Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 25.10.2004, Blaðsíða 54
22 25. október 2004 MÁNUDAGUR FÓTBOLTI Endi var loks bundinn á sigurgöngu Arsenal þegar liðið mætti Manchester United á Old Trafford í gær en Arsenal hafði fyrir leikinn ekki tapað í 49 leikj- um í röð. Tvö mörk United í seinni hálfleik tryggðu liðinu þrjú mikil- væg stig og juku um leið til muna spennustigið á toppi ensku úr- valdsdeildarinnar. Leikur liðanna var afar harður enda var dagskipun beggja þjálf- ara að beita stífri pressu allan tímann og reyna þannig að koma í veg fyrir að hægt væri að setja upp beittar sóknir. Var allur fyrri hálfleikur í járnum og hafði dóm- ari leiksins í nógu að snúast enda hvergi meiri rígur þessa dagana en milli þessara tveggja liða. Raunveruleg tækifæri voru þó ótrúlega fá með tilliti til sóknar- manna þessara tveggja félaga. Manchester United var sterkara liðið í fyrri hálfleik og reyndi fimm sinnum af einhverri alvöru á markvörð Arsenal sem þó var vandanum vaxinn. Að sama skapi voru sóknarmenn Arsenal skeinu- hættir en aðeins eitt skot þeirra í fyrri hálfleik hitti rammann. Þar stóð Roy Carroll vaktina með prýði enda mikill orðrómur uppi um að Alex Ferguson hyggist kaupa sér nýjan markvörð. Seinni hálfleikur tilheyrði Arsenal að flestu leyti en skyndi- sóknir United reyndu þó alvarlega á styrka vörn liðsins. Það var úr einni slíkri sem dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu á Campbell fyrir að fella Rooney á 71. mínútu. Var nokkuð augljóst í endursýn- ingu í sjónvarpi að vítið var afar harður dómur. Markið hafði hins vegar úrslitaáhrif því United dró sig í vörn og leikmenn Arsenal drógu allt upp úr poka sínum sem hægt var á þeirri stundu. Það dugði þó ekki og á lokamínútu leiksins eftir þunga sókn Arsenal komust Rooney, Smith og Saha fram gegn fámennri vörn Arsenal og sókn þeirra lyktaði með marki Rooneys. Arsene Wenger var stoltur af sínum mönnum eftir leikinn en fannst dularfullt hvað Riley dóm- ari var samkvæmur sjálfum sér í leiknum. „Vítadómurinn skipti sköpum og það er undarlegt að þetta sé raunin í hvert sinn sem hann dæmir á Old Trafford.“ ■ ROTHÖGG UNITED Afmælisbarnið Wayne Rooney kom aldeilis við sögu í sigri Manchester á Arsenal. Brot á honum var tilefni víta- spyrnu sem Ruud van Nistelrooy skoraði úr og skömmu fyrir leikslok bætti hann sjálfur öðru marki við. Loks tapaði Arsenal Eftir að hafa spilað 49 leiki án taps kom loks að því að hlutirnir gengju ekki Arsenal í hag í ensku úrvals- deildinni. Liðið tapaði 2-0 fyrir erkifjendunum í Manchester United eftir umdeildan vítaspyrnudóm. HEYRÐU NÚ MIG... Arsene Wenger átti sitthvað vantalað við dómara leiks Manchester United og Arsenal eftir leik lið- anna í gær. Arsene Wenger: Óréttlætið sigraði FÓTBOLTI „Það er undarlegt hversu auðveldlega Riley dómari gefur þessar vítaspyrnur hér á Old Traf- ford,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir tapleik liðsins gegn Manchester United. Var hann ósáttur við dómarann vegna víta- spyrnudómsins sem að hans mati skipti sköpum í leiknum. „Það sjá allir sem horfa á upptökuna að það var lítil sem engin snerting og Rooney sjálfur fullyrti að varnar- mennirnir hefðu ekki snert hann.“ Wenger féllst þó ekki á að tap- ið hefði sálræn áhrif á lið sitt. „Þvert á móti er ég viss um að leikmenn mínir munu leggja sig enn meira fram. Hér sigraði órétt- lætið og þetta verður til að herða liðið enn frekar. Hvað aðdáend- urna varðar þá bið ég þá að vera rólega. Leiktíðin er nýhafin og við höfum eftir allt saman aðeins tap- að einum leik hingað til. Ég er fullviss um að við erum enn í öf- undsverðri stöðu á toppnum og hef ekki trú á að þetta hafi nein áhrif þegar fram líða stundir.“ ■ M YN D /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.