Tíminn - 10.02.1974, Page 13

Tíminn - 10.02.1974, Page 13
Sunnudatíu'r' 10. 'febrúar' ÍOÍÍ/ TíMlKN ’ Greifinginn á leið i hænsnahúsið. Eins og slyngur afbrotamaður varaðist hann að koma upp um sig með þvi að vera ávallt á ferðinni á sama tima sólarhringsins. Stundum fór hann f ránsferðir sinar að kvöidi, og stundum ekki fyrr en rétt fyrir birtingu. ÞJÓFURINN SEM LJÓS- MYNDAÐI AFBROT SITT Eggjaþjófurinn varð aö galopna kjaftinn til að ná taki á hænuegginu, en honum tókst að bera mörg egg á brott, án þess að nokkur merki sæjust eftir. .„im. ■ -&W8 , jý'i ,: . u . . % l ■ ... ► f- ■ ; gjágg • ííSÉi Ví Þannig tókst greifingjanum að bera eggin I kjaftinum á brott. A skurninni sjást merki eftir vigtennur hans, er. þeim stakk hann gegnum skurnina, og ná'ði þannig góðu taki á ránsfengnum. 4 Þarna er greifinginn kominn að hreiðrinu og grípur egg I kjaftinn, en með þvi að taka eggið upp, snerti hann viö þræöi, sem tengdur var myndavéiinni, og kom þannig upp um sig. Á sveitabæ einum i Noregi brá svo við i fyrravetur, að eggja- skortur varð á heimiiinu, þvi engu var likara en hænurnar væru alveg hættar að verpa. Hænsnin voru við góða heiisu, og allt gekk sinn vanagang i hænsna- húsinu, nema að þar fundust engin egg eða vottur þess, að þar hefði verið verpt. Var heimilis- fólkið helzt á þeirri skoðun, að þjófur væri á ferðinni, en hvar hann var, gat enginn látið sér detta i hug. En loks komst upp um eggja- þjófinn. Með hjálp lagtæks ljós- myndara og þjófsins sjálfs var sökudólgurinn afhjúpaður, og óyggjandi sönnunargögn lágu fyrir. t ljós kom, að greifingi, sem átti sér greni i námunda við bæinn, stal eggjunum. Ráns- f.erðir greifingjans i hænsnahúsið brutu i bága við viðteknar skoðanir á hegðun hans Því er haldið fram bæði manna á meðal og i sumum kennslubókum, að þetta rándýr verði gripið dráps- æði, þegar það kemst i hænsna- hóp, og drepi hverja einustu hænu, þótt það éti þær ekki. Meðfylgjandi myndir eru teknar með þeim hætti, að ljós- myndarinn kom myndavél fyrir i hænsnahúsinu, og var þannig búið um með virþráðum og öðrum til- færingum, að eggjaþjófurinn tók sjálfur myndirnar, er hann snerti þræðina, án þess að mannshönd kæmi þar nærri. I ljós kom, að greifinginn hefur læðzt undir hænsnaprikin, þar sem hænurnar sváfu rólegar, meðan eggjum þeirra var stolið. Þetta átti sér stað nótt eftir nótt, og þjófurinn lét aldrei freistast til að ráðast á hænurnar. Hann hefur þvert á móti haft mjög hægtum sig,hagað sér skynsamlega og hirt af- raksturinn af fiðurfénu án þess að gera þvi mein. ► Þessar eggjaskurnir fundust i greni greifingjans. Hann hefur brotið skurnina á hreinlegan hátt, og alltaf eins, étið innan úr og siðan raðað leifunuin i röð og reglu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.