Tíminn - 30.09.1973, Side 19

Tíminn - 30.09.1973, Side 19
Sunnudagur 30. september 1973 TÍMINN 19 Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón He^gason, Tómas Karlsson, Augiýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuöi innan lands, I iausasölu 22 kr. eintakiö. Blaöaprent h.f > ■ i —. .................. Fullt tillit Af hálfu Morgunblaðsins, sem telur sig aðal- málgagn Sjálfstæðisflokksins, er nú lagt á það höfuðkapp að rægja saman sjórnarflokkana og einstaka ráðherra þeirra. Alveg sérstaklega leggur blaðið þó stund á þann áróður, að ráð- herrar Framsóknarflokksins séu of undanláts- samir við ráðherra Alþýðubandalagsins. í tilefni af þessum áróðri Morgunblaðsins, er ekki úr vegi að rifja upp eftirfarandi ummæli úr siðustu áramótagrein formanns Fram- sóknarflokksins, Ólafs Jóhannessonar for- sætisráðherra, þar sem hann ræddi um Fram- sóknarflokkinn og stjórnarstarfið: „Þegar litið er yfir sögu Framsóknarflokks- ins frá þvi að hann var stofnaður á Alþingi árið 1916 og skoðuð þau spor, sem hann hefur markað i islenzku þjóðlifi, þá getur engum dulizt, hvern þátt Framsóknarflokkurinn hefur átt i framfaraþróuninni á Islandi. Þaðhefur orðið gerbreyting á lifskjörum . íslendinga siðustu 50 árin. Um það leyti, sem Framsóknarflokkurinn var stofnaður, var tekju-, eigna- og gæðaskiptingin i landinu mjög misjöfn og óréttlát. Fyrir tilstilli Framsóknar- flokksins og pólitiskra bandamanna hans, ásamt þeim félagshreyfingum, sem næst honum hafa staðið, svo sem bændasam- tökunum og samvinnusamtökunum, hefur mikil framsókn átt sér stað á öllum sviðum þjóðlifsins. Gildir þetta ekki aðeins um hin ein- földustu efnahagslegu gæði svo sem launa- tekjur, fæði, klæði og húsnæði, heldur lika á sviði menningarmála og félagsmála, svo sem um aðgang að menntun, tryggðum hvildartima og orlofi, öryggi i veikindum og fleira af þvi tagi. í þessu öllu á auðvitað verkalýðs- hreyfingin einnig sinn stórkostlega og ómælda þátt, þó að hún hafi verið tengdari öðrum flokkum... Þó að Framsóknarflokkurinn sé i stjórn- málasamvinnu við aðra flokka, má ekkert lát verða á að vinna að eflingu hans. Ég held að sjaldan hafi rikt meiri eining i Framsóknar- flokknum en einmitt nú. Stefnum þvi fram og öll sem eitt. Hinu skulum við ekki gleyma, að við verðum að sýna samstarfsflokkunum fulla sanngirni og taka til þeirra fullt tillit. Og i þvi efni vil ég segja, að sérstök skylda hvili á Framsóknar- flokknum sem stærsta flokknum og þess, sem hefur forstöðu i stjórninni. Yfirgangur i sam- starfi verður aldrei neinum til framdráttar, þegar til lengdar lætur. Ég veit.að það er ein- dreginn vilji i Framsóknarflokknum að standa traustan vörð um stjónarsamstarfið. Eflum þvi samheldni stjórnarflokkanna og eyðum tortryggni”. 