Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 62
Hermundur lá ekki á svörunum þegar hann var inntur eftir þeim anda sem mun svífa yfir vötnum á árinu sem er að ganga í garð. Hann segir tímana fram undan vera svokallað biðstöðuástand og ekkert þýði að ýta á miklar fram- kvæmdir til þess að framkalla breytingar. „Næstu þrjú ár eru uppgjörstími síðustu sex ára. Á Íslandi verður sérstaklega mikil depurð og fólk á eftir að verða fyrir miklu tjóni. Talan sjö verður ríkjandi út næsta ár. Tilfinninga- lega séð verður fólk í miklu ójafn- vægi og við megum búast við miklum þunglyndistilfinningum, aukning verður í sölu á geðlyfj- um, hryðjuverk munu verða stærri hluti af atburðarás næsta árs. Við megum búast við hækk- andi tíðni fátæktar og sjálfs- morða. Þetta er ár efans og trúar- innar en líka þekkingarinnar. Spurningin er hvort við munum læra af fortíðinni, leyfa henni að kenna okkur að vega á móti tímunum og breyta. Við þurfum að staldra við og skoða inn í for- tíðina. Hvað höfum við lært? Ef við lærum ekki neitt og hlustum ekki þá verða átök.“ Undiraldan neikvæð Það er greinilega ýmislegt sem Hermundur er ekki sáttur við þegar hann lítur yfir næsta ár. Hann segir vera dökkt yfir heim- inum og að undiraldan sé nei- kvæð, sem leiði oft til þess að út- koman sé það einnig. „Í maí á næsta ári raða sér upp sjö stjörn- ur. Þær veina allar á persónuleika og tilfinningar mannsins. Næsta ár einkennist af umtónun mann- eskjunnar, tragedíu, stríði, ham- förum, aukningu á fjárhagslegum örðugleikum og ólgu á fjárhags- legum markaði. Ég er ansi hrædd- ur um flensur og sjúkdóma úr lofti. Eitthvað verður þó um nýj- ungar á læknasviðinu, kannski ný lyf. Græðgin eykst og enginn veit hvenær alheimurinn stöðvar hjól efnahagslífsins. Hvað mun það kosta manninn að huga að gildum sálarinnar? Við megum ekki gleyma kærleikanum, bróðerninu og samstöðunni.“ Framsóknarmaður svíkur lit „Það verða mikil pólitísk uppgjör. Ég hugsa að borgarstjórinn okkar verði ekki vinsælasta manneskjan í stólnum. Það verða stjórnar- skipti og annar flokkur mun koma í staðinn fyrir þennan. Nýr borg- arstjóri mun koma úr röðum sjálf- stæðismanna. Það er ekkert gefið mál að auðvelt sé að finna þann kandídat og ekki verða allir sam- mála. Það verður lítill friður í kringum Halldór Ásgrímsson og vaxandi ólga í kringum Fram- sóknarflokkinn. Einhver úr röð- um þeirra framsóknarmanna er að svíkja lit. Við munum líka sjá mikil veikindi í stjórnmálaheim- inum og innan raða sjálfstæðis- manna verður einn maður mikið veikur.“ Hneyksli í kvikmyndaiðnaðinum Miklar breytingar verða á einni sjónvarpsstöð segir Hermundur en sér ekki hver þeirra. „Í sam- bandi við bókmenntir munum við fá góða dóma erlendis. Tveir Ís- lendingar fá stór bókmenntaverð- laun. Leiklistarlega séð mun eitt- hvert leikrit vekja mikla athygli. Það er ekki leikritið sem er búið að vera mjög áberandi núna, Rómeó og Júlía, en mér finnst þetta vera alíslenskt leikrit sem mun hafa mikil áhrif. Í íþróttum munum við ná afar góðum ár- angri. Í handboltanum eru góðar breytingar og afar jákvæður ár- angur. Viggó þjálfari setti sér tak- mark en hann mætti setja sér hærra takmark því þeir geta bet- ur en hann veit. Hneyksli kemur upp í kvikmyndaiðnaðinum sem vekur mikla athygli. Íslensku myndirnar verða nokkuð góðar og ég sé eina fá verðlaun. Ég er hins vegar ekki viss hvaða stytta það verður. Það gæti verið Óskarinn en gæti líka verið eitthvað allt annað.