Tíminn - 30.09.1973, Blaðsíða 5

Tíminn - 30.09.1973, Blaðsíða 5
Sunnudagur 30. september 1973 TÍMINN 5 Tímasparnaður önnum kafinn iðjuhöldur i Ameriku tók fimm ára dóttur sina til fyrirmyndar við störf sin og segist nú spara sér þrjár klukkustundir á viku. Og i hverju er svo þessi sparnaður . fólginn? Jú, hann tók eftir þvi, að dóttirin, sem hefur ákaflega gaman af að tala við vinstúlkur sinar i sima, sagði einfaldlega, þegar henni fannst samtalið vera orðið nógu langt: — Nú hef ég ekki meira að segja, en þú? Og þessa aðferð segist hinn störfum hlaðni faðir nota við viðskiptavini sina með fyrr- greindum árangri. * Sumarleyfisparadís við Svartahaf Jalta hefur lengi verið þekktur staður sem sumarleyfissvæði. Borgin er á Svartahafsströnd Krim og þar er um 50 km fögur strönd, sem liggur i skjóli fyrir norðlægum vindum undir háum klettum. Nú hefur verið gerö mikil áætlun um framkvæmdir og breytingar á staðnum, og eru þær mjög aðkallandi, svo að hinn mikli fjöldi innlendra og erlendra ferðamanna geti notið hvildar og hressingar á þessum fagra stað. Talið er að yfir tvær milljónir manna eyði árlega fri- inu sinu á Jalta. t áætluninni er gert ráð fyrir rúllustigum, lyft- um og rennibrautum milli strandarinnar og hinna nýju gistihúsa, sem verið er að byggja á grasflötum uppi i i'jalls hliöunum. Aðal-ibúðarsvæði Jalta verður byggt hinum meg- in við fjöllin og samgöngur milli strandarinnar og ibúðarsvæðis- ins eftir jarðgöngum, sem eru næstum 5 km. Spilamennska skemmtilegri en kvennafar Omar Sharif, kvikmyndaleikari og kvennagull, er eins og allir vita, frægur fyrir kvennafar og spilamennsku, og svo auðvitað kvikmyndaleik, þótt ekki séu nú allir á einu máli um hæfileik- ana. Hann hefur árum saman leikið bridge af miklum áhuga og snilld og tekið þátt i fjölmörgum bridgemótum með góðum árangri. En fallegt kvenfólk hefur þó hingað til ver- ið hans helzta tómstundagam- an. Fyrir skömmu lýsti stjarnan þvi svo yfir i fjölmennu sam- kvæmi, að núorðið heföi hann miklu meira gaman af spilunum en kvenfólkinu. Trúlega hefur þessi yfirlýsing vakið harm i brjósti hinna fjöl- mörgu aðdáenda Sharifs og orð- ið eiginkonunni til léttis. ★ Saga fyrir hundavini Maður nokkur heitir Andrew Nelson. Hann hefur unnið sem yfirþjónn eða kjallarameistari (butler) fyrir fina menn, eins og t.d. jarlinn af Leicester, sem er fyrrverandi borgarstjóri i London, og einnig fyrir leikar- ann fræga Paul Newman og fleiri. Þegar Andrew Nelson fluttist til Englands, þá reyndi hann að smygla hundinum sinum, honum Rex, inn i England —án þess að láta setja hann i sóttkvi. Eftir brezkum lögum hefði Rex þurft að vera i sóttkvi i sex mánuði, og það gátu Nelson-hjónin ekki hugsað sér. ,,Hann er eins og barnið okkar!” sögðu þau. En Rex varð að fara I sóttkvi og Andrew Nelson varð að borga 20 ensk pund i sekt. * Oleg Romanishin, nýr Evrópumeistari Oleg Romanishin, sem er tvi- tugur námsmaður frá Lvuv i sovétlýðveldinu úkraniu, er nýr Evrópumeistari i skák i ung- lingaflokki. Hann nflaði sér þessa titils i Evrópumeistara- keppni unglinga i skák, sem haldin var i Groningen i