Tíminn - 20.12.1974, Blaðsíða 3
Föstudagur 20. deseraber 1174.
TÍMINN
3
Síldveiðum í
Norðursjó lokið
— aflaverðmætið 1160 milliónir króna
gébé-Reykjavik. Slldveiöum i
Norðursjo er nú lokiö, en slðasti
báturinn seldi 3. desember s.l. og
er ekki búizt við að fleiri sölur
fari fram á þessu ári. Heildar-
aflinn er heldur minni heldur en i
fyrra, en verðmæti aflans meira.
Heildaraflamagnið i fyrra var
43.860 tonn, að verðmæti ca. 1122
milljónum króna, en nú er aflinn
38.571 tonn að verðmæti ca. 1160
milljónum króna.
Aflahæsta skipið, var Loftur
Baldvinsson EA með 2379,1 lest,
og var aflaverðmæti skipsins 67,9
milljónir króna. Meðalverð á kg.
var 28.56 kr. Næst hæsta skipið
var Guðmundur RE með 1963,5
tonn að verðmæti 55,8 millj. kr.
Meðalverð á kg. var 28.43 kr.
Voru þetta einnig aflahæstu
skipin i fyrra.
Inga Birna Jónsdóttir, formaður menntamálaráðs, afhendir Jóni Sigurðssyni, formanni Rangæinga-
félagsins formlega málverkið, sem þau standa hér hjá „Njálsbrennu” eftir Marlu H. ólafsdóttur. Tlma-
mynd: G.E.
Rangæingar fó mdlverk að gjöf
gébé— Reykjavik. — Mennta-
málaráð festi kaup á málverki
eftir Marlu H. ólafsdóttur, og af-
henti Inga Birna Jónsdóttir, for-
maður menntamálaráðs, Jóni
Sigurðssyni formanni Rangæ-
ingafélagsins, málverkið Rangæ-
ingum til eignar I gær.
Frá fyrri árum hefur
Menningarsjóður gætt fjár sem
Alþingi veitti til þess að láta gera
söguleg listaverk. Þegar Maria
H. ólafsdóttir listmálari hélt
málverkasýningu I Norræna hús-
inu fyrr á þessu ári, þótti málverk
hennar „Njálsbrenna” falla undir
þessa fjárveitingu. Afhenti
menntamálaráð Rangæingum þai
til eignar i gær, og er Jón Sigurðs-
son þakkaði fyrir hönd Rangæ-
inga, sagði hann, að málverkinu
hefði þegar verið valinn staður i
Skógaskóla.
Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur gat i fáum orðum listakon-
unnar, Maríu H. ólafsdóttur. Hún
er Vestfirðingur að uppruna og
var með fyrstu nemendum i
Handiðaskólanum. Maria fór
utan til Danmerkur haustið 1945
og hóf nám við Konunglegu aka-
demluna i Kaupmannahöfn.
Marla er gift Alfred Jensen list-
málara og eru þau hjón búsett i
Danmörku.
770 milljónir króna
til menningarmála
á Norðurlöndum
Svíar greiða 45% fjársins
Á fundi menntamálaráðherra
Norðuriandanna, sem haldinn
var i Osló fyrir skömmu voru
m.a. til umræðu fyrirhuguð sam-
eiginleg fjárframlög Norður-
landarlkja til menningarmála á
árinu 1975. Er gert ráð fyrir sem
svarar 770 milljónum islenzkra
króna til ýmissa samnorrænna
verkefna, en fjárhæðin er háð
samþykki þjóðþinganna.
Greiðsluhiutfall þjóðanna er
þannig: Danmörk 22%, Finnland
16%, tsland 1%, Noregur 16% og
Sviþjóð 45%.
