Fréttablaðið - 05.12.2004, Qupperneq 51
SUNNUDAGUR 5. desember 2004
Nýliðar Narfa á uppleið í íshokkíinu:
Grilluðu Akureyringana
ÍSHOKKÍ Lið Skautafélags Akureyr-
ar tapaði stórt fyrir nágrönnum
sínum, Narfa frá Hrísey, 3 - 11
þegar félögin áttust við í
íshokkíleik á föstudagskvöldið.
Er ár og dagur síðan Akureyr-
ingarnir lutu svo í ís en hafa ber í
huga að í lið þeirra vantaði þrjá
lykilleikmenn sem voru í banni
eftir mikinn hasar í leik þeirra við
Björninn um síðustu helgi.
Þá sigraði SA Björninn nokkuð
auðveldlega en sigurinn var
dýrkeyptur því mikil átök urðu
milli leikmanna liðanna bæði í
leiknum sjálfum og eins eftir
hann þegar slagsmál brutust
tvívegis út á göngum
skautahallarinnar.
Fengu allmargir bann eftir
þann illa leik og kom það illa niður
á SA gegn Narfa.
Þessi stórsigur Narfa þýðir að
slagurinn á toppi Íslandsmótsins
harðnar til muna. Skautafélag
Reykjavíkur er enn á toppnum
með níu stig en skammt undan eru
norðanmenn í SA með sjö stig og
nýliðar Narfa með sex. Lið Bjarn-
arins úr Grafarvogi rekur lestina
eins og sakir standa með fjögur
stig eftir sex leiki. Hvert félag
spilar átján leiki á tímabilinu og
því úrslitin hvergi nærri ráðin.
Lið SA og Narfa áttust aftur
við í gærkvöldi fyrir norðan en
úrslit lágu ekki fyrir þegar blaðið
fór í prentun. - aöe
STÓRSIGUR NARFA Hið fornfræga Skautafélag Akureyrar má muna fífil sinn fegri ef
marka má leik liðsins við Narfa frá Hrísey. SA tapaði með átta marka mun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
„Lærið að
halda kjafti
fyrir Verona“
„Þann 25. ágúst 2001 lék hinn svarti
Kólumbíumaður Johnnier Estainer
Montano fyrsta leik sinn fyrir Hellas
Verona á Bentegodi-leikvanginum.
Hann var boðinn hjartanlega velkominn
af áhorfendum í suðurstúkunni.“ Svo
hljóðar eftirmáli hinnar bráðskemmti-
legu bókar breska rithöfundarins Tim
Parks, Leiktíð með Verona (A Season
with Verona). Parks fylgdi liðinu heila
leiktíð á alla leiki þess, í fylgd hinna
harðskeyttu aðdáenda félagsins „gul-
bláu herdeild-
arinnar“ (Briga-
te Gialloblú)
sem hefur
daðrað við ný-
fasisma og
þótt í hópi
óstýrilátustu
knattspyrnu-
áhugamanna
Ítala ásamt
stuðningsmönnum Atalanta og Lazio.
Orð Parks í eftirmálanum benda til þess
að hann voni að rasisma áhorfenda
Verona sé að ljúka með því að svartur
leikmaður gangi í raðir félagsins og
áhorfendurnir fari að líta á hann sem
einn af þeirra hópi. Svo varð því miður
ekki rauninn og gulbláa herdeildin hélt
áfram að svívirða svarta leikmenn úr
röðum andstæðinganna þótt svartir
leikmenn léku með Verona.
„Við“ og „Þeir“
Þótt hægribullurnar hjá Verona hafi ekki
látið af ósiðunum þá er það engu að
síður staðreynd að með aukinni hreyf-
ingu á leikmönnum í kjölfar Bosman-
dómsins fyrir 10 árum síðan hefur dreg-
ið nokkuð úr kynþáttafordómum hjá
áhorfendum ýmissa liða í Suður-Evr-
ópu. Það eru einfaldlega varla til lið í
efstu deildum helstu knattspyrnuþjóða
Evrópu sem ekki eru með svarta leik-
menn innanborðs. Og jafnvel heimsk-
ustu bullur eiga erfitt með að svívirða
andstæðingana ef litaðir leikmenn eru í
röðum þeirra manna. En um leið og
tækifæri gefst, um leið og hægt er að
búa til uppáhalds stöðu rasistanna,
„Við“ og „Þeir“, þá gýs ruglið upp á nýj-
an leik. Þannig halda ný-fasistarnir í
suðurstúkunni hjá Real Mad-
rid (Curva Sur) sig á mott-
unni í leikjum Real en áttu
síðan „stórleik“ þegar
spænska landsliðið var
mætt á Bernabeau.
Titölulega ljósir Spán-
verjar gegn Englend-
ingum með svarta
leikmenn innanborðs
og eftirleikinn þekkja
flestir knattspyrnu-
aðdáendur; einhver
sorglegasta og afkára-
legasta uppákoma á
stórleik í Evr-
ópu síð-
asta ára-
tuginn.
Aum knattspyrnuyfirvöld
Því miður hafa knattspyrnuyfirvöld á
Spáni og á Ítalíu ekki gert nokkurn
skapaðan hlut til þess að bregðast við
vandamálinu. Kannski skapast það af
því að landslið landanna hafa ekki þurft
að glíma við þetta vandamál af þeirri
einföldu ástæðu að svartir leikmenn
hafa verið fátíðir í liðunum. Þannig var
Fabio Liverani fyrsti svarti leikmaðurinn
til að leika landsleik fyrir Ítalíu árið
2002, aldarfjórðungi eftir að Viv Ander-
son varð fyrsti blökkumaðurinn til að
spila landsleik fyrir England, svo dæmi
séu tekin. En því miður verður líka að
segjast að þrátt fyrir dökka fasíska fortíð
Ítalíu og Spánar þá hafa þessi lönd haft
meira umburðarlyndi gagnvart upp-
gangi ný-fasista en löndin í Norður-Evr-
ópu. Einu aðilarnir sem hafa gert eitt-
hvað í málunum eru þau félög sem
hafa haft vandræðaseggina innan raða
aðdáenda sinna og hafa hlotið sektir
fyrir óspektir og læti. Það er við hæfi að
ljúka þessum pistili á harðorðri orð-
sendingu danska snillingsins Preben
Elkjær Larsen til gulbláu herdeildarinnar
fyrir 20 árum síðan. Elkjær hafði leitt
liðið til síns eina meistaratitils árið 1984
og var orðinn þreyttur á bullinu í bull-
unum.
„Ef þið helvískir fasista haughausar ver-
ið til þess að við fáum dæmt á okkur
heimaleikjabann læt ég ganga frá ykkur.
Heilalausu heimskingjar, lærið að halda
kjafti, gerið það fyrir Hellas Verona“. Svo
mörg voru þau orð meistarans.
EINAR LOGI
VIGNISSON