Niður- löndum. Fyrir þennan árangur sæmdi FIDE hann titlinum alþjóðlegur skákmeistari. Fað- ir Olegs kenndi honum þessa fornu Iþrótt, en hann er kennari vib rafmagnsverkfræði-háskóla og er mikill skákáhugamaður. En Oleg sýndi fyrst hæfileika sina að fullu, þegar Viktor Kart, sem er reyndur kennari, fór að segja honum til. Oleg hefur náð góðum árangri á skóla- og ung- lingamótum, svo og i margri borga-, lýðvelda- og iþrótta- félagskeppni, undankeppnum i Sovétrikjunum og alþjóðlegum skákmótum. ☆ Hraðar en eldingin Hópur visindamanna i Moskvu hefur fundið upp aðferð til að framkalla eldsnögga ljós- glampa á aðeins 0.0000000000004 sekúndum. Leiftur frá ljós- myndaflassi eða eldingu verður langvarandi i samanburði við þessa glampa. Foton-bergmál- ið, eins og þeir eru kallaðir, eru nú notaðir á ýmsum stöðum i Sovétrikjunum til að sannreyna mikilvæga eiginleika málma og annarra efna, einkum þar sem um er að ræða að komast að snöggum breytingum i efninu. & Galvaskar til leiks Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd, einskorðar Spegillinn sig ekki við Soffiu Lóren og Elisabetu Taylor. Myndin var tekin, þegár leikarar Þjóðleik- hússins mættu til leiks i haust að loknu sumarleyfi. Þessar þrjár heiðurskonur þarf vart að kynna, en til vonar og vara birtum við hér nöfn þeirra. Þær eru, talið frá vinstri: Nina Sveinsdóttir, Auður Guömunds- dóttir og Þóra Friðriksdóttir. CO Frd Ítalíu — landi þvottavélanna Þaö er sagt svo að i ttaliu séu flestar þvottavélar framleiddar nú til dags, en þetta er vist al- geng sjón þar ennþá, að konurn- ar þvoi við svona frumstæð skil- yrði. Þessi mynd sýnir þvotta- dag hjá itölskum frúm i smábæ á Suður-ttaliu. * Heimsfræg sjónvarpsstjarna Hver man ekki eftir Fleur Forsyte úr sjónvarpsþáttunum frægu? Sú sem lék hana heitir Susan Hampshire og varð heimsfræg fyrir frábæra túlkun á Fleur. Að lokinni upptöku þáttanna, sem voru fjölmargir, var Susan auðvitað spurð að þvi, hvernig henni hefði likað. — Mér fannst þetta ákaflega skemmtilegt, og við erum eigin- lega orðin eins og ein fjölskylda eftir þennan langa tima, sem i upptöku hefur farið. Og stund- um finnst mér ég vera Fleur en ekki Susan, svaraði hún. Það kemur lika oft fyrir, að ókunnugt fólk ávarpar mig með þvi nafni, og yfirleitt kippi ég mér ekkert upp við það. En stundum verð ég dálitið þreytt á Fleur, og ég er hrædd um að það taki mig langan tima að losa mig algjörlega við hana, ef mér tekst það þá nokkurn tima til fullnustu. Ég er lika hrædd um að það verði erfitt að fá hlutverk aftur á næstunni, þvi að fram- leiðendur og leikstjórar lita lika á mig sem Fleur, og virðast halda að ég geti ekki leikið neitt annað. Og ég held, að það sé ekki ráðlegt fyrir mig að leika aftur i svona langloku, að minnsta kosti ekki næstu árin. En Susan virðist vera búin aö skipta um skoðun. Að minnsta kosti undirritaði hún nýlega samning við BBC um að leika i framhaldsþáttum. En þeir eru nú reyndar ekki nema þrettán. t þetta skipti á hún að leika fremur leiðinlega persónu, eigingjarna og forrika frú.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.