Tíminn - 30.09.1973, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Sunnudagur 30. september 1973
Pétur Guðjónsson:
Ályktun stjórnarmanna
Verzlunarráðsins
ÞAÐ rak margan verzlunar-
manninn i rogastanz, þegar hann
horföi á sjónvarpiö á miðviku-
dagskvöldið, leit siöan á öftustu
siöu Morgunblaðsins á fimmtu-
daginn og sá ályktun, sem Verzl-
unarráð Islands hafði gert i sam-
bandi við hugsanleg stjórnmála-
slit tslands við Bretland, vegna
siendurtekinna ásiglinga brezkra
herskipa á islenzk varðskip.
Asiglingar þessar eru gerðar
samkvæmt fyrirskipunum brezku
rlkisstjórnarinnar til hertækja
sinna á tslandsmiðum, sem tefla
hvaða dag sem er lifi tuga is-
lenzkra sjómanna I mikla lifs-
hættu. Þvi miður hefur þetta til
tæki brezkra stjórnvalda nú
þegar kostað islenzkt mannslif.
Þegar smáriki eins og tsland er
að reyna að verja gegn tortim-
ingu þá einu náttúruauðlind, sem
gerir þjóðinni mögulegt að lifa
menningarlifi i landi sinu, og fær
á sig hernaðarofbeldisárás frá
einu stærsta og rikasta iðnaðar-
riki i heimi til þess að tryggja
áframhald rányrkju og eyðilegg-
ingu á þessari náttúruauðlind I
stað skilnings á aðstæðum, þá er
ekki lengur það ástand, að eðlileg
stjórnmálatengsl geti verið milli
landanna. Hefði átt að slita
stjórnmálasambandi við Breta
undir eins og fyrsta brezka her-
skipið sigldi innfyrir 50 milurnar.
Við hefði mátt bUast, þegar um
slikar aðstæður er að ræða eins og
hér að framan hefur verið lýst, að
þjóðin stæði sem einn maður á
bak við sina rikisstjórn, er hUn
gefur hið eina svar, sem sjálf-
stætt lýðveldi vcröurað gefa við
þessar aðstæður, slit á stjórn-
málasambandi. Það er blátt
áfram fáranlegt, aö brezkt sendi-
ráð skuli vera opið við Laufásveg,
á sama tima og við getum átt von
á þeirri frétt, að tugir Islenzkra
landhelgisgæzlumanna hafi látið
lifið vegna fyrirfram ákveðinna
aðgerða brezka hernaðartækja
við tsland.
Verzlunarráð Islands er félag
sem saman koma I hin ýmsu félög
verzlunarstéttarinnar og iðnað-
arins, ásamt ýmsum verzlunar-
og iðnfyrirtækjum, sem eru
beinir aðilar að ráðinu. Ályktun-
in, sem Verzlunarráðið lét frá sér
fara, er að öllu leyti það óvenju-
leg, að eina eölileg afgreiðsla
hennar hefði verið, að hUn hefði
fyrst verið rædd i hinum ýmsu
félögum, sem aðild eiga að
ráöinu, og er hUn hefði verið þar .
rædd og samþykkt, þá fariö til
stjórnar Verzlunarráðsins og þar
endanlega frágengin. Þessi hátt-
ur var ekki viðhafður, ogþvi
verður að teljast, vegna alvarlegra
formgalla og skorts á umboði frá
þeim einstaklingum, sem innan
Verzlunarráðsins teljast , að þeir
aöilar, sem undir ályktunina
skrifa og eru I stjórn Verzlunar-
ráösins, geri það sem einstakling-
ar en ekki sem stjórnarmenn
Verzlunarráðsins. En ennþá
Pétur Guðjónsson
alvarlegri hlutir verða uppi á ten-
ingnum, þegarskyggnzter niður i
efnishlið ályktunarinnar. Þar
koma fram órökstuddar fullyrð-
ingar, villandi upplýsingar um
alþjóðleg viðskiptamál og fjár-
mál og algjör vantrU á kunnáttu,
reynslu og hæfni islenzkrar verzl-
unarstéttar til að leysa þau
vandamál, sem upp kynnu að
koma, ef Bretar ásamt öðrum
NATO og og Efnahagsbandalags-
þjóðum hygðust beita Islendinga
frekari efnahagslegum refsiað-
gerðum en orðið er. Einmitt hin
góöa menntun, kunnátta og
reynsla islenzkrar verzlunar-
stéttar er eitt af vopnum ís-
lendinga fdag og getur að engu
gert allar tilraunir Breta og refsi-
aögerðabandamanna þeirra i
Efnahagsbandalaginu. Ekki efast
ég um að hver einstaklingur inn-
an verzlunarstéttarinnar sé tilbU-
inn að færa þær fórnir, sem nauð-
synlegar eru til þess að full-
ur sigur náist i þessu lifshags-
munamáli þjóðarinnar, máli,
sem þjóðartilvera tslendinga
byggist á. Þvi hefði ég frekar bU-
izt við að ályktun Verzlunarráðs-
ins hefði verið að efni til tilkynn-
ing til rikisstjórnarinnar um að
öll starfsorka, kunnátta og
reynsla verzlunarstéttarinnar
væru til reiðu til að leysa hver þau
viðskiptaleg og fjármálaleg
vandamál, er Bretar reyndu að
valda okkur i staðinn fyrir það
væl, sem ályktunin er. Mun nU
vikið að ályktuninni lið fyrir lið:
1. Meta ber og virða gott kynning-
arstarf á vegum Verzlunar-
ráðsins á málstað Islendinga I
landhelgisdeilunni við Breta.
