Fréttablaðið - 25.10.2004, Qupperneq 15
15MÁNUDAGUR 25. október 2004
TTT auglýsingastofa/Ljósm
.S
S
J
Mark
skrifstofustólar
Ótrúlegt verð!
Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla
frá Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili.
Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni.
Hægt er að velja um fjölda lita á áklæði.
Nú bjóðum við þessa stóla á frábæru kynningarverði.
Hæðarstilling á baki
Pumpa til að stilla
stuðning við mjóhrygg
Hæðarstillanlegir armar
Hallastilling á baki
Sleði til að færa setu
fram og aftur
Mjúk hjól
Hæðarstilling á setu
og baki
Hægt er að stilla stífleika setu
og baks eftir þyngd notanda
Veltustilling á setu og baki
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR!
30%
Mark 20 Kr.25.340
Mark 10 Kr.13.930
Mark 30 Kr.38.570
Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum
Skjár einn á Hvammstanga:
Gríðarleg
eftirvænting
FJÖLMIÐLAR Íbúar Hvammstanga
fögnuðu vel og innilega á dögun-
um þegar þeim bárust fregnir af
þeirri áætlan Símans að miðla
Skjá einum til þeirra í gegnum
ljósleiðara. „Ég get ekki beðið,“
segir Hulda Jóhannesdóttir,
starfsmaður í Söluskálanum á
Hvammstanga, en hún ferðast
tugi kílómetra oft í viku til að ná
útsendingu stöðvarinnar. Sést hún
á bæjum sem eru í beinni sjónlínu
við Blönduós. Knattspyrnukapp-
arnir í Kormáki eru samt hvað
spenntastir enda vilja þeir ólmir
geta fylgst með enska boltanum.
Nöguðu þeir sig í handarbökin
eftir að hafa misst af þrennu Eiðs
Smára á laugardag. ■
Ísland og Lappland í eina sæng?
Holtasóley er
þjóðarblóm Sama
ÞJÓÐARBLÓMIÐ Sömum brá í brún
þegar Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra tilkynnti heims-
byggðinni á föstudag að Íslend-
ingar hefðu valið sér holtasóley
sem þjóðarblóm. Holtasóleyin
hefur nefnilega verið þjóðarblóm
í Lapplandi um árabil enda afar
algeng þar í landi. Raunar kom
það eintak af blóminu, sem fyrst
var lýst sem tegund, frá Lapp-
landi. Var það árið 1737. Frá
þessu greinir Ágúst H. Bjarnason
grasafræðingur á heimasíðu sinni
en hann er þeirrar skoðunar að
klófífa væri heppilegust sem
þjóðarblóm Íslendinga.
Sigurður Helgi Guðjónsson
lögmaður er af Sömum kominn og
er himinlifandi yfir því að Íslend-
ingar hafi leitað til Samanna eftir
þjóðarblómi. „Ég fagna þessu
mjög, þetta hlýtur að vera fyrsta
skrefið í átt að sameiningu Ís-
lands og Lapplands,“ sagði Sig-
urður Sami í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
Um 200 þúsund manns búa í
Lapplandi sem, eins og stendur,
tilheyrir Finnlandi. - bþs
Bókamarkaður:
Tinni á tombóluprís
BÆKUR Íslendingar hafa lesið um
svaðilfarir Tinna af mikilli áfergju
síðustu áratugi en margar af bókun-
um um Tinna og félaga hans hafa
verið ófáanlegar um árabil. Fjórar
þeirra hafa nú verið gefnar út að
nýju og geta aðdáendur Tinna og
Kolbeins kafteins tryggt sér þær á
bókamarkaði Fjölva sem fram fer
þessa dagana að Skútuvogi 6.
Að sögn Vilhelmínu Sigurðar-
dóttur hjá Fjölva hafa vinsældir
blaðamannsins skelegga snaraukist
á undanförnum árum eftir nokkra
lægð og kaupa börn jafnt sem full-
orðnir bækurnar. Hún segir einnig
mikið spurt um ævintýri Lukku-
Láka og Palla og Togga. - shg
FJÁRSJÓÐUR RÖGNVALDAR RAUÐA
Að venju lendir Tinni í æsilegum ævintýrum í bókinni sem hefur verið gefin út á ný.
Dagný Jónsdóttir, þingmaður Framsókn-
arflokksins, sagði á Alþingi á miðvikudag
að flokkurinn hefði ekki tekið afstöðu til
þess hvort hann féllist á skólagjöld í
sameinuðum háskóla Tækniháskólans,
þar sem innritunargjöld hafa tíðkast, og
Háskóla Reykjavíkur, þar sem skólagjöld
leyfast. Stjórnarandstæðingar reyndu að
knýja fram afstöðu flokksins en höfðu
ekki árangur sem erfiði.
Hefur afstaða þín til skólagjalda
breyst?
Nei. Það hafa engar aðstæður í þjóð-
félaginu breyst þannig að það kalli á
breytta stefnu. Mín skoðun er áfram sú
að skólagjöld komi ekki til greina í
grunnnámi í ríkisreknum háskólum eða í
framhaldsskólum.
Hvað réttlætir hærri gjöld í leikskóla
en háskóla?
Það er þessi ákveðna hefð fyrir því að
foreldrar greiði fyrir dagvistun barna
sinna. Á leikskólum er veitt annars konar
þjónusta; fyrir utan kennslu er þar af-
þreying og þau fá mat. Síðan er það að
mestu vinnandi fólk sem greiðir gjöldin.
Stúdentar fá til dæmis afslátt. Einnig
verður að horfa til þess að leikskólagjöld
eru tekjustofn fyrir sveitarfélögin.
Þarf Framsóknarflokkurinn ekki
stefnu varðandi skólagjöld?
Framsóknarflokkurinn er með skýra
stefnu. Hann hafnar skólagjöldum í
grunnnámi í ríkissreknum háskólum.
DAGNÝ JÓNSDÓTTIR
Ekki tekið afstöðu
SKÓLAGJÖLD
SPURT & SVARAÐ