Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 14
Þannig söng verðlaunaskáldið Megas á sínum tíma og sumar þessara hendinga hans hafa orðið föst orðtök í málinu, enda eiga þær oft við. Þær eru t.d. ágætlega lýsandi fyrir störf og stíl ríkis- stjórnarinnar á því ári sem nú er að kveðja, en áberandi oft hefur hlutum þar á bæ verið bjargað fyrir horn á elleftu stundu. For- lögin hafa gripið með einhverjum heillavænlegum hætti inn í fram- vinduna og afstýrt stórum vand- ræðum þrátt fyrir einbeittan vilja til annars. Svo virðist, að þrátt fyrir að stjórnarherrarnir hafi oft á tíðum gleymt guði í pólitískum ákafa og jafnvel offorsi, þá hafi guð hins vegar ekki gleymt þeim. Dæmin eru mörg um það hvernig stjórnarflokkarnir og þá sérstaklega foringjar þeirra, þeir Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddsson, hafa á árinu teflt með ögrandi hætti á tæpasta vað í stjórnarathöfnum sínum og póli- tík allri. Það var nánast eins og þeir væru beinlínis að láta á það reyna hversu mikið þanþol stjórn- málanna væri áður en þverbönd og bitar slitnuðu sundur. Þetta birtist ef til vill best í fjölmiðla- málinu sl. vor og öllum eftirmála þess þar sem Davíð Oddsson keyrði í gegn löggjöf sem orkaði svo tvímælis að það beinlínis lá við uppreisn í Framsóknarflokkn- um í Reykjavík suður og eflaust víðar. Viðbrögðin við synjun for- setans um staðfestingu á lögunum voru af sama toga. Á síðustu stundu var þó gripið inn í málið og útgönguleið fundin úr þeim ógöngum sem annars stefndi í. Það er nefnilega nokkuð ljóst að ef stjórnarherrarnir hefðu komið sínu fram hefði slík umgengni við stjórnarskrána valdið þeim mun meiri vandræðum til lengri tíma með tilheyrandi málaferlum bæði hér innanlands og erlendis. Inn- grip forsjónarinnar á elleftu stundu hefur því orðið til þess að stjórnin og leiðtogar hennar sitja eftir, kannski eitthvað skaddaðir, en vel starfhæfir. Síðast en ekki síst er fjölmiðlamálið sjálft komið í góðan farveg og eðlilegan að því er virðist, með hinni nýju fjöl- miðlanefnd. Fleiri tilfelli mætti nefna þar sem ríkisstjórnin hefur í klaufsku stefnt beint inn í Kínahverfið í sorta nætur en bjargast þaðan út. Nýjasta dæmið um að guð hefur ekki gleymt stjórnarherrunum er einmitt að læða sér inn í umræð- una þessa dagana. Allt þetta ár og raunar miklu lengur hefur ríkis- stjórnin vitað af og verið vöruð við mikilli þensluhættu sem fylgi framkvæmdum á hálendinu og á Austfjörðum. Engu að síður er efnahagsstefnan og ríkisfjármál- in sett í þann farveg að kynda frekar undir þenslu og verðbólgu en draga úr henni. Þar má nefna skattalækkanir, spennu á húsnæð- ismarkaði, og ýmsar ríkisstýrðar verðhækkanir aðrar s.s. varðandi ýmsa þjónustu og á áfengi og tó- baki. Fjárlögin voru vissulega af- greidd með 10 milljarða afgangi, en enginn úti í samfélaginu virð- ist þó telja það marktæka bremsu. Er nú svo komið að menn naga neglurnar á meðan þeir bíða og sjá hvort verðbólgan fari yfir 4% í desember, en það eru hin skil- greindu þolmörk. Hagstjórnin vegur salt á blábarmi stöðugleik- ans og háskinn hugnast aðeins hörðustu spennufíklum. En þótt þú gleymir guði þá gleymir guð ekki þér sagði Megas. Í lítilli frétt í vikunni mátti sjá haft eftir aðal- hagfræðingi Seðlabankans að „út- sölur hafa verið að færast fram á við á síðustu árum og það hefur verið á móti þessum opinberu verðhækkunum. Fyrstu dagar nýs árs skipta máli. Þá er mælingin gerð.