálft
að vatnið er miklu hollara fyrir fólk
heldur en kaffið. Hefur ekki kaffidrykkj-
an alltaf orsakað streitu?“
Maggý, eins og hún er alltaf kölluð, seg-
ir að kakóið sé líka mjög vinsælt hjá
fólkinu sem sækir ríkissáttasemjara
heim. Þá sé einnig boðið upp á vélar-
kaffi, svart eða með mjólk. En uppáhell-
ingur með gamla laginu verði líka að
vera til staðar.
„Auðvitað skapast ósjálfrátt spenna í
loftinu ef samningaviðræður eru á við-
kvæmu stigi. En maður vill helst standa
fyrir utan það. Okkur tekst það ágæt-
lega.“
Maggý er að byrja sitt áttunda starfsár
hjá Ríkissáttasemjara 1. nóvember.
„Ég kann alltaf jafn vel við þetta starf.
Hér er alltaf eitthvað um að vera, þótt
hér séu ekki samningafundir. Þá er bara
unnið í einhverju öðru. Hér liggur alltaf
nóg fyrir.“ -jss
Fimmtán
hendur á loft
Meiri- og minnihlutar í stjórnmálum koma sér sjaldnast saman um mál. Í atkvæða-
greiðslum er vaninn að meirihluti felli flest sem frá minnihlutanum kemur og
minnihlutinn segir oftast nei eða situr hjá þegar kosið er um tillögur meirihlutans.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Gjörvöll borg-
arstjórn Reykjavíkur var sam-
mála á fundi sínum á þriðjudag og
heyrir það til sérstakra tíðinda
þar sem yfirleitt er gjá, jafnvel
hyldjúp, á milli andstæðra fylk-
inga á þeim bænum. Borgarfull-
trúarnir fimm-
tán greiddu
allir sem einn
atkvæði með
tillögu um
áskorun til rík-
isstjórnarinn-
ar um að vinna
í góðu sam-
starfi við
sveitarfélögin
að því að efla
t e k j u s t o f n a
þeirra. Upp-
haflega bar
M a r g r é t
Sverrisdóttir,
Frjálslynda flokknum og óháðum,
tillöguna fram en Árna Þór Sig-
urðssyni, Reykjavíkurlistanum,
þótti ástæða til að umorða hana og
í kjölfar þess var hún samþykkt.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
Sjálfstæðisflokki, segir það koma
fyrir nokkrum sinnum að allir séu
sammála í borgarstjórn og rifjar
upp að fyrir um tveimur árum
hafi meiri- og minnihluti sam-
þykkt tvær tillögur hans sjálfs,
annars vegar um opnun sjóminja-
safns í borginni og hins vegar um
að borgin félli frá kauprétti á
félagslegum íbúðum á fyrir fram
ákveðnu verði. Í staðinn fá selj-
endur markaðsverð fyrir íbúðirn-
ar.
„Það er nú ekki alltaf bullandi
ágreiningur,“ segir Vilhjálmur og
bendir að auki á að innan nefnda
og ráða borgarinnar, t.d. í borgar-
ráði, séu mál oft afgreidd ein-
róma. Engu að síður heyrir til
undantekninga að mál séu af-
greidd með fimmtán samhljóða
atkvæðum í borgarstjórninni
sjálfri og þurfti Vilhjálmur t.d. að
fara tvö ár aftur í tímann til að
rifja upp það skipti sem það gerð-
ist síðast. En ekki eru allir alltaf á
móti, oft kjósa stjórnarandstæð-
ingar að sitja hjá. „Við gerum það
þegar þurfa þykir, t.d. í málum
sem varða fjármál, þau eru þá al-
gjörlega á ábyrgð meirihlutans.
Þetta tíðkaðist líka þegar við
sjálfstæðismenn vorum í meiri-
hluta, þá sat minnihlutinn oft hjá,“
segir borgarfulltrúinn. -bþs
VETURINN KOMINN Sjö stiga frost
var á Hveravöllum á hádegi í gær
en vindur hægur. Í fyrsta sinn í
langa tíma er fylgst með veðrinu
þar um slóðir með sjálfvirkum
hætti. Hveravellir eru í 641 metra
hæð yfir sjávarmáli.
