Fréttablaðið - 09.11.2004, Page 32
Í dag kl.13 mun hefjast fjöl-tefli í félagsheimili aldraðraað Vesturgötu 7 en Sigmund-
ur Hansen hefur átt veg og vanda
að undirbúningi fjölteflisins og
segist hann gera þetta til að
hleypa lífi í húsið sem sé stór-
kostlegur staður fyrir fólk að
koma saman og hittast.
„Ég vil kveikja undir skák-
áhuga hérna í húsinu og fá sem
flesta til að koma hingað reglu-
lega og tefla. Fólk á öllum aldri er
velkomið og er það mesti mis-
skilningur að húsnæðið sé bara
fyrir aldraða,“ segir Sigmundur
en hópar frá Vin á Hverfisgöt-
unni og Geðvernd og fleiri stöð-
um munu koma til með að taka
þátt í skákinni í dag og mun skák-
meistarinn Henrik Danielsen
tefla við fólkið. „Ég talaði upp-
haflega um þetta við þá hjá
Hróknum og tóku þeir vel í þetta
en Henrik kemur einmitt þaðan,“
segir Sigmundur. „Geðvernd mun
einnig koma hingað með kórinn
sinn og verður hér heilmikið
húllumhæ í tilefni dagsins,“ segir
Sigmundur hinn kátasti.
„Meiningin er að hvetja fólk
sem veit ekki hvað það á að gera
við daginn sinn að koma til okkar
að tefla. Þarna er alltaf kaffi og
matur í hádeginu og allt til alls.
Á föstudögum getur fólk komið
og sungið saman því þá er spilað
á flygilinn og við bjóðum alla
velkomna, og verð ég að minnast
á að starfsfólkið er einstakt
þarna,“ segir Sigmundur og
bætir því við að húsið sé svo vel
staðsett og ýmislegt sem fari þar
fram og allir ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi.
„Hér er postulínsmálun, kera-
mik, dans, og heilmargt fleira
sem hægt er að gera sér til
skemmtunar. Ég hef til að mynda
séð um að skipuleggja göngur og
kenni hérna útskurð,“ segir Sig-
mundur sem vill ítreka það að all-
ir sem áhuga hafa eru velkomnir
að koma og tefla í dag og stendur
svo til að tefla í hverri viku hér
eftir. „Ég vil sjá til þess að stað-
urinn sé líflegur og gaman sé að
koma hingað,“ segir Sigmundur.
kristineva@frettabladid.is
24 9. nóvember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
CARL SAGAN
Stjörnufræðingurinn sem færði okkur alheim-
inn heim í stofu með sjónvarpsþáttunum
Cosmos fæddist á þessum degi árið 1934.
Söngur og stórmeistari
„Ímyndunaraflið flytur okkur oft til
heima sem eiga sér hvergi stað.
En án þess færum við hvergi.“
- Carl Sagan var sannkallaður skýjaglópur í
bestu merkingu þess orðs.
timamot@frettabladid.is
SIGMUNDUR HANSEN Fjöltefli verður í dag í félagsheimili aldraða að Vesturgötu 7 sem
Sigmundur hefur séð um að skipuleggja. „Ég vil kveikja undir skákáhuga hérna í húsinu
og fá sem flesta til að koma hingað reglulega og tefla.“
Fimmtán ár eru í dag liðin frá því
að stjórnvöld í Austur-Þýskalandi
létu undan þrýstingi almennings
og opnuðu hlið Berlínarmúrsins
upp á gátt. Þau fylgdu þar for-
dæmi ungverskra stjórnvalda,
sem höfðu opnað landamæri sín
fáeinum vikum fyrr.
Austur-Þjóðverjum hafði í fjóra
áratugi að mestu verið bannað
að ferðast yfir til Vestur-Þýska-
lands, augljóslega til þess að
fyrirbyggja fjöldaflótta úr landinu.
Hins vegar höfðu Austur-Þjóð-
verjar hindrunarlítið mátt ferðast
til annarra austantjaldslanda,
þar á meðal til Ungverjalands,
þannig að múrinn þjónaði litl-
um tilgangi eftir að hægt var að
komast til Vestur-Þýskalands í
gegnum Ungverjaland og Aust-
urríki.
Vikurnar á undan höfðu miklar
sviptingar verið í austur-þýskum
stjórnmálum, kommúnista-
stjórnin var smám saman að
missa völdin og gat ekki lengur
staðið gegn háværum kröfum
almennings um lýðræði.