“ Útsölurnar virðast því ætla að bjarga hagstjórninni um sinn, sem er guðs blessun. Afar óskyn- samlegt er þó að stóla eingöngu á að guð gleymi mönnum ekki þeg- ar líða tekur á nýja árið og ein- hvers konar útsöluhagstjórn muni komi til bjargar á elleftu stundu þegar illa horfir. Á árinu sem nú er að kveðja upplifðum við ein- göngu meðgöngutíma þenslunnar, en á nýja árinu má gera ráð fyrir erfiðum fæðingarhríðum. Verka- lýðshreyfingin, sem byggir sína samninga á tilteknum verðlags- forsendum, er farin að ókyrrast vegna verðlagsþróunarinnar og endurskoðun kjarasamninga er að komast á dagskrá. Því er sérstak- lega mikilvægt fyrir stjórnvöld að eiga vinsamleg og uppbyggileg samskipti við samtök launafólks ef þess á að freista að halda verð- bólgu niðri. Að halda áfram að klaufskast inn í Kínahverfin – í vinnumark- aðamálum við Kárahnúka eða í öðru – með pólitískum ögrunum til beggja handa er því alveg sér- staklega óskynsamlegt. Æskilegt áramótaheit stjórnarherranna væri því að þeir breyttu um stíl – þeir hétu að hætta að treysta á það við landsstjórnina, að þó þeir gleymi guði þá gleymi guð ekki þeim. Gleðilegt nýtt ár! ■ U m áramót líta menn gjarnan um öxl og fara yfir áriðsem er að líða. Þá kemur óhjákvæmilega ýmislegt upp íhugann. Hvað hefði betur mátt fara og hvað tókst vel. Þetta á jafnt við hvort sem um er að ræða einkalífið, rekstur fyrirtækis eða stofnunar eða þróun mála almennt innanlands og utan út frá sjónarhóli viðkomandi einstaklings. Það getur verið hollt fyrir alla að líta um öxl og læra af reynslunni, meta eftir á ýmsa hluti til að byggja á í framtíðinni. En það er ekki aðeins að menn líti um öxl, heldur hafa kannski fleiri hug á því að horfa fram á veginn og spá í það hvað árið muni bera í skauti sér. Það er erfitt að spá um framtíðina, oft geta óvæntir hlutir komið upp eins og dæmin sanna nú á síð- ustu dögum hvað varðar náttúruhamfarirnar við Indlandshaf, sem skyggja á áramótagleðina um allan heim. Árið sem er að líða hefur almennt verið gjöfult fyrir okkur Íslendinga, þótt sláandi undantekningar sé þar að finna. Það er sem meiri og meiri munur sé að verða á kjörum manna hér á landi – hvað sem veldur. Kannski er orðin meiri og opnari um- ræða um þessi mál en áður, fólk er orðið opnara fyrir því að tjá sig um eigin hag, en lokar sig ekki af með eigin vandamál. Fjöl- miðlarnir eiga vafalaust sinn þátt í því. Ef skyggnst er fram á veginn í þjóðmálunum hljóta efna- hagsmálin að vera þar efst á baugi. Halldór Ásgrímsson forsæt- isráðherra kom einmitt inn á þetta í viðtali við Fréttablaðið um jólin sem tekið var í tilefni af eitt hundrað dögum hans í emb- ætti. „Það verður að viðhalda stöðugleika og það þarf að halda vel um stýrið í þeirri miklu spennu sem óneitanlega er í þjóð- félaginu,“ sagði forsætisráðherra. Og enn fremur: „Hagvöxtur- inn er mikill – meiri en við áttum von á – og það er mikill kraft- ur í efnahagslífinu eins og sést á útrás fyrirtækja og þátttöku okkar í alþjóðlegum viðskiptum.“ Þetta eru orð að sönnu og það virðist ekkert mega út af bera til að hlutirnir fari ekki á verri veg. En þeir eru fleiri sem óttast verðbólguna. Þannig hefur Landsbankinn dregið í land hvað varðar húsnæðislán, vegna mikillar hækkunar á fasteignaverði og aukinnar hættu á meiri verðbólgu. Fleiri hafa varað við mikilli spennu á þessum mark- aði og undir það skal tekið. Umfjöllun Fréttablaðsins í gær um íslenska viðskiptajöfra og útrásina margumtöluðu sýnir að hér er mikið líf og kraftur í viðskiptalífinu. Margir hafa spurt sig að því hvernig það komi okkur til góða sem hér búum. Það eru því ánægjuleg tíðindi ef hægt er að lækka verð á innfluttum vörum hér um 1-3% eftir kaup Baugs á Big Food Group í Bretlandi. Vonandi tekst stjórnvöldum að halda þannig á spilunum að þenslan verði ekki of mikil, en það er líka undir einstakling- unum komið og þeir þurfa að kunna fótum sínum forráð í góð- ærinu. Fréttablaðið hefur átt velgengni að fagna á árinu og við ósk- um landsmönnum gleðilegs árs. ■ 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR SJÓNARMIÐ KÁRI JÓNASSON Ef skyggnst er fram á veginn