Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 50
„Sökum þess að ég fagna nú 20 ára söngafmæli mínu vildi ég gera eitthvað skemmtilegt handa sjálfum mér og setti saman efnis- skrá sem er töluvert óvenjuleg og kom henni til forstjóra Corcoran- listamiðstöðarinnar í Washington sem tók henni fagnandi,“ segir Sigurður Bragason baritónsöngv- ari sem hélt ásamt Hjálmi Sig- hvatssyni tónleika í Armand Hammer Auditorium í Corocan Museum of Art í Washington, og hlutu tónleikarnir mjög góða dóma í Washington Post. „Söngur Sigurðar sameinaði á sjaldgæfan hátt hið nána og íhugula yfir- bragð ljóðasöngvarans og þá sjálfsöruggu návist og aðsóps- mikið látbragð óperusöngvar- ans,“ segir meðal annars í dómn- um sem skrifaður er af einum kröfuharðasta tónlistargagnrýn- anda Bandaríkjanna, Dr. Cecilia Porter, auk þess sem hún talar um rödd Sigurðar sem dásamlega og ákaflynda bassarödd. Efnisskráin samanstóð af úrvali íslenskra sönglaga eftir íslensk tónskáld. „Verkin eru frá einu af okkar elstu tónskáldum til eins þess yngsta,“ segir Sigurður. „Tónleikarnir voru haldnir í afskaplega fallegum sal og voru þeir mjög vel sóttir en að þeim loknum bauð sendiráðið hér í borg til móttöku,“ segir Sigurð- ur. Icelandic USA-fisksölufyrir- tækið bauð upp á íslenskar sjávarafurðir og var kvöldið sannarlega íslenskt því að auki hafði Sigurður með í för upplýs- ingarefni og geisladiska með ís- lenskri tónlist. „Okkur var mjög vel tekið í alla staði og hefur okk- ur Hjálmi verið boðið aftur til Washington-borgar á næsta ári til að halda aðra tónleika,“ segir Sigurður, sem er að vonum afar ánægður. Áður en Sigurður og Hjálmur héldu heim á leið komu þeir við í New York og héldu tón- leika í hinu glænýja Scandinavi- an House í New York. „Við kynntumst þar miklu af góðu fólki og var voðalega gaman að koma þangað,“ segir Sigurður. Aðspurður um hvað sé á döf- inni segir hann: „Tónverkamið- stöðin ætlar að gefa út disk með flutningi okkar á tónlistinni sem við fluttum þarna úti og svo hefur mér verið boðið að syngja í St. Johns’s Smith Square-salnum í London sem er einn virtasti tón- leikasalurinn þar í borg,“ segir Sigurður að lokum. ■ 18 25. október 2004 MÁNUDAGUR PABLO PICASSO Listmálarinn sérlundaði fæddist á þessum degi árið 1881, fyrir 123 árum. Dásamleg og ákaflynd bassarödd SIGURÐUR BRAGASON BARITÓNSÖNGVARI FAGNAR 20 ÁRA SÖNGAFMÆLI „Ah, góður smekkur! Skelfilegur hlutur! Smekkvísi er óvinur sköpunargáfunnar.“ - Það er líklega engu við þessa yfirlýsingu afmælisbarns dagsins að bæta. timamot@frettabladid.is AFMÆLI Ingibjörg Þorbergs, tónskáld og texta- höfundur, er 77 ára. Guðrún G. Bergmann er 54 ára. Þorsteinn Bachmann, leikari og leik- stjóri, er 39 ára. ANDLÁT Ágúst Marinó Þorsteinsson, dvalarheimilinu Ási, lést 11 .október. Guðný Ingunn Aradóttir, Kópnesbraut 5, lést 21. október. Dr. George Washington Simons III, lést 18. október. Stefán H. Ingólfsson, Melbæ 2, lést 21. október. JARÐARFARIR 13.30 Jón Arason Jónsson, Víðilundi 20, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju. 15.00 Hans Henrik Schröder, Lauta- smára 51, Kópavogi, verður jarð- sunginn frá Kópavogskirkju. 