En ekki eru Bretar sama álits
og Verzlunarráðið I sambandi
við efnahagslegar refsiað-
gerðir, þar sem þeir eru bUnir
að draga allt Efnahagsbanda-
lagið i dilk með sér til að refsa
tslendingum. Þær refsiað-
gerðir eru staðreynd i dag, þar
sem tollaákvæði hagstæð
tslendingum koma ekki til
framkvæmda við innflutning á
fiskafurðum til Efnahags-
bandalagslandanna vegna fisk-
veiðideilu Islendinga og Breta.
Hér er meira að segja
Danmörk farin að refsa
Islendingum vegna landhelgis-
málsins, og öll NATO-löndin I
Efnahagsbandalaginu refsa
Islendingum i dag vegna land-
helgisdeilunnar, þrátt fyrir þá
staðreynd, að við, ásamt
Bandarikjamönnum, gefum
þessum þjóðum varnaraðstöð-
una i nyrzta hluta Atlantshafs-
ins: Okkar framlagrlandfræði-
lega aðstaðan, er að minnsta
kosti 100 milljóna dollara virði
á ársgrundvelli ef ekki langtum
meira. Það er orðið hart og
eitthvað bogið i meira lagi,
þegar þiggjendur mikilla
v a r n a r v e r ð m æ t a af
tslendingum eru á sama tima
efnahagslegir refsendur þeirra
fyrir að reyna að tryggja lifs-
afkomu sina.
2. Ég fæ ekki séð, hvernig vin-
veittar þjóðir okkar ættu að
missa álit á okkur við að svara
stigmögnun Breta i landhelgis-
deilunni á hefðbundinn hátt.
Islendingar eiga engan annan
kost en að fara Ut i aðgerðir til
verndar lifshagsmunum
sinum, og það er fullkomlega
eðlilegt, að slikt fáist ekki
Hagkvæmt er heimanám
‘^qkóv-'
Bréfaskóli SIS og ASÍ býður yður kennslu i 40 námsgreinum. Eftir-
farandi greinargerð ber fjölbreytninni vitni.
I. ATVINNULÍFIÐ
1. LandbUnaður.
Búvélar.6. bréf. Kennari Gunnar Gunnarsáon bUfræðikandidat. Náms-
gjald kr. 1.000.-
Búreikningar. Kennari Guðmundur Sigþórsson búnaðarhagfræðingur.
Námsgjald kr. 1.700.-
2. Sjávárútvegur.
Siglingafræði. 4. bréf. Kennari Jónas Sigurðsson skólastjóri. Náms-
gjald kr. 1.400.-
Mótorfræði I. 6. bréf. Um benzinvélar. Kennari Andrés Guöjónsson
skólastjóri. Námsgjald kr. 1.400.-
Mótorfræði II. 6. bréf. Um dieselvélar. Kennari Andrés Guðjónsson
skólastjóri. Námsgjald kr. 1.400.-
3. Viðskipti og verzlun.
Bókfærsla 1.7 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstj. F.R.Færslu-
bækur og eyðublöð fylgja. Námsgjald kr 1.400,-
Bókfærsla II.6bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstj. F.R. Færslu-
bækur og eyðublöð fylgja. Námsgjald kr. 1 700,-
Auglýsingatcikning. 4. bréf ásamt nauðsydcgum áhöldum. Kennari
Hörður Haraldsson viðskiptafræðingur. Námsgjald kr. 700,-
Almenn búðarstörf. Kennslubók ásamt 5 spurningabréfum. Kennari
Höskuldur Goði Karlsson frkvstj. Námsgjald kr. 800,-
Kjörbúðin. 4. bref. Kennari HUnbogi Þorsteinsson. Námsgj. kr. 700.-
Betri verzlunarstjórn I og II.8. bréf i hvorum flokki. Kennari HUnbogi
Þorsteinsson. Námsgjald kr. 1.250.-
Skipulag og starfshættir samvinnuféiaga. 5. bréf. Kennari Eirikur
Pálsson lögfræðingur. Námsgjald kr. 600.-
II. ERLENDMAL.
Danska I. 5 bréf og Litla dönskubókin. Kennari AgUst Sigurðsson
cand.mag. Námsgjald kr. 1.100.-
Danska II.8 bréf og Kennslubók i dönsku I. Sami kennari. Námsgjald
kr. 1.300,-
Danska III. 7. bréf og Kennslubók i dönsku III., lesbók, orðabók og
stilahefti. Sami kennari. Námsgjald kr. 1.400.-
Enska I. og II.7 bréf i hvorum flokki og lesbækui;orðabók og málfræði.
