Fréttablaðið - 28.11.2004, Blaðsíða 6
6 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Árshátíð í Háskólabíói:
Hundruð blaðbera skemmtu sér saman
HÁTÍÐ Árshátíð blaðbera Frétta-
blaðsins var haldin á laugardag-
inn í Háskólabíói. Margt var um
manninn á hátíðinni og sá Jónsi,
söngvari hljómsveitarinnar Í
svörtum fötum, um veislustjórn,
ásamt því sem hann kom fram
með hljómsveitinni.
Blaðberar Fréttablaðsins eru á
öllum aldri og hlutu 200 blaðberar
verðlaun fyrir framúrskarandi
vinnu og dugnað. Meðal vinninga
voru tölvur og Friends-spilið. Há-
tíðin lagðist vel í blaðberana og
vakti hljómsveitin mikla lukku.
Sigríður Inga Eysteinsdóttir hóf
feril sinn sem blaðberi núna í nóv-
ember og er hún mjög ánægð með
nýja starfið. „Mér finnst þetta fínt
starf og ekkert erfitt að vakna,
þetta venst bara.“
Kristinn Sveinsson er búinn að
vinna fyrir blaðið í tvö og hálft ár
og erfiðast finnst honum að drífa
sig af stað á morgnana. Hann var
þó ekki nógu sáttur við það að
ekkert væri dansgólfið: „Mér
finnst vanta ballgólf því Í svört-
um fötum er frábær hljómsveit og
það ætti að vera hægt að dansa
við tónlistina þeirra.“ ■
Mafían í Nígeríu
undir smásjána
Embætti Ríkislögreglustjóra og tollyfirvöld taka þátt í norrænni rann-
sókn á smygli nígerísku mafíunnar á fólki og eiturlyfjum frá Nígeríu til
Norðurlandanna undir yfirskriftinni Projekt Sunrise.
LÖGREGLAN Talsvert er um smygl
á eiturlyfjum og fólki frá Níger-
íu og öðrum löndum Vestur-Afr-
íku til hinna Norðurlandanna,
sérstaklega Danmerkur og Sví-
þjóðar. Einkum hefur smygl á
konum í vændi farið vaxandi. Ís-
lenska lögreglan telur ástæðu til
að fylgjast með og taka þátt í
rannsókn á þessari þróun þó að
yfirvöld hérlendis hafi lítið sem
ekkert orðið vör við smygl á
fólki hingað til lands. Rannnsókn
íslensku lögreglunnar mun því
fyrst og fremst beinast að
fjársvikamálum en þau koma
upp reglulega og fara þá í rann-
sókn hjá efnahagsbrotadeild
Ríkislögreglustjóra og lögregl-
unni í Reykjavík.
„Það má segja að með þessu
sé verið að setja Vestur-Afríku
og skipulagða glæpastarfsemi
undir smásjána í meira mæli en
verið hefur, en borið hefur á því
að vændi og eiturlyf hafi verið
að aukast á hinum Norðurlönd-
unum. Hér á landi hefur sést
fólk frá Vestur-Afríku sem vakn-
að hafa grunsemdir um en ekki í
þeim mæli að það sé neitt vanda-
mál hér. Við njótum þess hve lít-
ið land og einangrað við erum.
Við erum meira í þessu sam-
starfi til fróðleiks og upplýsing-
ar,“ segir Smári Sigurðsson,
yfirmaður alþjóðadeildar hjá
Ríkislögreglustjóra.
Ákveðið var að fara í þetta
átaksverkefni á fundi norrænu
lögregluembættanna hér á landi
í haust og er verkefnið því að-
eins nýhafið. Smygl á fólki og
eiturlyfjum frá Afríku hefur
farið sívaxandi í Evrópu á síð-
ustu árum.
ghs@frettabladid.is
HÚSABAKKASKÓLI
„Fólk flytur hingað mikið út af þessum
skóla,“ segir Hjörleifur Hjartarson, stað-
gengill skólastjóra í Húsabakkaskóla.
Húsabakkaskóli:
Hefur þýð-
ingu fyrir
byggðina
SKÓLAMÁL Húsabakkaskóli hefur
þýðingu fyrir byggð í Svarfaðar-
dal að sögn Hjörleifs Hjartarson-
ar, staðgengils skólastjóra í Húsa-
bakkaskóla.
„Verði skólinn lagður niður
hafi það þau áhrif á byggðaþróun
hér að það væri verr af stað farið
en heima setið,“ segir Hjörleifur.
„Venjulegur landbúnaður hefur
dregist saman í dalnum en í stað-
inn hefur komið fólk sem hefur
vinnu óháð búsetu. Fólk flytur
hingað mikið út af þessum skóla.
Þetta er svona skóli sem fólk vill
gjarnan hafa börnin sín í.“
Húsabakkaskóli er sveitaskóli
með tæplega 50 börnum. Að auki
er rekin leikskóladeild við skól-
ann. Starfsmenn eru tíu. - ghs
VEISTU SVARIÐ?
1Hvað heitir bæjarstjóri Seltjarnarnes-bæjar?