Múrinn illræmdi var opnaður að
kvöldi fimmtudagsins 9. nóvem-
ber árið 1989. Strax daginn eftir
fóru að heyrast hamarshögg hv-
arvetna við múrinn, þegar fólk
byrjaði að rífa hann niður smátt
og smátt, margir til að næla sér
í brot úr múrnum til minningar
um þetta undarlega fyrirbæri í
sögu Þýskalands.
3. október 1990 voru Austur- og
Vestur-Þýskaland svo sameinuð
í eitt ríki.
9. NÓVEMBER 1989: Eftirlíking af
múrnum illræmda var reist nýverið í
Berlín, fimmtán árum eftir fall hans.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1918 Vilhjálmur II Þýska-
landskeisari skýrir frá því
að hann muni segja af
sér.
1923 Tilraun þýskra nasista til
valdaráns í München er
barin niður af lögreglu.
1938 Þýskir nasistar fara ræn-
andi og ruplandi, myrð-
andi og meiðandi um
fyrirtæki og heimili þýskra
gyðinga á „Kristalsnótt-
inni“ svonefndu.
1956 Jean-Paul Sartre afneitar
kommúnistum í kjölfar
innrásar sovéska hersins í
Ungverjaland.
1961 Brian Epstein hittir Bítlana
í fyrsta sinn.
1965 Rafmagn fer af New York
og öllum norðausturhluta
Bandaríkjanna.
Hlið Berlínarmúrsins opnuð
Egill Helgason sjónvarps-
maður er 45 ára.
AFMÆLI
Guðrún Rafnsdóttir, Skjóli, lést 25.
október. Útförin hefur farið fram í kyrr-
þey.
Jón Kristinn Kristinsson, Eystra Íragerði,
Stokkseyri, lést 5. nóvember.
María Skagan lést þriðjudaginn 2. nóv-
ember.
ANDLÁT
JARÐARFARIR
14.00 Óli Helgi Ananíasson, Merkigerði
21, Akranesi, verður jarðsunginn
frá Akraneskirkju.
14.00 Vilhjálmur Páll Garðarsson, Vana-
byggð 19, Akureyri, verður jarð-
sunginn frá Glerárkirkju.
15.00 Jóhanna Ásgeirsdóttir, Barónsstíg
31, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
15.00 Kristján Björn Guðmundsson, frá
Ísafirði, áður Grandavegi 47,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Neskirkju.
15.00 Pétur Þórsson, Marbakkabraut 38,
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju.
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 11. nóvem-
ber klukkan 13.30.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jónína Jónsdóttir
frá Brávöllum, Byggðavegi 136, Akureyri,
Kristján Pétursson, Þórkatla Sigurbjörnsdóttir,
Pétur Ágúst Pétursson, ömmu- og langömmubörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Jón Júlíusson
kaupmaður, Skúlagötu 40a,
Júlíus Þór Jónsson, Agnes Viggósdóttir, Sigrún Alda Jónsdóttir, Gunnar
Þór Guðmannsson, Rut Jónsdóttir, Árni M. Heiðberg, Einar Örn Jóns-
son, Guðný Magnúsdóttir, Jón Þorsteinn Jónsson, Sigrún Karlsdóttir
og barnabörn.
lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt mánudagsins
8. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda,
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Helgi Jökulsson
lést að heimili sínu Vogatungu 81, sunnudaginn 7. nóvember.
Margrét Scheving Kristinsdóttir, Helgi Örn Ingólfsson, Annette Ingólfs-
son, Guðjón Haukur Ingólfsson, Sigurlína Sch. Elíasdóttir, Jón Haukur
Eltonsson, Olgeir Einarsson, Unnur Skúladóttir, Hólmfríður Einars-
dóttir, Sævar Hafsteinsson, Kristinn Einarsson, Ágústa Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
lést á sjúkrahúsinu á Selfossi þann 7. nóv. síðastliðinn. Útförin fer
fram frá Akraneskirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 14.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús S. Guðmundsson
Frumskógum 5, Hveragerði,
Börn, tengdabörn, afabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar,
Gunnars Hauks Eiríkssonar
Flétturima 6.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13D, Landspítalanum við
Hringbraut fyrir einstaka umönnun og til Sjómannafélags Reykja-
víkur fyrir þá virðingu sem þeir sýndu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gíslína Erna Einarsdóttir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
SIGMUNDUR HANSEN HEFUR SKIPULAGT FJÖLTEFLI AÐ VESTURGÖTU 7 Í DAG.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Tilkynningar um andlát og jarðarfarir
eru velkomnar á síður Fréttablaðsins.
Sími: 550 5000