Fréttablaðið - 28.11.2004, Side 40
Rokkarinn: Rúnar Júlíusson
Það hafa margir tónlistar-
menn haft áhrif á mig í gegn-
um árin og koma þá margir
þættir við: lögin, textarnir,
framkoman, almenn útgeislun
og síðast en ekki síst tilfinn-
ingaflóran. Ég hlusta alltaf
mikið á tónlist og fylgist með
því sem mínir uppáhaldstón-
listarmenn eru að gera á
hverjum tíma og líka þessu
nýja sem er að gerast í tónlist-
inni frá ári til árs.
Af erlendum tónlistarmönn-
um hafa margir menn haft
áhrif á mig og má þar helst
nefna Jimi Hendrix, Bob Dyl-
an, Ray Charles, Beatles, Roll-
ing Stones, Steve Winwood, El-
vis Presley og Prince.
Af íslenskum eru það helst
Þórir Baldursson, Hljómar,
Bubbi, Megas, Stuðmenn, Deep
Jimi, Hjálmar, Björgvin Hall-
dórsson, Ragnar Bjarnason og
Haukur Morthens.
Popparinn: Páll Óskar Hjálmtýsson
Ég ætla að nefna tvo
áhrifavalda sem hafa haft
mestu áhrifin á mig en það
eru Burt Bacharach og
diskóhljómsveitin Chic.
Þetta eru tónlistarmenn
sem fá hjarta mitt til að
slá. Eftir Burt liggja fjöl-
margar tónsmíðar og
rjóminn af lögunum hans
eru algjörir demantar.
Þeir í Chic sömdu mörg
flottustu diskólögin
sem diskódrottning-
arnar rifust svo um.
Fyrsta tónlistin
sem hins vegar
snerti við mér
var öll tónlist-
in á safnplötu
systur minnar
sem hét The
Best Disco Al-
bum in The
World og bar sko nafn með
rentu! Þetta var fyrsta
tónlistin sem ég fílaði í
botn.
Söngkonurnar í lífi
mínu eru svo Dusty
Springfield, Dionne
Warwick, Karen Carpent-
er, Donna Summer og
Madonna. Einnig vil ég
nefna Kraftwerk, Motown-
liðið, Serge Gainsbourg,
Scott Walker og Ennio
Morricone. Af þessu
nýja fylgist ég mikið
með Eminem og Missy
Elliott sem eru frá-
bærir listamenn.
Beyoncé Knowles
fær líka prik fyrir
að vera Donna
Summer okkar
tíma.
Raftónlistarpían: Tanya Lind Pollock
Það fyrsta sem kveikti í
mér þegar ég var lítil voru
þau John Lennon og Yoko
Ono og þau eru mínir
helstu áhrifavaldar. Síðan
hef ég
h l u s t a ð
mikið á
pönk,
Joy Division, The Smiths,
New Order. Ég hef líka
hlustað mikið á Aphex
Twin og Squarepusher
sem eru alltaf í jafnmiklu
uppáhaldi hjá mér. Ljúf
raftónlist á líka alltaf upp
á pallborðið hjá mér
eins og Brothom
States og Boards of
Canada. Af ís-
lenskri tónlist er
ég langhrifnust
af hiphopsen-
unni. En John
Lennon og
Yoko Ono eru
a l g e r l e g a
uppáhaldið og
þeirra tónlist
hefur haft
mest áhrif á
mig sem tón-
listarmann.
Rapparinn: Birkir Björns Halldórsson
Fyrsta fullorðinsmúsíkin
sem snerti mig hefur verið
Revolver-platan með Bítl-
unum sem er úr safni for-
eldranna minna. Þá hef ég
verið svona tíu - ellefu ára.
Eftir það kynntist ég
mínu helsta áhrifavaldi,
Jimi Hendrix og öllu
hippadótinu sem hélt mér
uppteknum alveg þangað
til ég heyrði fyrst í Snoop
Doggy Dog rappa. Það var
þá sem ég skrifaði fyrsta
rapptextann minn. Eftir
það kom The Regulator
með Warren G og Outkast
og þá fór ég að finna sterkt
fyrir hiphopinu og fílaði
það geðveikt. Ekki bara
töffarana heldur taktinn í
tónlistinni. Síðan hef ég
hlustað á bara það sem
mér finnst gott, ég hlusta
eiginlega minnst á hiphop
í dag.
Ég hef líka hlustað
endalaust mikið af djass:
Miles Davis, Herbie Han-
cock, Thelonious Monk,
Duke Ellington, Dave Hol-
land og hljómsveitir eins
og Radiohead, System of a
Down og Rage Against the
M a c h i -
ne.
20 28. nóvember 2004 SUNNUDAGUR
Áhrifavaldar íslenskra tónlistarmanna
Tónlistarmenn sækja flestir snilli sína og tónlistargáfur að einhverju leyti til annarra tón-
listarmanna og snillinga. Sama hvort átt er við rokkara, rappara eða poppara, allir eiga sín
goð. En hverjir eru helstu áhrifavaldar íslenskra tónlistarmanna?
Óperusöngkonan: Sigrún Hjálmtýsdóttir – Diddú.
Ég ólst upp við sígilda
tónlist svo það er það
fyrsta sem greip mig. Ég
hef fengið þetta með
móðurmjólkinni og for-
eldrar mínir hlustuðu
mikið á sígilda tónlist.
Ég get alls ekki nefnt
nein nöfn því þetta hefur
verið svo mikið mótunar-
ferli hjá mér. Það skarast
allt saman, bæði það að
fara í kirkju með foreldr-
um mínum og að hlusta á
Rás eitt í gegnum árin en
ég hlusta mjög mikið á
Rás eitt.
Ég eignaðist ekki
græjur fyrr en mjög
seint, ég var orðin rúm-
lega tvítug. Það er senni-
lega bara sígilda tónlist-
in, hinir ýmsu tónlistar-
menn sem hafa mótað
mig því ég hef ósköp lítið
hlustað á dægurtónlist.