Tíminn - 10.02.1974, Side 7
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
TÍMINN
7
skemmtilega reynslu, sem okkar
kynslóð fór á mis við. Þess vegna
hef ég látið hann fara sinu fram.
Sórhver dagur i lifi Pauls er
eins og hjá öðrum hippum i Róm,
dagur án markmiðs. Bezti vinur
hans i Róm er Mario Crisi, 28 ára
gamall. Hann byrjaði sem ljós-
myndari, og gerðist siðan list-
málari. Hann býr i gamla bæjar-
hlutanum i Róm, þar sem lista-
menn og bóhemar eru allsráð-
andi.
— Ég kenndi honum að taka
kvikmyndir, sagði Carlo Sci-
mone. Hann var ákafur að læra,
hann vildi ekki vera öðruvisi en
við hin.
Og litli-Paul var ákafari en
flestir aðrir. Hann reyndi að gera
„underground” mynd, skrifaði
sjálfur handritið og tók þátt i
stjórninni. Hann notfærir sér allt,
sem hann álitur að komi fólki i
skilning um, að hann geti séð um
sig sjálfur og þurfi ekki hið fræga
eftirnafn sitt til að vekja athygli.
Þess vegna lifir hann brjálæðis-
legu lifi.
— Hann er sjaldan kyrr á sama
stað lengur en tiu minútur, segir
Scimone. Hann kom til min á öll-
um timum dagsins, til að ræða
einhverja hugmynd. Hann hljóp á
milli vina sinna i hippahverfun-
um. Hann borðaði hvað sem var,
á hvaða stað sem var. Eini fasti
punkturinn i lifi hans er móðirin.
Hann á heilmikið af kunningjum
og fjölda kornungra vinstúlkna.
Það er eins og hann leitist við að
eyðileggja eitthvað eða einhvern,
kannske sjálfsmynd sina...
Tryggði sér hlut i Norð-
ursjávaroliunni
Faðir Pauls Getty I var einn af
brautryðjendunum, sem boruðu
eftir oliu i Ameriku. Paul Getty
vann við oliuborun i ungdæmi /
sinu. Það voru erfiðir dagar, en •
þegar olian fannst, komu betri .
timar. ^
— Ég hugsaði á timabili um að
verða rithöfundur, sagði hann eitt
sinn i viðtali en velgengnin varð-
andi oliuna ýtti mér út i við-
skiptalifið.
Samt hefur hann fengizt við
skriftir. Fyrsta bók hans fjallar
um oliu, fjórar um list og tvær
um, hvernig maður á að ná völd-
um.
— Það er alltaf viss hætta á, að
maður falli niður i hyldýpið, segir
hann. Ég vann mig upp frá þvi að
vera oliuborari, studdist við lind-
ir, sem gáfu mér talsvert fjár-
magn. Þetta vakti hjá mér löngun
til að fá itök i stóru fyrirtækjun-
um. A kreppuárunum kringum
1930 mætti ég öllu, sem ég átti, og
meira til, til að fá völdin yfir Tide
Water Oil Company. Það var
spennandi timabil, þegar ég beið
eftir að vita, hvort ég yrði gjald-
þrota. En kreppan leið hjá, og
nokkrum árum siðar- var Tide
Water orðið hluti af fyrirtæki
minu, Getty Oil.
Getty Oil er nú nr. 100 á listan-
um yfir stærstu fyrirtæki i
Ameriku. Efst á þeim lista er
General Motors, og siðan kemur
Esso. Getty er sá sterki i sinu fyr-
irtæki, en hlutabréfin eru dreifð-
ari i hinum.
Paul Getty dregur enga dul á,
hvernig hann varð milljarðaeig-
andi á oliu.
— Ég tók áhættu, segir hann,
og fjárfesti 40 milljónir dollara i
Saudi-Arabiu. Eftir margra ára
boranir gerðist hið stórkostlega
árið 1957. Oliulind fannst, sem
inniheldur meira magn, enþað,
sem álitið er vera i Norðursjón-
um, Sem tilheyrir Noregi.
Siðan þá hefur svarta gullið
gefið Getty tekjur upp á marg-
ar milljónir króna á dag og gert
hónn að rikasta manni heimsins.
Þess má geta, að Paul Getty
hefur tryggt sér dágóðan hlut i
i Norðursjávaroliunni. S.l. haust
keypti hann 25.000 hlutabréf i
'Norsk Hydro, auk þess sem hann
á hlutabréf i öðrum fyrirtækjum,
■» sem stunda boranir i Norðursjón-
um.
(þýtt og endursagt — gbk).
,og eftir að ræningjarnir skiluðu honum með afskoriðeyra
Páskaferð til Möltu
SÓLSKINSEYJU MIÐJARÐARHAFSINS
Farnar verða hópferðir til Möltu
uni pdskana. Malta er orðinn
vinsæll ferðamannastaður — en
laus við hið mikla
flóð ferðamanna
sem einkennir svo marga staði
Tryggið far áður en það verður um seinan
MALTA ER PARADÍS FERÐ
Malta hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamanninn:
★ Milt og þægilegt loftslag.
Góð hótel, þjónustu og víðkunna gestrisni.
Gæði í mat og drykk.
Baðstrendur lausar við alla mengun.
Glaðværð og skemmtanir við allra hæfi.
Hagstætt verðlag.
Sérstæð hótiðahöld um póskana.
FERÐAMIÐSTÖÐIN H.F.
Aðalstræti 9 • Miðbæjarmarkaðurinn • Simar 1-12-55 og 1-29-40
★
★
★
★
★
★