2Hvar vilja borgaryfirvöld og bæjar-yfirvöld á Seltjarnarnesi reisa nýtt
hjúkrunarheimili?
3Inn í hvaða íslenska sendiráð ruddustandstæðingar Kárahnjúkavirkjunar?
Svörin eru á bls. 34
edda.is
Spennandi og skemmtileg saga
fyrir alla krakka eftir Bubba
Morthens og Robert Jackson
með glæsilegum myndum
Halldórs Baldurssonar.
Bubbi Morthens Robert Jackson
6. sæti
Börn og unglingar
Félgasvísindastofnun
16. – 22. nóv.
30%
afsláttur
Síðustu dagar
JACQUES CHIRAC
Forsætisráðherra Frakklands sagði þetta
vera dapurlegan dag.
Franskir gíslar í Írak:
100 dagar
liðnir
FRAKKLAND, AP Þess var minnst víða
í Frakklandi í gær að 100 dagar eru
síðan frönsku blaðamennirnir
Christian Chesnot og Georges Mal-
brunot voru teknir í gíslingu í Írak.
Í leiðurum franskra dagblaða
var fjallað um málið og leikkonan
Isabelle Adjani hvatti til þess í út-
varpsviðtali að gíslarnir yrðu látn-
ir lausir. Jacques Chirac, forsætis-
ráðherra Frakklands, sagði þetta
vera dapurlegan dag. Hann sagði
tíma til kominn að gíslatökumenn-
irnir veittu blaðamönnunum frelsi
á ný. ■
■ NORÐURLÖND
INFORMATION MINNKAR Infor-
mation verður á þriðjudag fyrst
danskra breiðsíðublaða til að
minnka brot sitt og hefja útgáfu í
minna broti, svipuðu því og ís-
lensk blöð eru gefin út í. Fjölda
evrópskra dagblaða hefur verið
breytt úr breiðsíðuformi í minna
formið, einkum þó í Bretlandi,
Þýskalandi og Svíþjóð.
Snákatemjarar:
Hóta með
snákum
INDLAND, AP Indverskir snákatemj-
arar hóta að sleppa baneitruðum
snákum í þinghúsi indverska fylk-
isins Orissa ef yfirvöld þar halda
fast í bann við snákasýningum á
gangstéttum.
Nokkrir snákatemjarar voru
handteknir í Bhubaneshwar, höfuð-
borg Orissa, þar sem þeir voru með
ólöglegar sýningar og var hald lagt
á snákana. Snákatemjarar hafa
brugðist illa við þessu og hóta að-
gerðum. „Við lendum í þeirri stöðu
að geta ekkert annað gert en að
sleppa nærri fimm þúsund eitruð-
um snákum okkar í stjórnarbygg-
ingum,“ sagði Kedar Das, einn
snákatemjaranna. ■
SVEITARSTJÓRNARMÁL Svanhildur
Árnadóttir, oddviti Sjálfstæðis-
flokks í bæjarstjórn Dalvíkur-
byggðar, segir að fulltrúar bæði
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks hafi slegið af sínum kröfum
hvað varðar skólamál í Dalvíkur-
byggð, því allt hafi stefnt í stjórn-
arkreppu í sveitarfélaginu. „Sú
staða var uppi að I-listi og Fram-
sókn náðu ekki samkomulagi. Odd-
viti I-lista var búinn að afboða fund
við mig síðasta sunnudag, hálftíma
fyrir fund, og sagði tilgangslítið að
ræða við okkur.“ Því hafi lítið ann-
að verið í stöðunni en að hefja
meirihlutasamstarf að nýju.
Á næsta bæjarstjórnarfundi
verður skipað í nefnd sem mun
fjalla um framtíð Húsabakkaskóla
og mun starfa til 31. janúar. Áður
en slitnaði upp úr samstarfinu
kröfðust sjálfstæðismenn þess að
ákvörðun yrði tekin strax um að
sameina rekstur skólans við Dal-
víkurskóla á næsta skólaári. Fram-
sóknarflokkur vildi skipa nefnd
sem hefði málið til umfjöllunar til
31. mars. Á síðasta ári var tæpum
194 milljónum eytt til fræðslu- og
uppeldismála í sveitarfélaginu,
sem er um 30 prósent af tekjum
þess. -ss
Í SVÖRTUM FÖTUM
Hljómsveitin Í svörtum fötum vakti mikla
lukku eins og sést á þessum dreng sem
tekur glaður í höndina á goðinu.
MAFÍAN Í NÍGERÍU
Talið er að mafían í Nígeríu stundi skipulagt smygl, t.d. á konum í vændi á Norðurlöndum.
Lögregluyfirvöld á Norðurlöndum hafa nú tekið upp samstarf til að rannsaka þessi mál.
Myndin er af konum í Nígeríu að bera við á höfðinu.
Dalvík:
Stefndi í stjórnarkreppu
FRÁ DALVÍK
Oddviti Sjálfstæðisflokks í Dalvíkurbyggð segir að samið hafi verið við Framsókn til að
forða stjórnarkreppu í bæjarstjórn.