“ Ljótt morð Hermundur nefnir ljótt morð í sambandi við næsta ár sem mun vekja athygli. „Næsta ár er ekkert ofsalega fallegt ár ef við lítum á orku mannsins en þetta getur samt verið jákvætt á margan hátt og þetta er tími sem við verðum að nota til þess að safna fyrir mögru árin 2006-2007 og búa okkur undir breytta þjóðfélagsskipan. Maður- inn er grimmasta skepnan á jarð- ríki en líka mjög kærleiksrík. Við þurfum að leita og reyna að bægja hættum frá eins og sjúkdómum og fjárhagslegum kröggum. Við meg- um ekki eltast við peningaboltann en þurfum að einbeita okkur að því að taka til í okkar huga.“ Oft hamfarir í kringum áramót Hann segist hafa grunað að ein- hverjar yrðu hamfarirnar nú í kringum áramótin. „Samkvæmt talnaspekinni tók níu ára og níu mánaða hringrás enda í september og þá urðu miklar breytingar í heiminum. Gamla orkan gekk úr sér og nýja orkan gekk inn. Því nær sem dregur að áramótum, því meiri verður orkan. Svona hamfar- ir verða oft í kringum áramót því þá tekur orkan breytingum og þeg- ar hún nálgast hámarkið verða oft einhvers konar hamfarir,“ segir Hermundur. Hermundur vitnar í Stalín og segir: „Þegar eitt mannsfall verður er það hörmung en þegar þúsundir deyja er það tölfræði. Maðurinn hefur ekki tilfinningalega næmni til þess að átta sig á þessu gífur- lega slysi og hamförum. Þegar Móðir Teresa og Díana prinsessa dóu var heimurinn yfirtekinn af sorg. Þetta voru þó bara tvær manneskjur og núna erum við að tala um hundrað þúsund manns. Engin mannvera nær að átta sig á því hversu gífurlegt tjónið er.“ Spá fyrir 2004 Í fyrra bjóst Hermundur við mikilli spennu á Íslandi á árinu 2004. Hann sagði spennuna jákvæða ef við myndum sá fyrir velgengni með réttu hugarfari. Honum þótti við hins vegar hafa verið sáð neikvæðu og nefndi þá alþingismenn og lífeyr- isréttindafrumvarpið. „Með því að ganga á bak orða sinna verður upp- skeran slæm og þannig má búast við að samningar bresti árið 2004.“ Hermundur spáði því í fyrra að forsætisráðherrastarfið yrði loka- starf Halldórs Ásgrímssonar sem stjórnmálamanns. Hann sagði Halldór ekki vera þá manngerð sem ætti að vera í þessu starfi og talan hans ellefu stæði fyrir hug- myndamanninn. Hann taldi ekki líklegt að Halldór starfaði lengi sem forsætisráðherra. hilda@frettabladid.is ■ VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á bls. 6 1 3 2 Kiefer Sutherland. European City Guide (ECG). Þórey Edda Elísdóttir. 62 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR Dökkt yfir heiminum árið 2005 ...fá Eilífur Friður Edgarsson og fjölskylda sem gáfu Rauða kross- inum 70 þúsund krónur til stykt- ar fórnarlömbum hamfaranna við Indlandshaf. Megi aðrir Ís- lendingar taka Eilíf Frið og fjöl- skyldu til fyrirmyndar. HRÓSIÐ Fréttablaðið leitaði til Hermundar Rósinkranz talnaspekings og miðils um spá komandi árs. Hermundur er ekki nógu ánægður með árið 2005 og segir dökkt yfir heiminum. Hann segir árið vera uppgjörstíma síðustu sex ára og nauðsynlegt að læra af mistökunum. Gunnlaugur spáði fjölmiðlakrísu Gunnlaugur Guðmundsson stjörnu- spekingur hefur oft látið til sín taka á áramótum og spáð fyrir um það sem koma skal á nýju ári. Hann hef- ur þó ekki gert neitt kort fyrir árið 2005 og segist lítið hafa velt næsta ári fyrir sér í víðu samhengi enda sé hann mest farinn að gefa persónum og einstaklingum gaum í spádóm- um sínum. Gunnlaugur lét hins vegar til sín taka fyrir ári síðan og þá hafði hann þetta að segja um árið 2004 sem þá var á næsta leiti: „Ég hef verið að reyna að koma mér út úr þessu spádómarugli. Nú, veit ég ekki hvort þú vilt heyra þetta en veturinn 2004 til 2005 verður erfiður fyrir DV. Allir DV gaurarnir og reyndar Gunnar Smári einnig eru með erfiðar stjörnur. Þar sé ég fyrir mér samdrátt í haust. Krísu í júní, júlí, ágúst og september.