29 AF BÆ 29 þingmenn sáu ekki
ástæðu til að vera við atkvæða-
greiðslu þegar fyrstu og einu lög
þess þings sem nú stendur yfir
voru samþykkt. Fjalla þau um
varnir gegn mengun hafs og
stranda.
Gildi jafnréttislaga
Fanný Gunnarsdóttir
Formaður Jafnréttisráðs
Gerð jafnréttisáætlana
Ingunn H. Bjarnadóttir
Sérfræðingur á Jafnréttisstofu
Jafnréttisáætlanir á markaði
María Ágústsdóttir
Viðskiptalögfræðingur
Fyrirtæki og jafnrétti
Ragnar Árnason
Forstöðumaður vinnumarkaðssviðs
Samtaka atvinnulífsins
Jafnréttisstefna Reykjavíkurborgar
Hildur Jónsdóttir
Jafnréttisráðgjafi Reykjavíkurborgar
Jafnréttisáætlanir í fyrirtækjum
Lind Einarsdóttir
Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs ALCAN
Ávarp félagsmálaráðherra
Árni Magnússon
Fundarstjóri:
Þórhallur Vilhjálmsson
Varaformaður Jafnréttisráðs
jafnréttisáætlanir
Grand Hótel
26. okt. kl. 14.00 – 16.30
M Á L Þ I N G U M
Skráning fer fram á www.jafnretti.is eða á Jafnréttisstofu í síma 460 6200
Árni Magnússon
Lind Einarsdóttir
Hildur Jónsdóttir
Ragnar Árnason
María Ágústsdóttir
Ingunn H. Bjarnadóttir
Fanný Gunnarsdóttir
Þórhallur Vilhjálmsson
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
13
7
5
2
„Bandaríkjamenn eiga alla mína sam-
úð fyrir að hafa kosið yfir sig þennan
Bush,“ segir Signý Jóhannesdóttir, for-
maður Verkalýðsfélagsins Vöku á Siglu-
firði, þegar hún er spurð um afstöðu
sína til Bandaríkjaforseta og forseta-
kosninganna sem fram undan eru í
Bandaríkjunum.
„Ég fæ þá tilfinningu að hann sé fljót-
fær og ekki nægilega vel gefinn. Ég
held líka að hann hafi vonda ráðgjafa,“
segir Signý.
„Ég er frekar vinstrisinnuð og mikið
fyrir samtryggingu og samhjálp en það
er ekki mikið fyrir henni að fara í
Bandaríkjunum. Dóttir mín er við nám
í Bandaríkjunum og er að reyna að
reka alla vini sína til að skrá sig sem
kjósendur. Ég er því með lítið útibú í
Bandaríkjunum þar sem verið er að
reyna að hafa áhrif,“ segir Signý.
Aðspurð segist hún ekki telja það
breyta miklu fyrir bandarískt þjóðfélag
ef John Kerry, frambjóðandi demókrata,
nái kjöri. „Stjórnmál í Bandaríkjunum
eru svo ólík því sem við eigum að venj-
ast hérlendis. Það er þó alveg á hreinu
að hann getur ekki orðið verri. Áherslur
hans eru örlítið meira í átt til samhjálp-
ar, enda hefur Kerry verið að tala um
alla þá Bandaríkjamenn sem hafa verið
að missa heilbrigðistryggingar undan-
farið. Hann leggur eilítið meiri áherslu á
velferðarkerfið,“ segir Signý.
SIGNÝ JÓHANNESDÓTTIR
Bandaríkjamenn eiga
alla mína samúð
SJÓNARHÓLL
KÍLÓIÐ AF ÝSUFLÖKUM MEÐ ROÐI
KOSTAR UM 826 KRÓNUR Um er ræða
meðalverð nokkurra fiskbúða í Reykjavík.
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
Hægri hönd ríkissáttasemjara
■ VEÐRIÐ ■ ALÞINGI
BORGARSTJÓRN REYKJAVÍKUR
Öll dýrin í skóginum voru vinir á þriðjudaginn var. Að minnsta kosti í einu máli.
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
Meirihlutinn var sam-
þykkur tveimur tillög-
um hans fyrir tveimur
árum.