Tíminn - 10.02.1974, Qupperneq 36
36
TÍMINN
Sunnudagur 10. febrúar 1974.
O Leyndarmdlið
um uppkast að skáldsögu að
ræða, sem hún væri i þann veginn
að fara með til útgefandans, og
hún ætti þar að auki vingott við
Rússann, og ekkert annað. Judith
Coplon var dæmd, en þegar málið
var tekið fyrir áfrýjunardómstól,
var hún sýknuð og FBI varð að
láta sér það gott þýkja. Ekki var
hún sýknuð vegna þess að hún
væri saklaús, þvi meira að segja
dómararnir viðurkenndu að ekki
væri nokkur vafi á sekt hennar,
og að hún hefði átt að fá dóm i
samræmi við það. Annað og
meira lá að baki sýknuninni. FBI
hafði brotið ákveðnar reglur,
þegar rannsókn málsins stóð yfir,
og beitt ólöglegum aðferðum.
Slíkt gátu dómstólarnir ekki fellt
sig við. Sem dæmi má nefna, að
FBI hafði látið hlera simtöl
Judith Coplons, og það var
ólöglegt athæfi. Þá hafði hún
verið handtekin án þess að fyrst
hefði verið gefin út
handtökuskipun.
Þannig voru staðreyndir
varðandi sekt Judith Coplon að
engu hafðar af þeim sökum
einum, að FBI hafði misnotað
aöðstöðu sina við rannsókn máls
hennar. Það voru margir, sem
mótmæltu málsmeðferðinni, en
það var ekki sama fólkið og
mótmælti meðferðinni á
Rosenberg-hjónunum, eins og
skiljanlegt er, og ævintýrið um
Judith Coplon gleymdist fljótt.
En málið hefði ekki átt að talla i
gleymskunnar djúp, svo fljótt
sem það gerði. Það sannaði
veikleika réttarfarsins, og um
leið sýndi það fram á að það á
ekki að vera hægt að misbeita
þvi. Það sýndi greinilegar en
nokkuð annað, að FBI er ekkert
Gestapo og að engin yfirvöld hafa
leyfi til þess að brjóta sin eigin lög
og reglur, og beita ólöglegum
aðferðum.
Þetta er gott að vita, og kannski
hefði verið betra, að menn hefðu
munað 'eftir þessu, ekki sizt nú á
dögum Watergate-málsins. —
<Frbi bvddi.)
Allt hár þarf nast
hárnæringar.
terminal
er hárnæringin
sem ekki þarf að
skola úr hárinu.
Notiðterminal
Quick — þaðer
Hringið
og við
sendum
blaðið
um leið
SVALUR
eftir
Lymati Young