Tíminn - 20.12.1974, Blaðsíða 2

Tíminn - 20.12.1974, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Föstudagur 20. desember 1974. Föstudagur 20. desember 1974 Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.) Þú gerir þér ljóst I dag, aö þú átt vini. Þú þarft á vináttu og trausti aö halda. Þaö er eins og tor- tryggni og óánægja séu aö ná tökum á þér. Mundu, aö þú ert ekki einn á báti. Hagaöu þér samkvæmt þvl. Fiskarnir (19. febr.—20. marz.) Dagurinn er fremur rólegur, og þú ættir aö nota hann til hvlldar og hressingar. Þaö gæti svo fariö, aö stór átök væru framundan, og þá er , ekki verra aö vera vel undir þau búinn, a.m.k. óþreyttur. Hrúturinn (21. marz—19. april) Þú skalt fara aö öllu meö gát I dag. Þú skalt varast nýjan kunningsskap umfram allt. Hug- sjónir kynnu aö vera notaöar til aö dylja raun- verulegan tilgang. Hérna gæti veriö eitthvaö sem varöaöi fjármál. Nautiö (20. april—20. mai) Misnotaöu þér ekki aöstööu þlna I máli, sem mikil leynd hvllir yfir. Þaö fer illa, ef þú bregzt trúnaöi I dag. Þér hefur veriö treyst fyrir miklu, og afleiöingarnar geta oröiö hroöalegar, ef þú bregst þvi trausti. Tviburarnir (21. mai—20. júni) Þú hefur veriö daufur upp á slökastiö, en frá þessum degi mun breyting veröa á. Samvizku- semin og góöur vilji munu hjálpa þér yfir alla erfiöleikana, og þú getur reitt þig á, aö betri tlmar eru framundan. Krabbinn (21. júní—22. júli) Rómantlkin er ofarlega á baugi I dag, sérstak- lega hjá unga fólkinu. Eitthvert tækifæri skýtur upp kollinum, og þú skalt endilega notfæra þér þaö. En treystu ekki einhverjum ákveönum vini eða kunningja um of. Ljóniö (23. júli—23. ágúst) Þú skalt fylgjast vel meö málum I dag, þvi aö þú geturdregiöýmsa lærdóma af þeim. Þaö er þörf á meira samstarfi, og þú skalt gera þitt til þess aö svo megi veröa. En þú skalt fara varlega I fjármálunum. Jómfrúin (24. ágúst—22. sept.) Þú þarft aö sinna betur þvl, sem tilvera þln byggist á. Þú þarft llka aö huga betur aö sam- bandinu á heimilinu, þaö er eins og þaö skorti eitthvaö á fulian trúnaö á þeim staönum og ástæöa til aö fara aö bæta úr. Vogin (23. sept.—22. okt.) Taktu tillit til þeirra staöreynda, sem viö blasa, áöur en þú tekur ákvöröun, og vertu viss, þá mun allt fara vel. Haföu samband viö vini þlna og kunningja I dag. Þaö lltur út fyrir, aö kvöldiö veröi I alla staöi hiö ánægjulegasta. Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.) Þaö lltur út fyrir, aö þú hafir veriö mjög opinskár aö undanförnu, en þú ættir aö breyta þvi strax I dag. Svo ættiröu aö reyna aö leyna tilfinningum þlnum betur en þú hefur gert. Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.) Þér er fyrir beztu aö fara eftir þeim ráölegging- um, sem þú færö I dag. Þú hefur þörf fyrir þær, og þær eru gefnar af góðum hug. Foröastu deilur um mál, sem skipta þig engu, og einbeittu þér aö aöalatriöunum. Steingeitin (22. des.