Fréttablaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 52
36 15. desember 2004 MIÐVIKUDAGUR
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
• Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti miðaprentarinn
Umboðsaðili:
QL-550
NÝTT !
Kynningarverð
t i l áramóta 12.999 kr. Augl. Þórhildar 1390.39
Ný plata í mars
Söng- og leikkonan
Jennifer Lopez gef-
ur út sína næstu
plötu þann 1. mars
á næsta ári. Nefn-
ist hún Rebirth og
mun fyrsta smá-
skífulag hennar
kallast Get Right.
R a p p a r i n n
Fabolous syngur í
endurhljóðbland-
aðri útgáfu af Get Right og Marc
Anthony, eiginmaður Lopez, syngur
í lagi sem ekki hefur enn fengið
nafn. Einnig kemur rapparinn Fat
Joe við sögu í einu lagi. Á meðal
annarra laga á plötunni verða: Still
Around, Cherry Pie, Hold You
Down og Step Into My World. ■
■ TÓNLIST
JENNIFER
LOPEZ Jennifer
Lopez gefur út
næstu plötu sína
í mars.
Stuttskífan Animamina með
hljómsveitinni amina er komin út.
Fjögur lög er að finna á skífunni,
sem var unnin í sumar.
Amina hefur verið starfrækt
frá 1997. Upprunalega var sveitin
klassískur strengjakvartett í Tón-
listarskólanum í Reykjavík og hét
þá Anima. Árið 1999 fékk Sigur
Rós kvartettinn til að spila með sér
á útgáfutónleikum í Íslensku óper-
unni og eftir það hefur hún spilað
með hljómsveitinni víða um heim á
hinum ýmsu tónleikaferðum.
„Það hefur blundað lengi í
okkur að gera okkar eigin efni.
Við vorum ekki að túra með Sigur
Rós í sumar og ákváðum því að
loka okkur inni og gera tónlist,“
segir María Huld Markan Sigfús-
dóttir, einn af fjórum meðlimum
þessarar kvennasveitar. „Síðan
erum við bara að bíða eftir tæki-
færi til að gera stóra plötu,“ bætir
hún við. Fer það aðallega eftir því
hvernig tónleikaferðum Sigur
Rósar verður háttað í framtíðinni.
María Huld segir það frábært að
spila með Sigur Rós. „Við eigum
rosalega vel saman. Það er þægi-
legt og skapandi að hafa alla
svona saman,“ segir hún. Telur
hún mögulegt að amina muni hita
upp fyrir Sigur Rós í framtíðinni
en það eigi allt eftir að koma í ljós.
Hefðbundin hljóðfæraskipan
er ekki til staðar hjá amina heldur
er stuðst við strengi, klukkuspil,
heimatilbúin hljóðfæri, sömpl og
ýmislegt fleira. María á erfitt með
að skilgreina tónlistina. Ekki sé
um að ræða hefðbundið popp eða
klassík. „Þetta er svona atmó-tón-
list. Hún ræðst meira af stemn-
ingu en nokkru öðru. Við höfum til
dæmis notað rússneskar borð-
hörpur í lögunum okkar og heima-
tilbúinn „glasófón.“ Þetta er eigin-
lega mjög myndræn tónlist.“
Nýja stuttskífan er komin út
hjá 12 tónum og verður henni
einnig dreift í Bretlandi og
Bandaríkjunum. Til að kynna skíf-
una mun amina halda tónleika í 12
tónum á laugardag og hefjast þeir
klukkan 16:30.
freyr@frettabladid.is
AMINA Hljómsveitin amina hefur gefið út stuttskífuna Animamina. Sveitina skipa Edda
Rún Ólafsdóttir, Hildur Ársælsdóttir, María Huld Markan Sigfúsdóttir og Sólrún Sumarliða-
dóttir.
Borðhörpur og „glasófón“
■ TÓNLIST
POPPFRÓÐASTI PÖPULLINN
Fréttablaðið heldur áfram að spyrja poppfróðan
pöpul spjörunum úr í tilefni af útgáfu borðspilsins
Popppunkts. Blaðamenn bregða sér í hlutverk Felix
Bergssonar og Dr. Gunna, höfunda spurninganna, og
spyrja tíu spurninga af handahófi úr spilinu.
Átta keppendur hófu leik en aðeins einn mun standa
uppi sem sigurvegari og hlýtur Popppunktsspilið í
verðlaun. Í fyrstu umferð bar Stefán Máni rithöfund-
ur sigurorð af kraftakarlinum Hjalta Úrsusi og komst
þar með í undanúrslit og í annarri sigraði handbolta-
konan Harpa Melsted rithöfundinn Kristínu Ómars-
dóttur. Í síðustu umferð áttust við Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna, og Geir Jón Þóris-
son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. Í síðustu umferð
átta liða úrslita mætast Katrín Júlíusdóttir þingkona
og Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona.
4. UMFERÐ
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Katrín stóð sig
vel í aukaspurningunum en átti í meiri erf-
iðleikum með hraðaspurningarnar tíu.
ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR Elva Ósk var
með svarið við spurningu 5 á vörunum en
hafði það ekki.
1. (Pass)
2. (Pass)
3. (Pass)
4. (1993)
5. (Whitney
Houston)
6. (Pass)
7. (Rétt)
8. (Helgi Björnsson)
9. (Pass)
10. (Já)
RÉTT/RANGT
1. (Pass)
2. (Pass)
3. (Pass)
4. (Pass)
5. (Pass)
6. (Pass)
7. (1971)
8. (Sveinn
Kaldalóns)
9. (Pass)
10. (Rétt)
KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR
Katrín svaraði tveimur aukaspurningum rétt og er
komin í undanúrslit eftir æsispennandi keppni.
Alls stig1 Alls stig1
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
RÉTT/RANGT
Rétt svör: 1: Sigurður, 2: Police, 3: Sesar A, 4: 1996, 5: Madonna, 6: Placebo, 7: 1977, 8: Ragnar Bjarnason,
9: John Bonham, 10: Nei, 11: 1990, 12: Oasis, 13: Hiroshima, 14: Paul Weller, 15: Þorvaldur Bjarni.
10 HRAÐASPURNINGAR
1. Hvað heitir söngvari Kentár?
2. Outlandos D´Amour er fyrsta plata ...?
3. Hver er bróðir Blazroca?
4. Hvaða ár fór Anna Mjöll í Evrovision?
5. Hvaða söngkona lék aðalhlutverkið í Swept Away?
6. Með hvaða hljómsveit syngur Brian Molko?
7. Hvaða ár fæddist Svala Björgvins?
8. Hver fékk heiðursverðlaun FM 957 2002?
9. Hvað hét trommari Led Zeppelin?
10. Var Magnús Þór Sigmundsson í Fræbblunum?
5 AUKASPURNINGAR
11. Hvaða ár spilaði Bob Dylan á Íslandi?
12. Hvaða sveit gerði plötuna Heathen Chemistry?
13. Hvert er fyrsta lagið á Geislavirkir Utangarðsmanna?
14. Hver var söngvarinn í The Jam?
15. Bubbi, Sigga og ...?
✓
✓
11. (1982)
12. (Sex Pistols)
13. (Rétt)
14. (Pass)
15. (Rétt)
RÉTT/RANGT
11. (1977)
12. (Bítlarnir)
13. (Pass)
14. (Pass)
15. (Rétt)
✗
✗
✗
✗
✗
✗
✗
RÉTT/RANGT
✓
✓
✓
Alls stig3 Alls stig2