Fréttablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 40
15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR12
LESTUR/ÁHORF: NOKKUR DÆMI ÚR NÝRRI GALLUP KÖNNUN *
*Upplýsingarnar í þessari auglýsingu eru fengnar úr nýafstaðinni fjölmiðlakönnun Gallup í október s.l..
HEIMILI Í FBL
FIMMTUDAGUR
FJ
Ö
LM
IÐ
LA
R
0
20
40
60
52.1%
FORSÍÐA MBL
SUNNUDAGUR
45.8%
TÍMARIT MBL
MIÐVIKUDAGUR
32.2%
GÍSLI MARTEINN
Á RUV
MEÐALÁHORF
VIKUNNAR
37%
INNLIT ÚTLIT Á
SKJÁ EINUM
UPPSAFNAÐ
31%
IDOL
stjörnuleit
UPPSAFNAÐ
44,8%
Lesendur „Allts“ er fólk með áhuga á efni
hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur
hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að
þeir staldra við.
Það er með öðrum orðum, vel skilgreindur og
áhugasamur hópur, sem skoðar t.d. þessa
auglýsingu.
Á opnunni „heimili og fleira“ fimmtudaginn
28. október voru 12 auglýsingar. 56% kvenna á
aldrinum 18-49 ára eða 34.555 konur skoðuðu
opnuna og gátu veitt hverri auglýsingu athygli
eftir áhuga og eins lengi og þær vildu.
Til samanburðar voru 53 auglýsingar í Innlit
Útlit á SkjáEinum þriðjudaginn 26. október. Þær
fengu áhorf 37% sama hóps eða 23.025 konur
og höfðu þær að meðaltali 14 sek. til að horfa á
hverja auglýsingu.
Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka
auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur
áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til. „Allt“
er löngu tímabær og áhugaverður valkostur á
íslenskum auglýsingamarkaði.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
SAMANBURÐUR VIÐ AÐRA MIÐLA
[ 25-54 ára; Heimilistekjur yfir 400 þús. ]
- markvissar auglýsingar -
Pakkajól í Kringlunni ganga vel og hefur safnast þar drjúgt af pökkum. Hér sést Dorrit Moussaieff forsetafrú setja pakka undir tréð með dyggri aðstoð barna í Kringlunni. Gjafirnar verða afhentar Fjölskylduhjálp Íslands og
Mæðrastyrksnefnd fyrir jól/Fréttablaðið:GVA
SJÓNARHORN
KAUPVENJUR
Bjargar ekki vörum úr verslunum
Magnús Kjartansson tónlistarmaður telur að stundum séu vörurnar
betur geymdar í versluninni.
Hver er uppáhaldsbúðin þín? Hljóðfæraverslanirnar, Apple-búðin í Skipholti
og hestavöruverslanirnar.
Hvað finnst þér skemmtilegast að versla? Tæki og tól sem tengjast tónlist
og tækni.
Verslar þú mikið í útlöndum? Já, það má segja það. Ég ferðast mikið og þar
er nú oft meira úrval á mínum vettvangi og stundum betra verð. Ég er mikið á
Norðurlöndunum og í Ameríku.
Einhverjar venjur við innkaupin? Já, það er að skoða vel og kaupa aldrei,
aldrei neitt í fyrstu lotu.
Skyndiákvarðanir þegar þú verslar? Þær eru versti óvinur manns með mín
áhugamál. Ég hef þá kenningu að leiðarljósi að það fari ekkert illa um vöruna
í versluninni, ég þarf ekkert að koma henni til bjargar, sumt er betra geymt í
versluninni. Ég vil aldrei kaupa neitt nema að vel hugsuðu máli, bara það sem
mann vantar og þarf á að halda, annað er dýrt spaug.
MAGNÚS KJARTANSSON TÓNLISTARMAÐUR SEGIST HAFA MEST GAMAN
AF ÞVÍ AÐ KAUPA TÆKI OG TÓL