Kennari Eysteinn Sigurðsson cand.mag. Námsgjald kr. 1.400.- i
hvorum flokki.
Ensk verzlunarbréf. 8. bréf.Kennari Snorri Þorsteinsson yfirkennari.
Nokkur enskukunnátta nauðsynleg. Námsgjald. kr. 1.400.-
Þýzka.5. bréf. Kennari Ingvar G. Brynjólfsson yfirkennari. Námsgjald
kr. 1.400.-
Franska. 10. bréf. Kennari MagnUs G. Jónsson dósent. Námsgjald. kr.
1.400.-
Spænska.10. bréf. Kennari MagnUs G. Jónsson dósent. Námsgjald kr.
1.400.- Sagnahefti fylgir.
Esperanto. 8. bréf. lesbók og framburöarhefti. Kennari Olafur S.
MagnUsson. Orðabækur fyrirliggjandi. Framburðarkennsla er gegnum
rikisUtvarpið yfir vetrarmánuðina I öllum erlendu málunum. Náms-
gjald kr. 900.-
III. ALMENNFRÆÐI
Eðlisfræði6. bréf og kennslubók J.A.B. Kennari Sigurður Ingimundar-
son efnafræðingur. Námsgjald kr. 1.000,-
lslenzk málfræði. 6. bréf og kennslubók H.H. Kennari Eysteinn
Sigurðsson cand. mag. Námsgjald kr. 1.400,-
tslenzk bragfræði. 3 bréf og kennslubók. Kennari Sveinbjörn Sigur-
jónsson mag.art. Námsgjald kr. 700.-
tslenzk réttritun. 6. bréf. Kennari Sveinbjörn Sigurjónsson mag.art.
Námsgjald kr. 1.400.-
Reikningur. 10. bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstjóri F.R. Má
skipta i tvö námskeið. Námsgjald kr. 1.400.-
Algebra.5. bréf. Kennari Þóroddur Oddsson yfirkennari. Námsgjald
kr. 1.100.-
Starfsfræðsla. Bókin „Starfsval” með eyðublöðum. Ólafur Gunnars-
son sálfræðingur svarar spurningum og leiðbeinir um stöðuval. —
Gjald kr. 750,-
IV. FÉLAGSFRÆÐI
Sálar- og uppeldisfræði. 4. bréf. Kennari Þuriður Kristjánsdóttir upp-
eldisfræðingur. Námsgjald kr. 800.-
Saga samvinnuhreyfingarinnar. 8. bréf og þrjár fræðslubækur.
Kennari Guðmundur Sveinsson skólastjóri. Námsgjald kr. 900.-
Afengismál 1.3bréf um áfengismál frá fræðilegu sjónarmiöi. Kennari
Baldur Johnsen læknir. Námsgjald. kr. 600.-
Fundarstjórn og fundarreglur. 3. bréf. Kennari Eiríkur Pálsson
lögfræðingur. Námsgjald kr. 800,-
Bókhaid verkalýðsfélaga. 4 bréf ásamt færslubókum og eyðublöðum.
Kennari Guðmundur AgUstsson hagfræðingur. Námsgj. kr. 700,-
Staða kvenna i heimili og þjóðfélagi. 4..bréf. Kennari Sigriður Thorla-
cius ritstjóri. Námsgjald kr. 800.-
Lærið á réttan hátt.4. bréf um námstækni. Kennari Hrafn MagnUsson,
Námsgjald kr. 800.-
Hagræðing og vinnurannsóknir.4. bréf aö minnsta kosti. Hagræðingar-
deild ASl leiðbeinir. Námsgjald kr. 800.-
Leshringurinn. 3 bréf. Kennari Guðmundur Sveinsson skólastjóri og
fleiri. Námsgjald kr. 900.-
V. TÓMSTUNDASTÖRF
Skák. I 5. bréf. Kennari Sveinn Kristinsson skákmeistari. Námsgjald
kr. 800,-
Skák II. 4. bréf. Kennari Sveinn Kristinsson skákmeistari. Námsgjíld
kr. 800.-
Gitarskólinn. 8 bréf og lög á nótum. Kennari Ólafur Gaukur hljóm-
listarmaður. Námsgjald kr. 900.-
TAKIÐ EFTIR:Bre'faskóli SIS og ASl veitir öllum tækifæri til að afla
sér I fristundum fróðleiks, sem allir hafa gagn af. Með bréfaskólanámi
getið þér aukið á möguleika yöar til að komast áfram i lifinu og m.a.
búið yður undir nám við aðra skóla. Þér getið gerzt nemandi hvenær
sem er og ráðið námshraða að mestu leyti sjálf. Skólinn starfar allt
árið.
Bréfaskóli StS og ASt býður yður velkomin.
Undirritaöur óskar að gerast nemandi i eftirt. námsgr.:
□ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu.
□ Greiðsla hjálögð kr_______________
(Nafn)
(Heimilisfang)
Klippið auglýsinguna Ur blaðinu og geymið.
Bréfaskóli SÍS & ASÍ
ARMÚLA 3, REYKJAVtK