15.00 Bergþóra Benediktsdóttir, Hlíðar- húsum 3-5, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Grafarvogskirkju. SIGURÐUR BRAGASON Baritónsöngvari söng í Corcoran-listamiðstöðinni í Washington á dögunum og hlaut þar fádæma góða dóma frá einum harðasta tónlistargagnrýnanda Bandaríkjanna. Breska rokkhljómsveitin Rolling Stones kom fram í skemmti- þætti Eds Sullivan á þessum degi árið 1964 en þetta var í fyrsta sinn sem sveitin birtist bandarískum sjónvarpsáhorf- endum. Lagið (I Can’t Get No) Satisfact- ion komst á topp bandarískra vinsældarlista árið 1965 og síð- an þá hafa Stónsararnir dælt út vinsælum slögurum með nokk- uð reglulegu millibili þó útgáfan sé vissulega orðin nokkuð stop- ulli á síðustu árum. Félagarnir Mick Jagger og Keith Richards stofnuðu sveitina árið 1962 og ekki leið á löngu þar til þeir voru farnir að spila á bör- um og í næturklúbbum við góð- an orðstír víðs vegar um London. Rolling Stones gáfu út sína fyrstu smáskífu árið 1963 og urðu fljótt eyrnamerktir sem and-Bítlar en útlit þeirra og lifn- aðarhættir gerðu Bítlana einna líkasta kórdrengjum. Þrátt fyrir sukk og svínarí hefur sveitin haldið dampi öll þessi ár og þeir Jagger og Richards eru enn uppistandandi og halda áfram að rokka undir merkjum Rolling Stones 42 árum eftir að þeir stofnuðu hljómsveitina. 25. OKTÓBER 1964 Rolling Stones komu fram í banda- rísku sjónvarpi í fyrsta sinn. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1400 Rithöfundurinn Geoffrey Chaucer deyr, 57 ára að aldri. Hann var fyrsti skáld- ið sem var grafið í West- minster Abbey. 1917 Bolsévikar undir stjórn Leníns ná völdum í Rúss- landi. 1955 The Tappan Company kynnir örbylgjuofninn til sögunnar. 1962 Adlai Stevenson, sendi- herra Bandaríkjanna, sýnir Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna ljósmyndir sem sanna tilvist sovéskra eld- flaugaskotpalla á Kúbu. 1962 Bandaríski rithöfundurinn John Steinbeck hlýtur bók- menntaverðlaun Nóbels. 1983 Bandarískir hermenn ráð- ast inn í Grenada í kjölfar stjórnmálaumbrota í land- inu. Stones hjá Ed Sullivan Þorfinnur Ómarsson er 39 ára í dag. Íhugar tertuboð „Þetta er nú ekki mjög merkilegt afmæli, seinni talan endar á níu, og ég átti því ekki von á því að ein- hver myndi veita afmælinu at- hygli,“ sagði Þorfinnur Ómarsson þegar blaðamaður hringdi í hann til að spyrja hvað hann hygðist gera í tilefni dagsins. „Annars man ég aldrei hvað ég er gamall. Ég man þegar ég var lítill polli og var að þvælast með pabba sem var með sjö börn og hann hitti fólk sem benti á mig og spurði: „Hvað er þessi gamall?“ Mér finnst skrýtið að pabbi þurfti ætíð að hugsa sig um og reikna í hug- anum áður en hann svaraði. Í dag skil ég þetta mjög vel, ekki síst vegna þess að hann átti sjö börn.“ Þorfinnur segir enga reglu á því hvort hann haldi upp á afmæli sitt. „Það er misjafnt. Ég hef gam- an af að hitta fólk og bjóða því heim. En þar sem þetta er svo óspennandi afmæli, og mánudag- ur þar að auki, þá á ég ekki von á því að ég haldi sérstaklega upp á það. Og þó, kannski ég bjóði fjöl- skyldunni í tertur um kvöldið.“ Þorfinnur vinnur í Háskóla Ís- lands þar sem hann er verkefna- stjóri MA-náms í blaða- og frétta- mennsku og kennir tvo kúrsa í því námi: fréttamennsku og vinnu- brögð og siðareglur blaðamanna. „Mesta kennslan er á þriðjudög- um og miðvikudögum, þannig að mánudagarnir eru mjög annasam- ir hjá mér við undirbúning.“ kolla@frettabladid.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Bergþóra Benediktsdóttir Hlíðarhúsum 3-5, Reykjavík sem lést miðvikudaginn 13. október sl. verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánudaginn 25. október kl. 15.00. Jenný Ásmundsdóttir, Guðmundur Benediktsson, Hildur Hanna Ásmundsdóttir, Gylfi Jónsson, Jóhann Ásmundsson, Magnea Einars- dóttir, Benedikt Grétar Ásmundsson, Kristín Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ÞORFINNUR ÓMARSSON Afmælisdaginn ber upp á annasamasta dag vikunnar hjá honum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.