Tíminn - 20.12.1974, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.12.1974, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Föstudagur 20, desember 1974. Grjótpálar Hinn frægi Carraramarmari er höggvinn úr hlíöum Cava di Marma. Þaöan er hann flutt- ur niöur á jafnsléttu, þar sem marmara- björgin eru bútuð niöur i miklum steinsmiðj- um i hæfilegri stærð, þar sem steinninn er slipaöur og unninn aö nokkru leyti, áöur en hann er fluttur út um viða veröld, þar sem myndhöggvarar og húsam'eistarar leggja endanlega hönd á smiðina. Arlega eru unnar rúmar tvær milljónir lesta af marmara i þessu fjalli, og megnið er flutt út. Marmari hefur veriö tekinn þarna allt frá dögum Rómverja, meðan þeir voru og hétu. Margt er líkt með skyldum JÓI LITLI er þriggja missera gamall. Foreldrar hans voru villtir górilluapar I Kongó, en sjálfur elur hann aldur sinn I upp- hituöu húsi i Englandi, þar sem hann hefur fengiö bjöllur til þess að leika sér aö og marga skrýtna hluti til þess aö skoða. Það er kannski efamál, hvort þetta umhverfi með leikföngum sinum og jöfnum stofuhita veitir honum nokkuð umfram það, sem hann hefði notið i skógum Afriku — nema siður sé. En þarna er hann, og hann reynir af fremsta megni að samlagast þvi umhverfi, sem honum hefur verið búið, eftir þvi sem hans apaeðli leyfir. Og raunar koma hættir hans mannskepnunni ekki neitt annarlega fyrirsjónir. Þetta gæti sem sé eins vel verið mannsbarn og apabarn, enda er þarna um nána frændur að tala, apann og manninn, að þvi er okkur er tjáð og ekki skal bera brigður á. Myndirnar, sem fylgja þessum orðum, nægja væntanlega til þess að sannfæra lesendurna um það. t stað loðins apans gæti þarna eins vel setið snoðið krakkakrili að fitla við bjöllurnar, sem kringja svo skrýtilega, þegar við þeim er hrært, basla við að opna útskorna kistuna eða seilast upp i læsinguna á skáphurðinni. Það er með öðrum orðum engin lýgi, að margt sé líkt með skyldum. Forvitnin er söm við sig og tilburðirnir áþekkir. En mömmunum þykir hann kannski heldur ófriöari en börnin þeirra. En það er saga út af fyrir sig, og api er nú einu sinni api, en ekki upperennandi skólaþegn og gjaldþegn i velferðarriki, þó að eitt og annað sé áþekkt. Þess eru raunar dæmi, að apar hafi lært að mála, og myndir þeirra verið sýndar með listaverkum, sprottnum undan fingrum homo sapiens, en það gerigur vist verr að kenna þeim að lesa og skrifa. Apanum eru sem sé takmörk sett i lærdóms- sökum, hvert sem uppeldið er. En það er mannanna börnum raunar lika, þegar öllu er á botninn hvolft, þó að viö miklumst af heilabúinu i okkur og öllu þvi, sem við getum tileinkað okkur og haft á okkar valdi i krafti gáfn- anna, sem reyndar eru kannski komnar vel á veg að ganga af sjálfum sér dauðum, ásamt mörgu, sem móðir náttúra ætlaöist til að þrifist i kringum okkur I sambýli við okkur. Þar i eiga þó aparnir, hinir loðnu, alls enga sök. — Er það alveg öruggt að enginn hafi lýst eftir horfinni konu? — Þér verðið að opna sjálfur, Jónatan. Konan yöar er nefnilega i baði. DENNI DÆMALAUSI Það, scm mér þykir hryggilegast við jólin, er þegar mamma fer að ryksuga upp greninálarnar. Þá veit ég að þau eru búin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.