—19. jan.) I dag skaltu hafa það hugfast, að það er afskap- lega auðvelt að áfellast aðra og kenna þeim um allt. En máliö er bara ekki svona einfalt. Þér bjóðast fleiri en eitt tækifæri til aö gerast þátt- takandi i einhvers konar bralli. UTBOÐ Tilboö óskast I lögn dreifikerfis I Hafnarfiröi 2. áfanga, A) Miðbæ B) öldur — Kinnar, fyrir Hitaveitu Reykjavikur. iJtboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3 gegn 5.000.00 kr. skilatryggingu. Útboðin veröa opnuö á sama staö fimmtudaginn, 17. janú- ar 1975 kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 pumnx Símamál Húnvetninga: Samband milli sveita verra en við útlönd IÞROTTA TÖSKUR Verð trd kr. 717.00 PÓSTSENDUM Sportvöruverzlun Ingólfs Oskarssonar KLAPPARSTÍG 44 SÍMI 1-17-83 • REYKJAVÍK MÓ-Sveinsstöðum. — óskiljan- legur dráttur hefur orðið á lagn- ingu sjálfvirks sima á fjölda bæja I Ilúnavatnssýslum. Arin 1971 og 1972 var lagður jarðslmastrengur frá Brú I Ilrútafirði yfir Blönduós. Þá var um leið lagður strengur fyrir sjálfvirka slma heim á alla sveitabæi, er voru i nánd við jarð- strenginn. 1 viðtali við útvarpið árið 1972 sagöi ráðamaður Landsimans, að sjálfvirkur simi kæmi á alla þiessa bæi strax sumarið 1972. Það varð nú ekki, og þegar grennslazt var eftir, hvers vegna svo hefði ekki verið fengust þau svör, að tafir hefðu orðið á afgreiðslu stöövanna erlendis frá, en sjálf- virk stöð kæmi I Reykjaskóla og Laugabakka sumarið 1973 en Víöidal og Hnausa sumarið 1974. Enn bólar ekkert á þessum stöðvum, og þótt sumarið 1974 sé nú liöiö, hefur enn ekki svo mikið sem verið farið þess á leit við hús- ráðendur á Hnausum, að þar megi setja upp sjáHyirka sim- stöö, hvað þá, að þar sé stöð væntanleg á næstu dögum. Er þvi ljóst, að ibúar í Húna- vatnssýslum verða enn um sinn aö biða eftir sjálfvirkum sima, þótt forráðamenn Landsimans hafi að minnsta kosti tvisvar sinnum sagt opinberlega, að allir þessir bæir ættu að hafa fengið um þetta leyti sjálfvirkan sima. Óþægindin af að hafa ekki sjálf- virkan síma eru fjölmörg, og þar á meðal má nefna, að oft heyrist mjög illa á sveitalinunum, og ekki er hægt aö ná simasambandi út fyrir sveitina I langan tima á hverjum sólarhring, hversu mik- ið, sem liggur við. Nú er rætt um að stórbæta f jar- skiptaþjónustuna við útlönd. Það er svo sem góðra gjalda vert, og ekkert nema gott um það að segja, að geta séð Cassius Clay rota næsta andstæðing sinn um leið og það gerist, en okkur, sem úti á landi búum, finnst ekki úr vegi að bæta samt örlitið fjar- skiptaþjónustuna við okkur, bæði hvað varðar simaþjónustu, hlustunarskilyrði útvarps og sjónvarps og póstsamgöngur, áð- ur en lagðar eru fleiri hundruð milljónir til að bæta fjarskipta- sambandið við útlönd. Við vitum, aö I fjölmörgum tilfellum er auð- veldara að ná sambandi við út- lönd og þaðan heyrist oft mun betur en jafnvel milli nærliggj- andi sveita. Danadrottning sæmir Svanbjörn Frímannsson orðu Margrethe II Danadrottning hefur sæmt fyrrverandi banka- stjóra, hr. Svanbjörn Frímannsson kommandörkrossi Dannebrogsorðunnar. Sendiherra Dana afhenti honum heiðursmerkið við móttöku i danska sendiráðinu fimmtudag- inn 19. desember. Stórmagasín í Hafnarfirði ? EKKI BEIIMLÍIMIS, EN VÍSIR AÐ ÞVÍ. Verzlunin HAFNARBORG við Strandgötu, býður yður úrval úr ótrúlega mörgum vöru- flokkum. i snyrtivörudeildinni létta snyrti- sérfræðingar yður valið á snyrtivörum og ilm- vötnum. Leikfangadeildin stendur yngstu viðskiptavinunum opin, vel byrg af varningi á viðráðanlegu verði. I búðinni fást gjafir handa ,mömmu og pabba og öllum hinum, búsáhöld og baðvörur, glervörur og skrautvörur, hand- töskur og handklæði, dýrindis dúkar og ótal- margt fleira. Úti eru næg bílastæði bak við verzlunina. Inni gefst gott næði til að meta verð og vörugæði og til að velja. STRANDGÖTU 34, HAFNARFIRÐI VIÐ HLIÐINA Á HAFNARFJARÐARAPÓTEKI.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.