Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 19

Tíminn - 10.02.1974, Blaðsíða 19
. _ . ». , -. v* ~ í,.q _# » * r Sunnudagur 10. febrúar 1974. TÍMINN Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór- arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif- stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusfmi 12323 — aug- lýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands, i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. i ■ -------.......—1 Varnarmálin Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, hélt ræðu á fundi Framsóknarfélaganna i Reykja- vik sl. fimmtudagskvöld og ræddi um varnar- málin. Utanrikisráðherra sagði, að hann væri að reyna að finna milliveg milli þess tvenns að standa við ákvæði málefnasamnings rikis- stjornarinnar um brottför varnarliðsins i áföngum annars vegar og hins vegar að leitast við að tryggja áframhaldandi öryggi Islands og uppfylla þær skuldbindingar, sem við stönd- um i gagnvart Atlantshafsbandalaginu. í samræmi við þetta hefði hann nú lagt fram i rikisstjórninni drög að tillögum um umræðu- grundvöll i viðræðunum við Bandarikjamenn, næst þegar þær fara fram. Þessar tillögur hefðu valdið nokkru umtali, en hann ekki talið rétt að birta þær i heild sinni, áður en rikis- stjórnin hefði tekið afstöðu til þeirra. Hann gerði þó grein fyrir þeim á fundinum i örstuttu máli og sagði: „Tillögurnar greinast i meginatriðum i fimm hluta. I fyrsta lagi er gert ráð fyrir þvi, að varnarliðið fari héðan i áföngum, til dæmis á næstu þremur árum. I öðru lagi það, sem ég hef kallað hreyfanleg- ar flugsveitir hafi lendingarleyfi á Keflavikur- flugvelli, þegar þurfa þykir, vegna eftirlits- flugs i norðurhöfum. I þriðja lagi, að hópur flugvirkja og annarra tæknimanna hafi bækistöð á Keflavikur- flugvelli til að annast þjónustu við rekstur þessara flugvéla. 1 fjórða lagi, að löggæzlusveit skuli jafnan vera á flugvellinum, og að því verði stefnt, að Islendingar geti haft þessa gæzlu með höndum. I fimmta lagi, að íslendingar taki að sér rekstur radarstöðva á Suðurnesjum og I Hornafirði, á sama hátt og við sjáum nú um rekstur slikra stöðva i Vik i Myrdal og á Gufu- skálum. Nokkur fleiri atriði er að finna i áðurgreind- um tillögum, en ég hirði ekki um að rekja þær frekar. Ég skal engu spá um það, hvaða undir- tektir þessar tillögur fá hjá Bandaríkjamönn- um eða Nato. Það kemur ekki i ljós fyrr en á næsta samningafundi. Mér þykir satt að segja liklegt, að þeir komi með gagntilboð, sem við verðum þá að skoða, þegar þar að kemur, og það biður sins tima, en ég vil aðeins segja hér, að þær tillögur, sem Bandarikjamenn hafa hingað til sett fram, eru langt frá þvi að vera aðgengilegar að minu mati. Þessar tillögur, sem ég hef lagt fram, eru meðal annars og fyrst og fremst settar fram til þess að reyna samningaleiðina til þrautar. Það hefur verið skoðun okkar Framsóknarmanna, að slikt beri okkur að reyna og að við eigum að gefa okkur þann tima til þess, sem þarf, og að óþolinmæði megi ekki undir neinum kringum- stæðum ráða ferðinni.” Kvaðst utanrikisráðherra vonast til þess, að fullt samkomulag næðist að lokum, svo ekki þyrfti að koma til uppsagnar varnar- samningsins. Skoðanir væru skiptar um þetta mál i Framsóknarflokknum, en hann gerði sér vonir um, að meginþorri Framsóknarmanna gæti fallizt á þessa málsmeðferð. -TK. Don G. Campbell, Sunday News: Hvað gera Arabar við dollarana? Reyna þeir að kaupa upp bandarísk fyrirtæki? Hin ört vaxandi dollaraeign Arabarikjanna veldur Bandarfkjaniönn um ótta og margvislegum heilabrotum. SÍFELLD hækkun Araba á hráoliuverðinu hefur valdið ýmsum efasemdum og mikl- um kviða. Hún er talin einhver hastarlegustu umskipti i efna- hagsmálum siðan Vestgotar endurseldu Rómverjum höfuðborg sina á sinum tima. Enginn veit, hvort eða hvenær létt verður af þeim hömlum á afgreiðslu, sem settar voru á i október i haust. Hitt virðist ljóst, að verðið verður ekki lækkað aftur að neinu ráði, en verð hráoliunn- ar hefur hækkað á þremur ár- um úr einum dollar og áttatiu sentum i ellefu dollara sextiu og fimm sent á tunnu. SUMIR sérfræðingar i efna- hagsmálum óttast þó mest, að hækkun oliuverðs i Banda- rikjunum og allra vara sem unnar eru úr oliu, sé upphaf að öðru meira og verra. Hvað leitir til dæmis af margföldun dollarastraumsins til Araba- rikjanna, ofan á þann fimmt- ung allra dollara i eigu er- lendra manna, sem þar var fyrir? Haldið er fram, að Araba- rikin fái fyrir selda oliu 95 milljarða dollara á þessu ári. (Sambærilegar tölur voru 15 milljarðar dollara árið 1972 og 30 milljarðar doilara árið 1973). Felur þetta i sér