Fréttablaðið - 25.10.2004, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Viltu miða á 99 kr.?
Sendu SMS skeytið JA APF á
númerið 1900 og Þú gætir unnið.
99 kr/skeytið
Munaðarlaust
verkfall
Allir vita að það eru engintakmörk fyrir þeirri vit-
leysu sem getur oltið upp úr
ráðherrum, ekki síst ef þeir
eru nýir í starfi og ekki ennþá
almennilega komnir upp á lag
með að segja ekki nokkurn
skapaðan hlut í löngu máli og
halda ennþá að það sé nóg að
gera einfaldlega lygamerki
fyrir aftan bak. Til dæmis
hrökk það óvart upp úr Þor-
gerði Katrínu menntamálaráð-
herra fyrir helgi að hugsanleg
lausn á fjárhagsvanda sveitar-
félaga vegna rekstrar grunn-
skóla gæti verið að flytja skól-
ana aftur í umsjá ríkisins.
RÁÐHERRANUM er nokk-
ur vorkunn. Hún er nýbúin að
fá þessa vinnu og var stödd
utanbæjar og maður á ekki því
að venjast að það sem talað er
um við fólk í dreifbýli utan
höfuðborgarinnar teljist til tíð-
inda. En nú til dags er maður
hvergi óhultur og þessi sak-
leysislegu ummæli komust í
fréttir og hafa valdið miklu
fjaðrafoki.
FORMAÐUR Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga hrökk í
kút og hóaði í fjölmiðla til að
tilkynna að hann skildi ekki
þessi ummæli þótt öllum öðr-
um þyki þau auðskilin, og fór
fram á að menntamálaráðherr-
ann notaði helgina til að sjóða
saman trúlegar útskýringar á
því að hún hafi meint eitthvað
allt annað en hún sagði. Og það
verður að sjálfsögðu ákaflega
skemmtilegt að heyra þær út-
skýringar.
FYRIR UTAN að vera eitt-
hvert mesta klúður sem Ís-
lendingar hafa lent í á seinni
árum er kennaraverkfallið
brjóstumkennanlegur munað-
arleysingi sem enginn kærir
sig um að bera ábyrgð á. Ekki
benda á mig, segja allir sem
eru spurðir út í þetta verkfall.
Kennarar áttu ekki annars úr-
kosta en að fara í verkfall,
segja kennarar. Sveitarfélögin
hafa ekki efni á að borga kenn-
urum þau laun sem þeir fara
fram á, segja sveitarfélögin.
Rekstur grunnskóla er ríkinu
allsendis óviðkomandi, segir
ríkisstjórnin. Og meira að
segja ríkissáttasemjari er
búinn að fá sig fullsaddan eftir
að sáttatillögu hans var hafnað
og er búinn að gefa hálfsmán-
aðarfrí frá pexinu. Í staðinn
fyrir að sverja fyrir krógann
væri nær að allir aðilar tækju
sig saman um að leysa kjara-
vanda kennara svo að aldrei
aftur komi til kennaraverk-
falls. Nógir eru víst helvítis
peningarnir, eins og maðurinn
sagði. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR