Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 4
4 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR Íbúar Bam í Íran um flóðasvæðin: Máttur viljans ótrúlegur TEHERAN, AP „Uppbyggingin verður hæg, peningar sem hefur verið lofað munu ekki alltaf skila sér og sorgin mun vofa yfir, en máttur viljans getur verið ótrúlegur,“ segir Ali Jewshai, embættismað- ur í írönsku borginni Bam, um þá tíma sem eru í vændum í Suðaust- ur-Asíu. Fáir vita betur hvað íbúar á hamfarasvæðinu við Indlandshaf eiga í vændum en íbúar Bam, þar sem 27 þúsund manns týndu lífinu í jarðskjálfta fyrir ári síðan. Borgin telur nú um eitt hundrað þúsund manns og flestir búa enn í bráðabirgðahúsnæði. Af þeim fimmtán þúsund heimilum sem eyðilögðust í skjálftanum hafa um sex þúsund verið endurreist. Talið er að um tíu þúsund manns þjáist enn af áfallastreitu en þrátt fyrir eigin hörmungar er hugur íbúa Bam hjá meðbræðrum þeirra við Indlandshaf. Skólabörn spyrja kennara sína hvað þau geti gert til að leggja sitt af mörkum og haldnar hafa verið fjáröflunar- samkonur til styrktar hinna hrjáðu. ■ Allt í algjörri óreiðu Hjálparsamtök kappkosta við að koma vistum til hamfarasvæða en samgöng- ur gera erfitt fyrir. Nokkrir dagar til viðbótar geta liðið þar til hjálp berst fólki á afskekktum svæðum og hættan á farsóttum eykst með hverjum deginum. BANDA ACEH, AP Hjálparsamtök og erlend ríki kappkosta við að senda mat og lyf til hamfarasvæðanna við Indlandshaf, en dreifing vist- anna er óskilvirk vegna sam- gönguerfiðleika og birgðirnar safnast upp á flugvöllum. Tafirnar eru þegar farnar að auka á hörmungar flóðsins í Indónesíu þar sem hreint vatn og matur er af skornum skammti. Yfirvöld á Srí Lanka segja að mislingar og niðurgangur hafi gert vart við sig og Indverjar eru byrjaðir að bólusetja tugþúsundir manna. Jan Egeland, aðgerðastjóri neyðarhjálpar Sameinuðu þjóð- anna, segir að víða geti það tekið allt að því tvo til sex sólarhringa þar til hjálp berst fólki sem þurfi á henni að halda ekki seinna en í dag eða í gær. „Ég held að fólk eigi eftir að verða mjög reitt á næstu dögum og vikum,“ segir hann. Hjálparsamtök eru flest vön að vinna á einu eða tveimur hamfarasvæðum í einu en nú er um tólf stór svæði að ræða. Óttast er að fjöldi látinna sé þegar orð- inn eitt hundrað þúsund en Al- þjóðaheilbrigðisstofnunin segir að sú tala geti tvöfaldast ef far- sóttir breiðast út. „Það er allt í rúst,“ segir Achmad Hiayat hershöfðingi í I n d ó n e s í s k a h e r n u m . „Sjúkrahúsin og neyðarhjálpin eru í algjörri óreiðu. Hjálpar- starfsmenn eru velkomnir en þeir verða að út- vega sér sín eig- in farartæki.“ Indónesíski her- inn reynir að senda vistir til þeirra staða sem ekki er hægt að nálgast landleið- ina en vitað er til að matvæli sem var varpað úr flugvélum lentu þar sem fólk náði ekki til þeirra og fóru til spillis. Sumir óttast að spilltir embættismenn muni reyna að hagnast á ástandinu og muni reyna að draga undan neyð- arbirðgðunum til eigin afnota. Ríkisstjórnir um heim allan hafa lagt fram um fimmtán millj- arða króna til aðstoðar við fólks á hamfarasvæðinu við Indlandshaf. Rauði krossinn telur sig þurfa um þrjá milljarða króna til björgunar- og uppbyggingarstarfs á flóða- svæðunum. ■ Hjálparstarf kirkjunnar: Fé til þorpa á Indlandi JARÐSKJÁLFTI Þrjár milljónir króna hafa verið sendar til hjálpar íbú- um fiskiþorpa á Indlandi. Helmingur fésins fór til héraðsins Tamil Nadu og hinn til Andhra Pasesh. Þorp þar eru í rúst eftir flóðbylgjuna sem varð að völdum