hættu á verðfalli dollarans og áföllum i bandarisku efnahagslifi? Gerir þetta ekki fyrirfram að engu áhrif allra ráðstafana, sem stjórnarvöld kunna að gripa til gegn verðbólgunni? Ýtir þetta ekki undir hækkun gullverðs á frjálsum markaði og grefur þar með undan verð- gildi dollarans? HAGFRÆÐINGAR telja si- aukna dollaraeign Arabarikj- anna uggvænlega yfirleitt. Þeir eru að visu mismunandi svartsýnir. Flestum kemur þó saman um, að hækkun oliu- verðsins geri að engu fyrri vonir Bandarikjamanna um, að greiðslujöfnuður verði hag- stæður um nokkra milljarða dollara á þessu ári. Þetta gæti valdið þvi, að gengi dillarans .gerist valt á nýju. Svo furðulega bregður þó við, að gengi dollarans hefir styrkzt _þrátt fyrir oliu- kreppuna, en horfurnar i þvi efni þóttu meira en vafasamar fyrir nokkrum-mánuðum. Enginn virðist geta svarað þvi, hvernig þetta hefur mátt verða, þegar öll eðlileg rök virtust benda i þveröfuga átt. Þessi framvinda hefur vakið örlitla vonarglætu um, að okk- ur Bandarikjamönnum kunni að takast að standa af okkur áhrifin frá dollarastraumnum til Arabarikjanna. ROBERT H. Parks, helzti hagfræðingur Blyth, Eastman Dillon & CO sagði um þetta. '"Dollarinn hækkar i verði vegna flótta frá öðrum gjald- eyri, enda virðast gull og doll- arar öruggari eign en gjald- eyrir annarra þjóða. Hér gætir að sjálfsögðu einnig áhrif þess, að aðrar þjóðir eiga við að striða miklu örari verð- bólgu en við Bandarikja- menn”. Arthur Okun, sem var aðal- ráðgjafi Lyndon Johnsons forseta i efnahagsmálum, seg- ir þetta „viðfelldnari” kenn- ingu en flestar aðrar. Sumir hagfræðingar hneigjast jafn- vel að þvi, að Arabar muni af þessum sökum gera sér að góðu að safna dollurunum, en reyni ekki að nota þá til spell- virkja. En hin hugsanlegu spell- virki valda einmitt mestum áhyggjum. Sumir óttast, að Arabar kunni að reyna að nota dollaraeign sina til þess að eignast verulegan hluta i bandariskum iðnaði. Aðrir kviða þvi, að þeir noti auðæfi sin til þess að koma sér upp vigbúnaði, sem ógnað geti h'eimsbyggðinni. DR. KENRY Kaufman er aðalhagfræðingur Saloman Brothers Hann trúir ekki, að Arabar láti sér nægja að safna dollurum: ,,Það er ekki til neins að fara fram á, að Arabar láti sér nægja að taka fé fyrir auðlind- ir sinar” segir hann.” Þetta hafa þeir ávallt gert fram að þessu, en ekki vegnað vel, þar sem allur hinn erlendi gjáld- eyrir hefur lækkað i verði jafnt og þétt”. Þarna mun að finna undir- rót þess orðróms, að Arabar muni ekki láta sérnægjaað margfalda oliuverðið, heldur hafi i hyggju að krefjast greiðslu i gulli. Þessi kenning kann að vera vafasöm, en hún er eigi að siður i samræmi við hugmyndir Kaufmans um ástæður oliukreppunnar: „Vandinn er sá, að aðstaða okkar til samninga við Araba er ákaflega erfið, meðan við eigum i höggi við jafn öra verðbólgu og raun ber vitni. Við eigum yfir höfði okkar miklu meiri verðhækkanir til þess að vega gegn verð- bólgunni . ÞARNA virðast helzt horfur á siendurteknum vandræðum: Arabarhækka oliuverðið. hinn frjálsi heimur verst með auk- inni verðbólgu. Arabar hækka aftur verið til þess að vega gegn verðbólgunni.og þannig koll af kolli. Naumast er nema eðlilegt. að hinn frjálsi heimur livggi á hefndarráðstafanir gegn verð- striði oliusölurikjanna. Eliot Janeway hagfræðingur bendir i þessu sambandi á ráðstafan- ir eins og „útflutningsskatt á landbúnaðarafurðir. en það er eitt bitrasta vopnið, sem við getum beitt i baráttunni við Arabarikin. Vafasamt verður þó að telja, að Bandarikjamenn hafi einir sér bolmagn til þess að vinna bug á vörnum Araba. Fjögur öflustu oliusölurikin eru Saudi-Arabia, Kuwait. Iran og lrak. Bandarikjamenn seldu þeim vörur lyrir aðeins einn milljarð dollara árið 1972. Ekki kom nema nokkur hluti af þessu fyrir landbúnaðar- vörur. og þvi þyrfti ærið háan útflutningsskatt til þess að vega gegn verðhækkun oliunn- ar. "EFNAHAGSLEGAR hefndarráðstafanir eru að visu nokkurs virði”. sagði Kaufman um daginn. „En' áhrifamáttur þeirra er afar takmarkaður. auk þess sem slikar ráðstafanir krefjast óhjákvæmilega sameinaðs átaks —• bæði um verð- hækkanir óg sölubann — en það hefur jafnan revnzt tor- velt i framkvæmd fyrir hinn frjálsa heim.” Verðbólgan i heiminum veldur afar umfangsmiklum og erfiðum vanda. og i þvi sambandi velta smámunir einir á þvi, hvernig oliu- furstarnir verja fé sinu. Ærin klaldhæðni fólst i samliking- unni. sem Okun hagfræðingur viðhafði um þetta efni um daginn: „Oliuvandinn er ekk- ert lamb að leika við. Það er ekki svo auðvelt að prenta oliu. Þarna siglum við alger- lega ókortlagðan sjá”.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.