Tíminn - 20.12.1974, Blaðsíða 7
Föstudagur 20. desember 1974.
TÍMINN
7
Ódýrar, skemmtilegar og fróðlegar bækur
FAÐIR MINN
firrrf'/UÍjAJ
1 RAGNKEI DÖR BR V N | Ó I. F S DÓTTÍ R
Faðir minn — Læknirinn Bjarni Jensson —Skúli Árnason — Siguröur Magnússon — Guðmundur Hannesson — Ólafur Finsen — Ólafur Thorlacius — Ingólfur Gislason — Þóröur Sveinsson — Matthlas Einarsson — Ólafur ó. Lárusson — Guömundur Thoroddsen — Helgi Tómason — Haraldur Jónsson — GIsli Pálsson — Lesið þessa skemmtilegu læknabók. Þeir uröu margir þjóðsagnapersónur þegar I lifenda lifi, þessir læknar. F-HÁ MIDaSCAMBANDl GUORÚNAR SIGURÐAROÓTTUR
iUl
Ragnheiður Brynjólfsdóttir
II. bindi
Frá miðilssambandi Guðrúnar Sigurðar-
dóttur á Akureyri.
Bókin um Ragnheiöi Brynjólfsdóttur varö metsölubók slö-
asta árs þrátt fyrir óvenjulegt og ósmekklegt nfö ákveöins
ritdómara. Sföara bindiö er aö ailra dómi enn skemmti-
legra en hiö fyrra og sala þess stefnir beint á tindinn. —
Hefur þú eignast siöara bindiö af Ragnheiöi? Ef ekki, þá
frestaðu ekki aö kaupa þessa óvenjulegu bók, hún gæti
hæglega selst upp fyrir jólin.
Jakobina Sigurðardóttir:
Lifandi vatnið.........
Skáldsagan, sem mun veröa talin skáldsaga ársins J974.
Gnæfandi tindur á skáldskaparferli höfundarins, bókTsem
enginn unnandi Islenzks skáldskapar getur látiö fram hjá
sér fara ólesna. — Svona er hægt aö skrifa ef maöur kann
til þess.
JAKOHINA
SIGURDAIÍDtrn IR
Elinborg Lárusdóttir:
Leit mín að framlífi
Fjöiþættar frásagnir af dulrænni reynslu höfundarins,
sýnum hennar og dulheyrn. Hér segir einnig frá óvenju-
legri reynslu hennar á sérstæöum miöilsfundum, fágætri
trúarvissu og staöfastri sannfæringu um fagurt framlff
aö jarövist lokinni. Þetta er fögur bók og einlæg frásögn
mikillar trúkonu.
aaMWBu.*
LEITMIN
Afl.
FRAMLIFI
VAI.GKIR SIGUROSSON'
• ■
——-
Valgeir Sigurðsson:
Ef liðsinnt ég gæti
Fimmtán viötöl viö landskunna menn og aöra minna
þekkta. „Stundum leitaði ég eftir æviatriöum manna og
lýsingu á horfinni tiö.Sumir ræddu um tómstundavinnu
sina og hugöarefni, aörir töluöu um vandamál og viö-
fangsefni Höandi stundar. Hér er jafnvel sagt frá vlsinda-
legri starfsemi”, segir höfundurinn I formála — Þessi bók
eykur vlösýni og skilning, hún er stórfróöleg og skemmti-
leg.
Ragnar Ásgeirsson:
Skrudda I - III
Nú er lokabindið af Skruddu komið, fjölbreytt aö efni og
skemmtilegt. Skrudda geymir sögur, sagnir og kveöskap
úr öllum sýslum landsins, skráöar á fögru máli, þvi Ragn-
ar var smekkmaöur á Islenzkt mál, sjófróöur og skemmti-
legur sögumaður. i þessu bindi er bókarauki: bernsku-
minningar Ragnars vestan af Mýrum, sýnishorn af Ijóöa-
bréfum hans og lausavlsum og ritgerö um Ragnar eftir
Guömund Jósafatsson frá Brandsstööum, auk itarlegrar
nafnaskrár yfir öll bindin.
Clfar Þormóðsson:
Ákæran. Sóknarnefndin
gegn séra Páli
„Ákæran getur minnt á Kristnihald undir Jökli: biskup I
Reykjavlk, prestur I þorpi úti á landi. Frásagnaraöferöin
er hins vegar nær Gunnari og Kjartani Vésteins Lúövlks-
sonar..” — Erlendur Jónsson I Morgunblaöinu. —
Þessi bók vekur umtal og kann jafnvel aö hneyksla suma.
Eruö þér á bandi prestsins eöa sóknarnefndarinnar?
Oscar Clausen:
Sögn og saga III
t þessu lokabindi þessa sagnafiokks segir m.a. frá hestum
höfundarins, en hann var mikill hestamaöur og hestaunn-
andi og haföi samband viö marga meö sömu áhugamál.
Auk þess eru hér ýmsir aörir fróölegir og skemmtilegir
þættir vlösvegar aö af landinu. — Bók hestamanna og
þeirra, sem þjóölegum fróöleik unna.
SIGV M.DI
HIALMARSSON
.4 ww**
íoWSk «< fcovxSKf*-**.