1 samræmi við þessa yfirlýsingu formanns Framsóknarflokksins mun flokkurinn haga vinnubrögðum. sinum. Hann mun nú sem endranær taka fullt tillit til samstarfsmanna sinna, þvi að það er undirstaða heilbrigðs sam- starfs. Hann mun jafnhliða efla og treysta starfsemi sina, enda er styrkur hans trygging fyrir áframhaldandi vinstri stjórn, þar sem forustan hvilir á herðum hans. Þessum vinnu- brögðum mun Framsóknarffokkurinn fylgja, hvað sem liður Marðprgreinum i Mbl. ERLENT YFIRLIT Verður Wang Hung-wen eftirmaður AAaos? Hann virðist njóta sérstaks trausts formannsins m -«* Wang Hung-wen Þaö vakti sérstaka athygli i sambandi við Kinaför Pompi- dous Frakklandsforseta, að maðurinn, sem kom til dyra og bauð hann velkominn, þeg- ar hann heimsótti Maó for- mann á einkaheimili hans, var Wang Hung-wen, sem ný- lega var kjörinn einn af vara- formönnum Kommúnista- flokks Kina. Wang fylgdi Pompidou til Maos og var sið- an Viðstaddur viðræður þeirra. Þetta þykir sýna, að Wang njóti sérstakrar tilrúar flokksformannsins og hefur það styrkt þann orðróm, að Wang sé nú næstur þvi að verða aðalleiðtogi Kina, þeg- ar þeir Mao og Chou En-lai falla frá. Þess getur hins veg- ar ekki verið langt að biða, þar sem Maó er 79 ára og Chou 75 ára. ÞAÐ ER ekki nema réttur mánuður siðan, að Wang skaut upp á himni kinverskra stjórnmála sem liklegum eft- irmanni þeirra Maós og Chous. Þangað til hafði honum ekki verið veitt sérstök athygli. Þetta gerðist á 10. þingi kin- verska kommúnistaflokks- ins, sem var haldið siðustu dagana í ágúst, en fréttir frá þvi voru ekki birtar fyrr en I byrjun september. Þá kom I ljós, að kosnir höfðu verið fimm varaformenn flokksins, en áður hafði ekki verið kosinn nema einn varaformaður, en sannazt hafði á tvo hina sið- ustu þeirra, að þeir hefðu báð- ir reynt að steypa Maó úr stóli. Maó mun þvi hafa talið sig vera búinn að fá næga reynslu af þvi, að ekki væri heppilegt að hafa einn varaformann, sem færi fljótlega að lita á sig sem sjálfkjörinn eftirmann leiðtogans. Varaformennirnir voru þvi hafðir fimm, og eiga þeir augljóslega að gæta hvers annars. Þeir eru þó jafnan taldir upp i sömu röð og þykir það sýna, að þeir séu ekki al- veg jafnir. Chou er jafnan tal- inn fyrstur, en næstur honum kemur Wang. Hinir þrir eru gamlir flokksleiðtogar, sem ekki þykja liklegir til að erfa rikið, þegar Maó fellur frá. Samkvæmt þessu er ályktað, að Chou verði eftirmaður Maós, ef hann fellur frá fljót- lega, en Wang komi svo i næstu röð. Af þessu er farið að draga þær ályktanir, að Wang sé nú þriðji valdamesti leið- togi Kina. í KÍNVERSKUM blöðum er yfirleitt sagt litið frá leiðtog- um flokksins, þó að þau birti ræður þeirra öðru hverju. Upplýsingar þær, sem vestræn blöð hafa reynt að afla sér um Wang, eru þvi bæði sundur- leitar og ósamhljóða. Þannig ber heimildum illa saman um aldur hans. Hann er oft sagð- ur 35 ára eða fertugur, en al- gengast er þó að telja hann 37 ára. Hann er þannig lang- yngstur helztu leiðtoga Kina, en flestir þeirra eru komnir á sjötugsaldur eða meira. Heimildir eru einnig ósam- hljóða um uppruna hans og menntun. Oftast er hann tal- inn kominn af verkamanna- ættum og hafa hlotið tiltölu- lega litla bóklega menntun. Aðrar heimildir telja hann vel menntaðan. Flestum heimildum ber saman um, að hann sé fæddur i Kirin-héraði, sem er i norðaustur hluta Kina, en hafi flutzt þaðan til Shanghai. Þar byrjar fyrst að segja frá honum sem verka- manni i bómullarverksmiðju, en einstaka