Fréttablaðið - 25.10.2004, Qupperneq 42
26 25. október 2004 MÁNUDAGUR
„Ég tryggði mér strax íbúð á efstu
hæðinni,“ segir Auður Anna Ing-
ólfsdóttir hótelstjóri, sem keypti
fyrstu íbúðina í fyrsta eiginlega há-
hýsinu á Austurlandi, er stendur
við Kelduskóga á Egilsstöðum.
Kaupin voru gerð í janúar árið 2003
og „þá var ekki einu sinni komin
hola,“ eins og Auður orðar það.
Húsið er sjö hæðir og var formlega
tekið í notkun nýlega er Malar-
vinnslan hf. afhenti nýjum eigend-
um tvær fyrstu íbúðirnar. Samtals
er þar 21 íbúð, eða þrjár á hverri
hæð. Þær eru af tveimur stærðum
og auk þess eru sérgeymslur fyrir
hverja íbúð í kjallara hússins og
sameiginlegar geymslur.
Íbúð Auðar er 90 fermetrar að
stærð og hún verður tilbúin eftir
tvær vikur eða svo. „Ég var að láta
breyta nokkrum atriðum eftir
mínu höfði og þess vegna dregst
þetta aðeins,“ segir Auður salla-
róleg og finnst ekkert liggja á þótt
hún hlakki til að flytja inn. Hún
kveðst hafa búið á Héraði í sex ár
en hafa alist upp í Reykjavík. „Mér
finnst forréttindi að búa hér og
langar ekki til Reykjavíkur aftur,“
segir hún afdráttarlaust. Hún segir
nýja háhýsið standa á fallegum
stað, rétt við aðalútivistarsvæði
Egilsstaðabúa, Selskóga. „Svo er
þetta hæfilega langt frá miðbæn-
um og ekkert mál að hlaupa í kaup-
félagið,“ segir Auður. Hún kveðst
fagna því að verða í viðhaldsfríu
húsnæði og ekki spilli að hafa út-
sýni yfir hið rómaða Fljótsdalshér-
að, allt til Snæfells.
Fasteigna- og skipasala Aust-
urlands hefur sölu íbúða í húsinu
með höndum og þegar hefur ríf-
lega þriðjungur þeirra verið seld-
ur. Þær verða afhentar eigendum
sínum á næstu vikum. ■
Blokkin við Kelduskóga á Egilsstöðum
trónir hátt yfir aðrar byggingar í hverf-
inu.
Auður A. Ingólfsdóttir hótelstjóri keypti fyrstu íbúðina í háhýsinu við Kelduskóga og
fékk blóm af því tilefni þegar húsið var formlega tekið í notkun. Með henni á mynd-
inni eru Hilmar Gunnlaugsson hjá Fasteigna- og skipasölu Austurlands og Hannah
og Steven Gibbson.
M
YN
D
/Á
G
Ú
ST
Ó
LA
FS
SO
N
.
Sími 590 9500
Borgartún 20, 105 Reykjavík
www.thingholt.is
Anna Sigurðardóttir lögg. fasteignasali
OPIÐ VIRKA DAGA 9.00-18.00, FÖSTUDAGA 9.00-17.00 OG Á LAUGARDÖGUM 12.00-14.00
Þorarinn
Kópsson
Framkv.stjóri
Sigurbjörn
Skarphéðins.
Lögg. fast.sali
Kjartan
Kópsson
Sölumaður
Margrét
Kjartansdóttir
Ritari
Páll Valdimar
Kolka
Sölumaður
Skúli A.
Sigurðsson
Sölumaður
Þóra
Þrastardóttir
Sölumaður
Skúli Þór
Sveinsson
Sölumaður
Anna
Sigurðardóttir
Lögg. fast.sali
3JA HERB.
ASPARFELL 111 REYKJAVÍK
93,4 fermetra þriggja herbergja íbúð á 6 hæð
í lyftuhúsi, ásamt bílskúr.
B.B.Mat: 12.339.000,
Fasteignamat: 10.999.000,
Ásett verð: 13.000.000,
3JA HERB.
LANGAHLÍÐ 105 REYKJAVÍK
103 fm, þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð,
með aukaherbergi í risi.
B.B.Mat: 11.538.000
Fasteignamat: 11.194.000
Ásett verð 14.500.000
2JA OG 3JA HERB. 3JA HERB.
GRANDAVEGUR 107 REYKJAVÍK 100
fermetra þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð.
B.B.Mat: 11.006.000,
Fasteignamat: 11.776.000,
Ásett verð: 15.400.000,
SUMARBÚSTAÐIR
TORREVIEJA SPÁNI RAÐHÚS
1 Hæð: opið eldhús með góðri innréttingu,
stofa og gestasalerni. 2 Hæð:
Gott hjónaherbergi þaðan er gengið út á sval-
ir, gestaherbergi með
flísum á gólfi, baðherbergi flísalagt í hólf og
gólf. Með húsinu fylgir hlutdeild sundlaug.
Kaupendaþjónusta
----------------------
Ertu að leita að íbúð á ákveðnu svæði? Þá bjóðum við hjá þingholt upp á frábæra
þjónustu, við einfaldlega leitum fyrir þig á þeim stað sem að þú vilt vera í þeim
húsum sem að þú vilt búa og allt þér að kostnaðarlausu.
Með kveðju starfsfólk Þingholts.
Sími 590 9500
EINBÝLI
KLETTAGATA 220 HAFNARFJÖRÐUR
350 fermetra níu herbergja einbýlishús.
B.B.Mat: 37.936.000,
Fasteignamat: 28.373.000,
Ásett verð: 39.000.000,
EINBÝLI
LAUFÁSVEGUR 101 REYKJAVÍK
265 fermetra sjö herbergja einbýlishús á
þremur hæðum.
B.B.Mat: 35.214.000,
Fasteignamat: 32.351.000,
Ásett verð: 55.000.000,
EINBÝLI
HÁALEITISBRAUT 108 REYKJAVÍK 291,1
fermetra 11 herbergja einbýlishús á tveim
hæðum:
B.B.Mat: 32.673.000
Fasteignamat: 26.485.000
Ásett verð: 57.000.000
RAÐ- OG PARHÚS
RAÐHÚS ÖGURÁS GARÐABÆ 146,6 Fer-
metra 5 herbergja raðhús.
B.B.mat: 20.927.000,
Fasteignamat: 17.858.000,
Ásett verð: 24.900.000,
4RA TIL 7 HERB.
KRUMMAHÓLAR 111 REYKJAVÍK
126,9 fermetra sex herbergja tveggja hæða
íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi.
B.B.Mat: 15.286.000,
Fasteignamat: 13.740.000,
Ásett verð: 15.900.000,
VERÐMETUM EIGNIR
VEGNA LÁNTÖKU.
ARNARHRAUN 220 HAFNARFIRÐI
82,4-113,5 fermetra, tveggja og þriggja her-
bergja íbúðir með sérinngang í nýstand-
settu húsi.
Ásett verð: 14,7-16,4 millj.
Fyrsta háhýsi Austurlands:
Ekkert mál að hlaupa í kaupfélagið