WíttUi
Sigvaldi Hjálmarsson:
Tunglskin í trjánum
Enginn tslendingur þekkir Indland og Indverja eins og
Sigvaldi, sem hefur feröast um landiö þvert og endilangt,
rölt um þorp og byggðir, rætt viö krakka og karla, helga
menn og vitringa, hlýtt á skarkala stórborgarllfsins og
gefiö sig þögninni á vald meö hinum þögiu. Þetta er heill-
andi feröabók, sem opnar sýn inn I töfrandi undraheim.
INGDLFUR JÓNSSON
FRÁ PBESTSBAKKA
(piHeqaú
^oqntr
Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka:
Þjóðlegar sagnir
Hér kveður viö nýjan tón I sagnasöfnun, margar sögurnar
eru sérstæöar og óvenjulegar og sumar meinfyndnar.
Höfundur hefur vlöa leitað fanga, mest þó meðal alþýöu-
fólks, en helztu sögumenn hans eru Steinunn ■Guömunds-
dóttir á Stóru-Hvalsá I Hrútafirði, Ingibjörg Guömunds-
dóttir á Efri-Brunná í Dalasýslu og Jón Guðlaugsson á
Vopnafiröi
Peter Freuchen:
Æskuár mín á Grænlandi
Ný og vönduö þýöing Andrésar Kristjánssonar fyrrum rit-
stjóra. Þessar Grænlandsminningar Freuchens eru mcöal
skemmtilegustu feröaminninga, sem skráðar hafa veriö.
Þeir, sem ekki hafa kynnst frásagnarsnilld hans og sér-
stæöri og djarfri klmnigáfu og eiga þessa bók ólesna, eru
öfundsveröir, þvl bókin er I einu oröi sagt: óviðjafnanleg.
Jón Gíslason:
Jp Æ Úr farvegi aldanna II
IT Hér sagt frá fyrirhleöslunni miklu á Brúnastaöaflötum og
||§i PFTFR koma þar margir merkir og stórhuga menn viö sögu, en
|p MU'.l'CHLN : hæst bcr nafn Glsla búfræöings Gislasonar frá Bitru, sem
F í!i geröi áætlun um verkiö og stjórnaöi þvl. Sagt er frá
byggingu Þjórsárbrúarinnar, gagnmerkum áfanga I sam-
«K göngumálum þjóðarinnar, þáttur er um loönusilunginn I
Úlfsvatniog annar um kálfinn I Gegnishólum og eru þeir
L9JI báöir sérstæöir og furöulegir. Loks er frásögn af spadóms-
gáfu fugla og eggjasöfnun bræöranna Gisla og Hannesar á Stóru-Reykjum.
/0« 61SlAS0N XJ'R.
FLAJFÍ.-VHCJI
A.T-,T3A-lSnsrj±
Theresa Charles:
Ást og ættarbönd
Roberta var oröin liölega tvltug þegar Maynie sagöi henni
söguna af ógnum Kelpiesloch og þvl, hvernig hún rændi
henni sem ungu barni og hratt barnavagni hennar út I
vatnið. Hún var aö hefna sln á gamla jarlinum og konunni,
sem haföi náö eiginmanni hennar frá henni. En yrði sögu
Robertu trúaö, þegar hún kom sem væntanlegur erfingi,
eöa gat hún átt von á aö veröa næsta fórnarlamb vatnsins?
— Æsispennandi ástarsaga.
E4RSÆLDÁR
RIKIÐOG
MANNGILDIS
STEFNAN
KristjánRiðriksson
Kristján Friðriksson:
Farsældarríkið og
manngildisstefnan
Karl Kristjánsson fyrrum alþingismaöur segir um bók-
ina: „Tillögur hans eru grundvallaöar á þeirri llfsskoöun,
aö hver maöur hafi skyldur aö ynna eftir þvi, sem hann
hefur getu til frá skapara sinum, en eigi jafnframt heimt-
ingu á aö njóta réttlætis, mildi og mannhelgi. Bókin er
höfundi til mikils sóma. Manndómlegt framlag mikils
llfsáhugamanns.” — Þetta er bók fyrir áhugamenn um
félagsmál og pólitlk. Þeir veröa e.t.v. ekki sammála
Kristjáni, en þeir veröa aö lesa bókina.
Barbara Cartland:
Týndir töfrar
Garrland
77
t skóginum hjá sveitasetri slnu hittir Alton lávaröur unga
konu. Hún er fögur og leyndardómsfull og neitar aö skýra
frá hver hún er. En þegar hún trúir honum fyrir þvi aö hún
sé skyggn, biöur hann hana aö Ilta inn I framtlðina fyrir
sig. Hún segir honum aö kona muni leggja fyrir hann
snöru, aö hann eigi aö leita aö persónu, sem hann finni
ekki og aö framundan sé myrkur og blóö, — mikið blóö.
— Saga full af leyndardómum og spennu.
íslendinga sögur
með nútima stafsetningu
Nú eru allar islendinga sögur og þættir komnar út I 8
bindum á þvi máli, sem viö ritum og tölum i dag. Er þetta
eina heildarútgáfa sagnanna á nútimamáli og geta þvl
allir tslendingar, jafnt ungir sem aldnir, notiö sagnanna
til fulls.
....ritháttur skiptir I raun og veru máli — þaö fer ekki
hjá þvl aö hinn gamli, samræmdi ritháttur var fráhrind-
andi aö ýmsu leyti, ekki sizt ungu fólki”, segir Arni Berg-
mann I ritdómi.
ÍSUN/.KAK } OK NSÖU.U R
moA
<, Uk
Skuggsjá — Bókabúð Olivers Steins — Hafnarfirði