A fundinum var fjallað um
meginreglur fyrir norrænt
menningarsamstarf innan
ramma menningarmálasamn-
ingsins, sem kom til fram-
kvæmda i ársbyrjun 1972. Er
áhugaefni, að samstarfið nái I
vaxandi mæli til fjölmennra
félagssamtaka. — Þá var rætt um
nauðsyn á auknu menningarstarfi
i þágu barna um fullorðinsfræðslu
og verkmenntun og aukið sam-
starf á sviði vísinda.
Veittar voru sem svarar 20
milljónum Isl. króna til norræns
æskulýðsstarfs, svo sem gert hef-
ur verið undanfarin tvö ár. —
Framhald á bls. 23.
Enn finnast fíkniefni á
Vellinum
Gsal-Reykjavik — Talsvert magn
fikniefna fannst i fórum banda-
risks hermanns á Keflavikurflug-
velli fyrir skömmu. Að sögn As-
geirs Friðjónssonar hjá flkni-
efnadeild lögreglunnar er tals-
verðum erfiöleikum bundið að
segja nákvæmlega tilum magnið.
Ekki komin
rafmagns-
skömmtun
nyrðra
FB-Reykjavlk. Ekki hafði enn
komið til rafmagnsskömmtunar á
svæði Laxárvirkjunar I gær-
kvöldi, en veður var slæmt og
útlit ekki gott i orkumálum á
Norðurlandi, og fór versnandi.
Snjóflóð í
Oddskarði
1 gær féll snjóflóð á rafmangs-
linuna til Norðfjarðar, sem liggur
um Oddsskarð. Braut snjórinn
nokkra staura og er búizt við þvi,
að viðgerð taki nokkra daga.
Þarf þvi að gripa til disilstöðva,
en nokkurn tima tekur að ganga
frá þvi, þannig að væntanlega
kemur til skömmtunar.
þar sem efnin voru I mörgum
smápökkum. Þó sagði hann, að
það léti nærri að áætla að hér
væri um að ræða 3-400 gr.
Sagði Ásgeir, að mestmegnis
væri þetta marihuana, en einnig
önnur efni, sem ekki væri hægt að
skýra frá hver væru,þar sem þau
væru I rannsókn.
Mál þetta er angi af öðru fikni-
efnamáli, sem upp komst um
daginn, þegar grunsamleg send-
ing barst tollpóststofunni, — og
frá hefur verið greint i fréttum.
Við rannsókn þess máls vöknuðu
grunsemdir um ákveðinn her-
mann á Keflavfkurflugvelli og
var gerð húsleit heima hjá hon-
um, sem varð til þess að áður-
nefndir smápakkar fundust og
reyndust innihalda fikniefni.
Hermaðurinn hefur verið úr-
skurðaður i gæzluvarðhald.
Fjórhags-
óætlunin
til síðari
umræðu
1 gær klukkan fimm hófst
fundur I borgarstjórn
Reykjavikur, þar sem fjár-
hagsáætlun borgarinnar
fyrir árið 1975 var tekin til
siðari umræðu. Fundur stóð
fram á nótt. Tlminn flytur
fréttir af fundinum I blaðinu
á morgun.
Afgreiðslumaðurinn
fékk greiðslu fyrir
Dönsku skipi veitt
loðnuveiðileyfi?
— samþykkt í efri deild
— umræður standa yfir í neðri deild
gébé-Reykjavik. Fyrir nokkrum
dögum var sagt frá umsókn
dansks loðnuveiðiskips hér i
blaðinu til loðnuveiða hér við
land. Nú hefur verið samþykkt i
efri deild Alþingis að veita
sjávarútvegsráðuneytinu heimild
tii að veita leyfið, en það er
bundið ákveðnum skiiyrðum. Mál
Smygl í
Steinunni
Slðastliðna nótt fann tollgæzlan
smyglvarning I m/b Steinunni,
RE 32, sem var að koma úr
söiuferð til Grimsby. Var þar um
að ræða ýmiss konar varning, og
má þar m.a. nefna þvottavél,
hrærivél, segulbandstæki, ýmis
matvæli, sælgæti og fleira.
Útgerðarmaður skipsins átti
meiri hluta varnings þessa.
