Tíminn - 30.09.1973, Blaðsíða 12
12
TÍMINN
Sunnudagur 30. september 1973
Herrahúsið Aðalstræti 4, Herrabúðin við Lækjartorg
„Augun voru blóðhlaupin og
slefan lak úr munnvikjunum"
Adolf Hitler — þannig leit hann út
ámektardögum sinum.
— Þjóðin og varnarkrafturinn
hafa fórnað öllu i þessari löngu og
hörðu baráttu. Það hefur verið
mikil fórn. En margir hafa mis-
notað traust mitt. Svik og ótryggð
hafa gegnum allt stríðið, grafið
undan varnarmættinum. Þess
vegna hefur mér ekki auðnazt að
leiða þjóð mina fram til sigurs.
Fest segir i lok bókarinnar: —
Hitler eyðilagði ekki aðeins
Þýzkaland, hann batt einnig endi
á tilveru hinnar gömlu Evrópu,
með þjóðerniskennd sinni, deil-
um, erfðaóvild og hræsni, glæsi-
leika sinum og mikilfengleika.
Bók Joachims Fest er söguleg
heimild, sem á það fyllilega skilið
að verða lesin af sem flestum. SB
bók um Hitler eftir Joachim Fest
,,Það var hörmulegt að sjá hið
likamlega ástand, sem hann var
i. Þungum skrefum dróst hann úr
herbergi sinu fram i fundarher-
bergið i neðanjarðarhýsinu. Það
var eins og hann fleygði efri hluta
likamans fram og drægi fæturjna
á eftir sér. Hann hafði tapað jafn-
vægistilfinningunni, og ef einhver
stöðvaði hann á þessari vega-
lengd, sem ekki var nema 20-30
metrar, varð hann að setjast nið-
ur til að detta ekki.
Augun voru blóðhlaupin og þó
aö öll þau skjöl, sem hann þurfti
aö lesa, væru skrifuð með óvenju-
stóru letri, gat hann aðeins lesið
þau með sérstökum gleraugum.
Slefan rann iðulega úr munn-
vikjunum”
Þessi óhugnanlega lýsing á
manni, sem horfist i augu við
endalokin, er úr ævisögu eftir
Joachim C. Fest, „Hitler”, sem
nýlega er komin út. Segir þar frá
siðustu ævidögum Hitlers I
neðanjarðarhýsinu, átta metrum
undir rikiskansellii hans i Berlín.
Bók þessi er áhrifamikil lesn-
ing. Hinn eitt sinn svo mikli for-
ingi, stjórnandi milljóna manna
og sigurvegari I hverri orrustunni
af annarri, var nú kominn á leið-
arenda, öðruvisi þó, en hann hafði
búizt við.
öll vitni frá þessum vikum vor-
ið 1945 eru sammála i lýsingum
sinum á Hitler, sérstaklega veittu
þau athygli hversu lotinn hann
var orðinn, hve andlitið var grá-
bleikt og röddin lág. Augun, sem
eitt sinn höfðu haft næstum dá-
leiðandi afl, voru nú þokukennd af
þreytu. Sifellt bar meira á þvi, að
maðurinn var búinn að missa
vald á sjálfum sér. Það var eins
og pressan af margra ára erfiði,
krefðist nú loks þess, að eitthvað
léti undan. Föt hans voru oft útöt-
uð I matarsulli, og þegar hann
hélt á gleraugum sínum á fund-
um, glömruðu þau við borðplöt-
una.
Það var aðeins viljinn, sem hélt
honum uppi, og skjálftinn angraði
hann sérstaklega, vegna þess að
að hans dómi sæmdi ekki manni
með járnvilja að geta ekki hætt að
nötra, ef hann vildi það.
Bók Joachims Fest er mikið
verk, og þessi ævisaga Hitlers er
án efa greinarbezta lýsing til
þessa, bæði á persónugervingi
nazismans og foringjanum sjálf-
um.
Fest lætur að þvi liggja, að
hvergi i mannkynssögunni finnist
maður á borð við Hitler. Enginn
hefur stofnað til jafnmikilla
fagnaðarláta, móðursýki og til-
hlökkunar til framtiðarinnar og
hann, og enginn hefur heldur
nokkru sinni vakið slfkt hatur.
Enginn hefur heldur á svo fáum
árum né I svipuðum mæli flýtt
fyrir þróun heimsmálanna,
breytt ástandinu, og enginn hefur
heldur skilið eftir sig jafnmargar
rústir. Það var ekki fyrr en sam
stéypa nær allra stórvelda heims-
ins tók til, að hann var yfirbugað-
ur. „Drepinn eins og óður hund-
ur”, svo notuð séu orð yfirmanns i
þýzku andspyrnuhreyfingunni.
Hinn sérstæði mikilleiki Hitlers
fólst einkum i hinni ýktu skrpgerð
hans, segir Fest. Skapið var
þannig, að það sprengdi alla
kunna mælikvarða. Þegar eitt-
hvað var að, þá greinlega gaus
Hitler, og alveg fram til endalok-
anna lét hann járnvilja sinn
stjórna, þvi að likaminn var orð-
inn ónýtur.
1 mörgum ræðum talaði Hitler
um það með bljúgum undirtóni,
að hann hefði byrjað með ekkert,
ekkert nafn, enga peninga, engin
blöð, alls ekkert. Hann lagði
áherzlu á að hann hefði unnið sig
algjörlega upp af sjálfsdáðum,
orðið æðsti maður Þýzkalands og
siöar hluta heimsins. „Þetta hef-
ur gengið kraftaverki næst,”
sagði hann oft sjálfur.
Hvað sem annars má segja um
þetta, var ævi Hitlers stórfengleg.
Fest fylgir i bókinni einræðis-
herranum i smáatriðum, bókstaf-
lega frá vöggu til grafar, gegnum
barnæsku hans, æskuár i fátækt,
þar til hann um siðir stóð við
markið og var leiðtogi þýzka
rikisins. Að lokum striðsárin sex,
þar til hringurinn lokaðist og Hitl-
er endaði ævi sina utan við neðan-
jarðarhýsið i Berlin.
Allra siðasta boðskap Hitlers,
sem hann skrifaði 29. april 1945,
lauk með þessum orðum:
Allir vita, að sumir virðast yngri en þeir eru,
Æskan virðist hafa tekið ástfóstri við þá,
og þeir njóta þess í virðingu og vinsældum.
En hefurðu tekið eftir því, hvernig þeir
klæðast, þessir lukkunnar pamfílar?
Föt eftir nýjustu tízku, sem fara vel - gefa
persónu þinni ferskan blæ, svo að þú
virðist ekki ári eldri en þú ert,
jafnvel yngri.
Reyndu sjálfur. Sýndu heiminum þínar -
yngstu hliðar.
Fáðu þér ný Kóróna föt, og sjáðu hvernig
brosunum til þín fjölgar,