heimildir segja, að hann hafi verið pólitiskur eftirlitsmaður i verksmiðj- unni. Fyrst kemur hann að ráði við sögu eftir að menning- arbyltingin svonefnda hófst. Sagan segir, að hann hafi i fyrstu verið talinn endurbóta- sinni og verið kærður a‘f rót- tækustu mönnum flokksins fyrir þá afstöðu sina, en fengið syndakvittun á hærri stöðum og siöar orðið einn vaskasti baráttumaður menningar- byltingarinnar. Nokkuð er það, að það er alda hennar, sem lyftir honum til forustu i flokknum i Shanghai. Þegar henni slotar, er hann orðinn einn af þremur helztu leiðtog- um flokksins i Shanghai, eða næstur þeim Chang Chun- chiao, sem hefur verið aðal- leiðtogi flokksins i Shanghai, og Yao Wen-yuan, sem oft hefur verið nefndur, sem lik- legasti eftirmaður Maós. Hann var svo kosinn i mið- stjórn Kommúnistaflsins á flokksþinginu 1969. Síðan hefur hann hækkað ótrúlega fljótt i tign, þar sem hann er nú ekki aðeins endurkosinn i miðstjórnina, heldur einnig i framkvæmdastjórnina og i stjórn hennar, og þvi til við- bótar kjörinn annar varafor- maður flokksins. Það er algert einsdæmi, að menn öðlist svo skjótt hinn mesta frama i kin- verska kommúnistaflokknum. Sumir reyna að finna á þessu skýringu, að Wang sé aðeins leppur fyrir annan hvorn þeirra Chang Chun- chiao og Jao Wen-yuan, sem stefndi að þvi, að hljóta sess Maós, þegar þar að kemur. Aðrir telja hins vegar, að Wang hafi komizt fram úr þeim sökum hæfileika sinna, sem hafi vakið aðdáun Maós. Vist er það, að Wang hefur unnið sér mikið orð fyrir ein- beitni og dugnað og skarpa greind. Þá spillir útlitið ekki fyrir honum, en hann er hár vexti, velvaxinn og friður sýn- um, og er sagður hafa við- felldna og virðulega fram- komu. Ef sögusagnir um hann eru réttar, hefur hann flesta þá eiginleika, sem foringja þykja prýða. EKKI eru fréttaskýrendur á einu máli um, hvort Wang er að finna i hinum róttækari armi flokksins, sem hefur ver- ið talinn undir forustu Chiang Chings, konu Maós, eða i hin- um hófsamari armi flokksins, sem hefur verið undir leiðsögu Chou En-lais. í þessu sam- bandi má þó ef til vill draga nokkra ályktun af þvi, að flokksdeildin i Shanghai hefur yfirleitt verið talin mjög rót- tæk. Þá vekja ýmsir, sem þykja mestir sérfræðingar um málefni Kina, athygli á þvl, að dulbúinn skoðanamunur hafi komiðfram i ræðum, sem þeir Chou og Wang fluttu á 10. flokksþinginu, en þeir fluttu aðalræðurnar þar og einu ræð- urnar, sem hafa verið birtar. Chou ræddi um stjórnmál yfir- leitt, innlend og útlend, en Wang ræddi um lög og skipu- lagsmál flokksins. Wang lagði áherzlu á þörfina fyrir stöðug- ar menningarbyltingar, en Chou varaði við of miklum breytingum með stuttu milli- bili, þá lét Chou i það skina, að Kina stafaði enn meiri árásar- hætta frá Sovétrlkjunum en Bandarikjunum, en ummæli, sem Wang lét falla, mátti túlka þannig, að hann legði árásarhættuna frá þessum tveimur stórveldum aö jöfnu. Mjög hafa vestrænir fjölmiðlar reynt að afla upplýsinga um einkalif Wangs, en gengið það illa. Þó virðast þeir telja það fullvist, aö hann sé piparsveinn. Þ.Þ. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.