í þjóðmálunum hljóta efnahagsmálin að vera þar efst á baugi. Við áramót ORÐRÉTT Heyrt þetta áður? Spennandi ár framundan. Óðinn, dálkahöfundur Viðskiptablaðs- ins, um horfur í viðskiptalífinu 2005. Viðskiptablaðið 29. desember. Athyglisverð hugmynd Gamlársdagur er á föstudaginn og þá er viðeigandi að kveðja árið og fagna nýju ári með sprelli og skemmtilegheitum. Dálkahöfundur „Undarlegrar viku“ í Viðskiptablaðinu. Viðskiptablaðið 29. desember. Hvert þekkir best sitt sinni Neikvæðnin hefur fylgt mér lengi, í bland við biturð, öfund og illkvittni. Gunnar Lárus Hjálmarsson í kjall- aragrein í DV. DV 29. desember. Áramótaheit ritstjórnar? Vert að varðveita vitið. Fyrirsögn í Morgunblaðinu. Morgunblaðið 30. desember. Upp rísi þjóðlið... Ég tel það skyldu mína sem ábyrgur þjóðfélagsþegn að verja ráðherra í ríkisstjórn Íslands þegar að þeim er vegið með óþverralegum og rætnum óhróðri... Kristinn Pétursson fiskverkandi á Bakkafirði. Morgunblaðið 30. desember. Nýstárleg hugmynd Sókn er besta vörnin. Gunnar Örlygsson alþingismaður. Morgunblaðið 30. desember. Heyr á endemi! Karlakór Dalvíkur slær á jóla- strengi. Fyrirsögn í Morgunblaðinu. Morgunblaðið 30. desember FRÁ DEGI TIL DAGS Árið sem er að líða hefur almennt verið gjöfult fyrir okkur Íslendinga, þótt sláandi undantekning- ar sé þar að finna. Það er sem meiri og meiri munur sé að verða á kjörum manna hér á landi - hvað sem veldur. ,, Í DAG EINKENNI Á LANDSTJÓRNINNI BIRGIR GUÐMUNDSSON Þótt þú í Kínahverfið inn, klaufskist í sorta nætur, og Kínamaður með stóran sting úr stáli, hann gefi þér gætur. Á elleftu stundu þá fær hann flog og fellur að fótum þér. Því þótt þú gleymir guði, þá gleymir guð ekki þér. Höfðabakka 1 - sími 587 50 70 Opið í dag til kl. 13.00 Þótt þú gleymir guði Fimmtug Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður Samfylkingarinnar er fimmtug í dag eins og lesa má um annars staðar í blaðinu. Til hamingju með daginn! Af þessu tilefni efnir hún til mikillar samkomu í dag í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, þar sem hún ætlar að hitta sem flesta af þeim sem hún „hefur orðið samferða einhvern tímann á lífsleiðinni, þakka það sem liðið er og fagna því sem er framundan“ eins og hún orðar það í boðs- bréfi. Er ekki að efa að fjöl- menni mun sækja veisluna sem ýmsir í stuðnings- mannaliði hennar vona að marki upp- haf að því að hún verði meira áberandi í þjóðfélagsumræðunni en verið hefur um skeið. Framundan eru örlagaríkir mánuð- ir á stjórnmálaferli hennar því á hausti komanda mun hún freista þess að verða kjörinn formaður Samfylkingarinnar þótt ekkert fararsnið sé á svila hennar, Össuri Skarphéðinssyni. Silfrið í dag Áhugamenn um þjóðmál hafa úr nógu efni að velja í sjónvarpi í dag. Auk hinna hefðbundnu umræðuþátta á Stöð 2 og Ríkissjónvarpinu verður Egill Helgason með síðasta silfursþátt ársins á Stöð 2 klukkan 12 á hádegi í opinni dagskrá. Mikill fjöldi gesta kemur fram í þættin- um, um þrjátíu talsins. Þar verður farið vítt og breitt yfir svið þjóðmálanna á hinu viðburðaríka ári 2004 og meðal annars velt upp þeirri spurningu hverjir voru stjörnur og skussar ársins, hvað var best og verst á árinu og reynt að skima aðeins inn í framtíðina til næsta árs. Frekar kaupþing en alþing Um þessi áramót eru fréttir á innlendum vettvangi helst af viðskiptalífinu. Það er raunar ekki nýlunda. Á síðustu árum hafa kaupsýslumenn á ýmsan hátt tekið við því hlutverki sem stjórnmálamenn gegndu áður og endurspegla fjölmiðlarn- ir þá þróun. Fréttir af manntafli viðskipta- jöfra og kaupþingi, þar sem verðbréf ganga kaupum og sölum, eru orðnar al- gengari - og kannski áhugaverðari – en fréttir af alþingi, þar sem lögin eru þó enn sett. gm@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.