“ Þegar hamagangurinn í kringum fjölmiðlafrumvarið er hafður í huga má segja að Gunnalugur hafi verið nokkuð sannspár en hefði frumvarp- ið náð fram að ganga hefði vissu- lega skapast krísuástand á dag- blaðamarkaði. Gunnlaugur spáði því að árið 2004 yrði almennt þokkalegt fyrir Íslendinga en sá fyrir gífurlegar sviptingar á árunum 2005 og 2006 og tengdi þær forsætisráðherra- skiptunum sem urðu í september 2004. „Það eru alltaf sviptingar í kringum Halldór sem eru ekki í kringum Davíð Oddsson,“ sagði Gunnlaugur. „Ferill Halldórs, sem virkar íhaldssamur og jarðbundinn en er það ekki, er slíkur. Hann er frjálslyndur og með mikið af kon- um í kringum sig. Honum fylgja miklar breytingar þótt hann vilji skilgreina sig sem jarðbundinn.“ Þessi kunni stjörnuspekingur var helsti sér- fræðingur Fréttablaðsins í áramótaspá fyrir árið 2004. Hann spáði hamagangi á fjöl- miðlamarkaði og það er óhætt að segja að sú spá hafi gengið eftir. HERMUNDUR RÓSINKRANZ Rýndi í framtíðina fyrir Fréttablaðið en var ekkert of hrifinn af útlitinu á árinu 2005. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON „Það verður lítill friður í kringum Halldór Ásgrímsson og vaxandi ólga í kringum Framsóknar- flokkinn. Einhver úr röðum þeirra fram- sóknarmanna er að svíkja lit.“ STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR „Ég hugsa að borgarstjórinn okkar verði ekki vinsælasta manneskjan í stólnum. Það verða stjórnarskipti og annar flokkur mun koma í staðinn fyrir þennan.“ Silfurlitað efni á kjólum, skyrtum, jökkum, buxum ogsvo framvegis er algerlega inni á þessum tíma og sjaldan er afsakanlegt að ganga í silfurlituðum buxum en áramótin eru tíminn! Njóttu þess að vera glitrandi og áberandi á áramótunum. Þó skal ávallt hafa í huga að ofgera engu og því er ekki ákjósanlegt að klæðast silfri frá hvirfli til ilja og vera eins og gangandi álpappírsrúlla. Gamaldags herðaslár úr alvöru- eða gerviskinni er óg-urlega móðins núna. Þetta er eitthvað sem gengur alls ekki alltaf en er alveg upplagt að nota um áramótin. Vertu glamúrus upp á gamla mátann um áramótin með herða- slá á öxlunum og hárgreiðslu í anda Audrey Hepburn. Áramótadóterí, hattar, grímur, knöll og þess háttarer bara til að lífga upp á áramótapartíin. Stemn- ingin er ekki fullkomnuð fyrr en maður situr fyrir fram- an skaupið með fjólublátt kampavín í hönd, allur út í litla, litríka, krullaða dótinu sem kemur úr litlu flösku- sprengjunum og maður finnur teygjuna á ljótum ára- mótahattinum skerast upp í hálsinn. Gaman saman! Að eyða fúlgu fjár í rakettudrasl er ekki svalt og afar heimsku-legt. Fólk gæti í rauninni alveg eins safnað fimmþúsundköllun- um saman og kveikt í þeim! Það eina góða við þetta er að margar hjálparstofnanir nýta sér sprengigleði landans og selja flugelda. Það væri samt gaman ef hægt væri að safna pening fyrir þær án þess að fylla loftið af þungmálmum og jörðina af rakettulíkum. Áramótaheit sem ekki er hægt að standa við.„Ég ætla að missa þetta mörg kíló“, „Ég ætla að hætta að reykja“, „Ég ætla að trimma á morgnana áður en ég mæti í vinnuna!“ Yfirlýsingagleðin stend- ur sem hæst á þessum degi. Auðvitað er gott og blessað að hætta að reykja eða missa nokkur kíló ef þess er þörf en ekki heita að gera eitthvað sem þið vitið að þið eigið ekki eftir að gera. Að nota ekki hlífðargleraugu. Hvaða rugl er það? Það erutveir valmöguleikar: Að vera með hlífðargleraugu og vera kannski ekkert svakalega töffaralegur í nokkra tíma á gamlárs- kvöld – eða að eiga á hættu að fá sprengju í augað og verða blindur eða með ljótt ör það sem eftir er. Þetta er varla erfitt val. INNI ÚTI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.