þetta er nú til umræðu I neðri
deild.
Engin fordæmi munu vera fyrir
þvi, að erlendum skipum séu veitt
leyfi til loðnuveiða hér við land
En skilyrðin fyrir veiðileyfinu
eru, að skipið verði rekið af is-
lenzkum aðilum og hafi eingöngu
islenzka áhöfn, veiðitíminn er
takmarkaður við febrúar-marz.
Þá er veiðisvæðið takmarkað,
eða frá Patreksfirði norður um til
Seyðisfjarðar.
Einnig mun skipið hlita þeim
reglum, sem ráðuneytið kann að
setja til viðbótar áðurnefndum
skilyrðum.
Ein af ástæðunum fyrir að leyfi
þetta var veitt i efri deild
Alþingis, er að það er islenzkur
aðili, Árni Gislason, sem á
þriðjung i hlutafélagi þvi, sem
umrætt skip er frá.N. Jensen,
sem á hlut i skipinu, er umboðs-
maður islenzku sildveiðiskipanna
i Hirtshals.
tollsvikin
Gsal—Reykjavfk. — Afgreiðslu-
manni Flugleiöa, sem uppvls
varð af tollsvikum fyrir skömmu,
var sleppt úr varðhaldi i fyrra-
dag. Hann var úrskurðaður á sin-
um tima 110 daga gæzluvarðhald,
og að sögn Magnúsar Eggerts-
sonar, sem hefur haft rannsókn
tollsvikamálsins með höndum,
var ekki talin þörf á að hafa af-
greiðslumanninn lengur I gæzlu-
varðhaldi.
Eins og frá hefur verið greint i
Timanum, hefur afgreiðslumað-
urinn neitað með öllu að hafa tek-
ið við fé fyrir aö afhenda vörurn-
ar án tollgjalda og hafa „við-
skiptavinir” hans einnig sagt, að
þeir hefðu ekki látið hann hafa
neina þóknun i peningum fyrir
greiðann. Sagði Magnús Eggerts-
son fyrir skömmu, að afgreiðslu-
maðurinn hefði gert grein fyrir
sinum f járreiðum og hefðu þær að
órannsökuðu máli virzt eðlilegar.
í gær sagði Magnús, að komið
hefði fram i málinu, að af-
greiðslumaðurinn hefði tekið við
peningum fyrir að afhenda vör-
urnar, en að svo stöddu væri ekki
hægt að greina nánar frá þvi at-
riöi.
Sagði Magnús ennfremur að
verið væri að rannsaka fjárreiður
afgreiðslumannsins, og ýmisleg
gögn viðvikjandi málinu væru
enn á athugunarstigi.
AAikill smyglvarn-
ingur í Urriðafossi
Gsal-Reykjavik — Lögregluþjón-
ar, sem voru á eftirlitsferð við
Sundahöfn I fyrrakvöld, tóku eftir
nokkrum grunsamlegum náung-
um, þar sem þeir voru að setja
vörur I bila á hafnarbakkanum.
Kom i ljós, að þarna var um mik-
inn smyglvarning aö ræða, — og
að sögn lögreglunnar fundust 120
litrar af 96% splritus um kvöldiö
og við leit I skipinu I gær fundust
45 flöskur af öðru vini, auk vind-
linga, — um 13 þúsund talsins.
Það voru skipverjar á Urriða-
fossi sem reýndust vera
smyglararnir, en skipið kom inn i
Sundahöfn i gærkvöldi. Astæðan
fyrir þvi, að næturvakt tollgæzl-
unnar hafði ekki auga með skip-
verjum Urriðafoss, var sú, aö
stuttu eftir komu fossins, kom
annað skip og voru þeir bundnir
viö tollstörf i þvi skipi, þegar
smygltilraunin var gerð.
Einn skipverji á Urriöafossi
telur sig eiga smyglvarninginn og
segir að hinir hafi einungis verið
sinir hjálparkokkar.