Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 15
Sunnudagur 10. febrúar 1974. TÍMINN 15 Sálfræðingurinn Lisbeth Fanny Brudal mikilvægt að gera sér grein fyrir þvi, að hingað til höfum við ekki veitt þýðingu meðgöngutimans nógu mikla athygli. Það hefur mikið að segja að umhyggjan fyrir andlegri velferð barnsins hefjist þegar á meðgöngutiman- um. — Á hvern hátt verður það bezt gert? — Hér getur heilbrigðiseftirlitið komið til sögunnar og veitt hinum verðandi mærðum stuðning. Það hefur lengi verið skoðun min, að hinar hefðbundnu mærðadeilir hugsi of mikið um likamann og namskeiðin nær eingöngu hugsuð sem undirbúningur undir sjálfa fæðinguna. Fyrir fimm árum reyndi ég nýja tilhögun á námskeiðum fyrir vanfærar konur, þar lagði ég mikla áherzlu á hina sálrænu þætti i sambandi við meðgöngutimann, fæðinguna og umönnun ungbarna. Þessi nám- skeið samanstóðu af 8 timum i sálarfræði, 14 timum i undir- búning undir fæðinguna, 2 timum i ungbarnauppeldi, og einum og hálfum tima i matargerð, og einu feðrakvöldi, þar sem hinar verð- andi mæður mættu með feðrunum og geta valið á milli kvikmyndar um barnsfæðingu og umræðna um mismunandi málefni. Við höfum tekið eftir þvi, að við náum beztum árangri bæði and- lega og likamlega ef við byrjum námskeiðin með sálarfræðitim- um. Minn hluti námskeiðanna — sálarfræðin — byggist upp á umræðuhópum, þar sem bæði þátttakendurnir og ég tökum fyrir visst vandamál og spyrjum siðan spurninga. Takmarkið með þessum námskeiðum er meðal annars það, að hjálpa hinni verðandi móður til að lifa eins ró- legu lifi og mögulegt er meðan á meðgöntutimanum stendur og að undirbúa hana undir það að verða móðir. Min skoðun er sú, að það séu sálfræðingar, sem eigi að stjórna námskeiðum fyrir verðandi mæður. Konur, sem hafa tekið þátt i umræðuhópum með mér geta hringt á mæðra- deildina hvenær sem eitthvað er að. Þær segja að þeim finnist þær eigi heima hérna, hér mæti þær hlýju og skilningi og jákvæðu andrumslofti, og það má fyrstog fremst þakka starfsfólkinu sem vinnur hérna, þvi hefur tekizt að skapa þetta andrúmsloft. Það hefur einnig glatt mig, að allir þeir sem tóku þátt i námskeiðun- um halda hópinn. — Er ekki mikilvægt að umhverfið og þá sérstaklega eiginmaður hinnar verðandi móður geri sér grein fyrir þessum vandamálum? — Jú. Við höfum lika umræðu- kvöld fyrir karlmenn, þar legg ég megin áherzlu á hinar sálarlegu sveiflur, sem verða hjá konunni meðan á meðgöngutimanum stendur, og hvað það sé mikilvægt að hún sé ekki tauga- spennt. En karlmenn eiga lika við einhvers konar meðgöngu- tima að strlða. Þeir verða þvi einnig að fá tækifæri til að fá út- rás fyrir tilfinningar sinar og þeir virðist helzt takast það, þegar þeir eru innan um aðra karlmenn, segir Fanny Brundal að lokum. (Þýtt -kr-) 30 ára afmælisfagnaður Barðstrendingafélagsins verður haldinn i Dómus Medica laugar- daginn 16. febrúar 1974 og hefst með borðhaldi kl. 19. Dagskrá: T. Hátiðin sett, ávarp, Guðbjartur Egils- son 2. Ræða, Sigurður Haukdal, prófastur. 3. Einsöngur, frú Elin Sigurvinsdóttir. 4. Skemmtiþáttur, Guðmundur Guð- mundsson. 5. Hljómsveitin Hrókar leika fyrir dansi. Aðgöngumiðar seldir i Dómus Medica miðvikudaginn 13. febrúar og fimmtu- daginn 14. febrúar kl. 17-19. Borð tekin frá á sama tima. Stjórnin. Auglýsið í Tímanum Einmanalegt stendur þetta hús á svellaðri grund i fölri þorraskimunni i grennd við Rauðhólana. En þegar isa leysir, mun jörðin aftur litkast græn, og fólk vitja húss sins með börnin sin, svo að þau megi una nokkra sumardaga við læk og lyng. — Tímamynd: Róbert. Hvenær tekur lóðasjóður til starfa? BH-Reykjavik — A fjárhags- áætlun fyrir árið 1974 var sam- þykkt að veita 19.4 milijónir króna til lóðasjóðs samkvæmt reglum sjóðsins. Hvenær má vænta þess, að úthlutun hefjist? Alfreð Þorsteinsson borgarfull- trúi fylgdi þessari fyrirspurn sinni úr hlaði á fundi borgar- stjórnar sl. fimmtudag með þvi að minna á, að hugmyndin um lóðasjóð hefði frá upphafi átt miklum vinsældum að fagna, en fyrir nokkrum árum fluttu þeir Einar Ágústsson og Kristján Benediktsson tillögu um sjóðinn i borgarstjórn. Á sl. ári gerðist Albert Guðmundsson með- flutningsmaður um tillöguna, og náði hún fram að ganga. Sagði Alfreð, að fólk i nýrri hverfunum sérstakléga væri farið að huga að framkvæmdum i görðum sinum, sem hæfust með vorinu, og ef það ætti að fá fyrir- greiðslu lóðasjóðs, yrði að auglýsa eftir umsóknum ekki síðar en i marz-april til þess að mönnum kæmi úthlutun að gagni. Einnig sagði Alfreð, að ibúar i fjölbýlishúsum, sem hygðu á framkvæmdir við malbikun bila- stæða, hefðu sérstakan áhuga á þessu máli. Borgarstjóri kvað ekkert þvi til fyrirstöðu að farið væri að huga að sjóðnum núna ,,með hækkandi sól” og Albert Guðmundsson gerði nánari grein fyrir hug- myndinni með sjóðnum. Hér væri um að ræða úttekt i efni og fyrir- greiðslu hjá ýmsum fyrirtækjum á vegum borgarinnar, sem koma mætti mönnum að liði við stand- setningu lóða við hús sin. Styrktarfélag aldraðra á Suðurnesjum SUNNUDAGINN 3. febrúar s.l. var haldinn stofnfundur Styrktar- félags aldraðra á Suður- nesjum i húsi Fram- sóknarfélagsins i Kefla- vik. Markmið félagsins er að gæta hagsmuna aldraðs fólks. Mikill áhugi rikti meðal i'undargesta á málefninu. Formaður hins nýstofnaða félags er Matti ó. Ásbjörnsson i Keflavik. i Dodge Dart'74 er bíll hinna vandlátu. Dodge Dart '74 er glæsilegur, vandaður og á betra verði en flestir aðrir sambæri- legir bílar. DART SWINGER DART CUSTOM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.