Tíminn - 10.02.1974, Page 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
nærstaddur, má hann kyssa
hana. Þessi tvö hér á myndinni
munu einmitt hafa hitzt við slík-
ar aðstæður. Ekki vitum við,
hvort þau langar i raun og veru
til að kyssast, þvi eðlið býður
þeim að vera heldur óvingjarn-
leg hvort við annað. En það
verður að fylgja settum reglum,
og þess vegna ætla þau að láta
sig hafa það og sýna hvort öðru
vinahót, svona i þetta eina
skipti. bau gegna nöfnunum
Kisulóra og Sally. Sally er bola-
bitur, eins og sjá má, og þau
hafa búið saman hjá Evans-fjöl-
skyldunni i Hereford i Englandi
undanfarin sex ár. Þar hafa þau
rifizt eins og hundur og köttur,
eins og eðlilegt má teljast.
Tvö sölumet voru slegin hjá
uppboðsfyrirtækinu Sothebys i
London fyrir skömmu. Þar var
seld mynd eftir Picasso fyrir
upphæð sem svarar 68 milljón-
um króna. Er þetta hæsta verð,
sem fengizt hefur fyrir mynd
eftir Picasso, og jafnframt
hæsta verð sem greitt hefur ver-
ið fyrir málverk, málað á 20.
öld. Kaupandinn er bandariskur
maður, Sheldon H. Solow. Hann
var staddur i New York, þegar
uppboðið fór fram, en var i stöð-
ugu simasambandi við uppboðs-
fyrirtækið og yfirbauð alla
keppinauta sina.
Mynd þessa málaði Picasso
árið 1909, en þá stóð yfir
svokallað kúbiska timabiíið á
listaferli meistarans. Málverkið
er andlitsmynd af konu, en um
þetta leyti málaði hann sikar
myndir.
A sama uppboði var seld
mynd eftir Max Ernst, sem
máluð var árið 1930, fyrir 18
milljónir króna og mynd eftir
Georges Rouault fyrir tæpar 15
milljónir kröna. Meðfylgjandi
mynd er af hinu verðmæta
Picassomálverki. /O
Brennandi spurning
Tveir svissneskir visindamenn
hafa lýst þvi yfir, að þeir hafi
uppgötvað blóðvatnsefni, sem
vinni gegn likamsskaða af völd-
um bruna. Visindamennirnir
eru doktor Martin Allgower og
doktor G.A. Shonnberg. Þeir
segja, að þegar likamsvefur
brennistog skaddast, þá fram-
leiði mannslikaminn móteitur,
sem geti haft skaðleg áhrif á
sjúklinginn. Þetta serum, eða
blóðvatn, sem þeir fundu upp, á
að berjast gegn slikri eitrun i
llkamanum. Þeir gera nú til-
raunir á fólki, sem hefur orðið
fyrir bruna, og birta nánari
niðurstöður siðar. Tilrau.'.irnar
fara fram i Basei i Sviss.
Þau hafa bundizt
vinóttuböndum
t Englandi er það siður á jólun-
um að hengja upp mistiltein yfir
dyr. Gangi svo ung stúlka undir
mistiltininn og ungur maður er
Kaup á japönskum
járnbrautdrvögnum
Sovéska vélskipið Uelen lét ný-
veriðúr höfn i Nagasaki i Japan
með 13 fólksflutningsvagna fyr-
ir járnbrautirnar á hinni stóru
sovésku Kyrrahafseyju Sakalin.
Þetta er fyrsta sendingin af 130
járnbrautarvögnum, sem hafa
verið pantaðir frá Japan fyrir
Sakalinjárnbrautirnar. Samn-
ingurinn nær einnig til svefn-
vagna, veitingavagna, vöru-
flutningavagna.