jarðskjálfta í Suður-Asíu. Féð sendir Hjálparstarf kirkj- unnar til samstarfsaðila vegna flóðanna. Verður það notað til að fæða íbúa og útvega fjölskyldum dýnur og föt Um eitt hundrað lík hafa fund- ist í Tamil Nadu og er 2.000 manna saknað. Ástandið í Andhra Pasesh er einnig skelfilegt. ■ FRAKKAR TVÖFALDA FRAMLÖG SÍN Franska ríkisstjórnin hefur ákveðið að tvöfalda fjárframlög sín til neyðaraðstoðar við Ind- landshaf og er heildarfjárhæðin þá um 1,7 milljarðar króna. Frönsk yfirvöld hvetja almenning til að láta fé af hendi rakna. 22 Frakkar hafa látið lífið í hamför- unum og 560 er saknað. BRETAR GEFA 2,3 MILLJARÐA Bretar hafa safnað rúmlega 2,3 milljörðum króna til hjálpar fólki á hamfarasvæðinu við Indlands- haf. Breska stjórnin hefur lagt fram um 1,8, milljarða króna sem og 27 tonn af vatni og vatns- hreinsunarbúnað. Að minnsta kosti 27 Bretar hafa látið lífið á hamfarasvæðinu og hundraða er saknað. FJÁRFRAMLÖG Í STAÐ FLUGELDA- KAUPA Skipuleggjendur stærstu nýárshátíðarhaldanna í Berlín í Þýskalandi hvetja væntanlega há- tíðargesti um að láta fé af hendi rakna í þágu fórnarlambanna í Suðaustur-Asíu í stað þess að kaupa flugelda. Formaður skipu- lagsnefndarinnar segir eitt góð- verk betra en þúsund góð áform. Búist er við allt að milljón manns taki þátt í hátíðarhöldunum. SMÁR JARÐSKJÁLFTI Í JAPAN Jarðskjálfti sem mældist fimm stig á Richter-kvarða skók svæði í norðurhluta Japans í gær. Eng- inn mun hafa meiðst og ekki var talin hætta á að flóðbylgja kæmi í kjölfar skjálftans. Skjálfta- virkni í Japan er með mesta móti í heiminum. ■ FLÓÐBYLGJAN ,,Ég held að fólk eigi eftir að verða mjög reitt á næstu dög- um og vik- um.“ Strengir þú áramótaheit? Spurning dagsins í dag: Áttu von á að fjárhagslegur hagur þinn vænkist á nýju ári? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 77% 23% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun LEITAÐ Í RÚSTUNUM Eftirlifendur flóðbylgjunnar á Srí Lanka leita að einhverju nýtilegu í húsarústum. Óánægja á Srí Lanka: Gerðu aðsúg að ráðherra COLOMBO, AP Íbúar í norðurhluta Srí Lanka gerðu aðsúg að Mahinda Rajapakse, forsætisráðherra lands- ins, þegar hann kom á svæðið til að berja eyðilegginguna af völdum flóðsins augum. Fólkið hafði verið að segja ráðherranum frá vandræð- um sínum og hvað það skorti helst þegar tilkynning barst úr hátalara- kerfi þar sem fólk var beðið um að tala ekki við hann. Við það færðist talsverður órói í fólk og það gerði hróp að forsætis- ráðherranum og sagði honum að fara af svæðinu sem hann gerði eft- ir að fólk réðst á blaðamann og her- mann með spýtum. ■ Líktalning í Taílandi: Fangar smíða líkkistur PHUKET, AP Taílendingar leggja nótt sem dag við að finna lík fórnar- lamba flóðbylgjunnar og jarðsetja þau. Sjálfboðaliðar flykkjast af hamfarasvæðunum og fangelsi hafa verið rýmd svo fangar geti aðstoðað við að telja líkin og smíða líkkistur. Enn er um sjö þúsund saknað í Taílandi, þar af um tvö þúsund Norðurlandabúa. Taílensk yfirvöld segjast óttast að 80 prósent þeirra sem saknað er séu látnir. Ef það er rétt munu tæplega sjöþúsund manns hafa týnt lífinu í Taílandi. Talið er að um þriðjungur hinna föllnu sé börn. ■ FRÁ SRÍ LANKA Eyðileggingin af völdum flóðbylgjunnar er ótrúleg og ljóst að uppbyggingarstarf mun taka langan tíma. BEÐIÐ EFTIR HJÁLP Flóttamenn frá Banda Aceh í Indónesíu bíða í röð eftir mataraðstoð. Dreifin neyðargagna hefur reynst óskilvirk og margir þurfa að bíða lengi í viðbót eftir aðstoð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.