Fréttablaðið - 31.12.2004, Blaðsíða 1
● rifjar upp atburði ársins
Hallgrímur Helgason:
▲
Svikasumar
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
BRENNUR Í KVÖLD Sautján brenn-
ur loga í kvöld á höfuðborgarsvæðinu.
Stærstu brennurnar á verða á Arnarnes-
hæð, á Fylkisvelli, Geirsnefi, í Gufunesi og
á Ægisíðu. Kveikt verður í flestum brenn-
unum klukkan 20 eða 21 á gamlárskvöld.
DAGURINN Í DAG
31. desember 2004 – 357. tölublað – 4. árgangur
KÍNVERJAR 300
INNAN TÍÐAR
Forysta verkalýðshreyf-
ingarinnar telur að
Impregilo stefni að því
að ráða 300 Kínverja
hingað til lands á
næstu vikum, ekki
bara 150 eins og sótt
hefur verið um leyfi fyrir. Sjá síðu 2
MÁLIÐ Á FORRÆÐI BJARNA
Bankaráð Íslandsbanka fundaði í gærmorg-
un um ákvörðun Bjarna Ármannssonar for-
stjóra um að víkja Jóni Þórissyni aðstoðar-
forstjóra úr starfi. Sjá síðu 2
MÁTTUR VILJANS ÓTRÚLEGUR
„Uppbyggingin verður hæg, peningar sem
hefur verið lofað munu ekki alltaf skila sér
og sorgin mun vofa yfir, en máttur viljans
getur verið ótrúlegur,“ segir embættismað-
ur í írönsku borginni Bam. Sjá síðu 4
ALVARLEGUM SLYSUM HEFUR
FÆKKAR Banaslysum hefur ekki fjölgað
þrátt fyrir aukna umferð síðustu tuttugu
ár. Alvarlega slösuðum hefur fækkað mjög
en þeir voru 419 fyrir tuttugu árum. Sjá
síðu 6
Kvikmyndir 56
Tónlist 56
Leikhús 56
Myndlist 56
Íþróttir 46
Sjónvarp 58
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Opið í dag
10-13
Gleðilegt
nýtt ár
Vínbúðin opin 9-13
HAMFARIR Sífellt fleiri finnast látn-
ir eftir jarðskjálftann og flóð-
bylgjuna sem skall á ströndum
landa í Asíu og Afríku á sunnudag-
inn. Í gærkvöld var staðfest að um
130 þúsund manns hefðu fundist
látin og hafði þá tala látinna
hækkað um 50 þúsund á einum
sólarhring. Flestir hafa fundist
látnir í Indónesíu eða ríflega 80
þúsund manns og næstflestir á Srí
Lanka, um 26 þúsund.
Íslenskt par sem ekki hafði frést
af frá því að jarðskjálftinn varð hef-
ur látið vita af sér. Parið var á Patta-
ya í Taílandi, fjarri hamfarasvæð-
inu. Enn er samt tíu Íslendinga leit-
að eins og í fyrradag því í gær var
utanríkisráðuneytið beðið um að
finna tvo menn á miðjum aldri sem
báðir sögðust ætla að vera í Taílandi
í nokkra mánuði. Auk þeirra tvegg-
ja er leitað að fimm manna fjöl-
skyldu sem talin er vera á Balí og
pari með barn sem samkvæmt upp-
lýsingum frá ráðuneytinu ættu að
vera á Pattaya.
Átta manna hópur Íslendinga
sem voru á Patong-strönd á Phuket
þegar flóðbylgjan reið yfir fer til
Bangkok á nýársdag. Hópurinn,
sem sat að snæðingi á hóteli þegar
flóðbylgjan skall á ströndinni um
kílómetra frá hótelinu, ætlar að
koma til Íslands eftir rúma viku.
Fjöldi Norðurlandabúa hefur lát-
ist í flóðunum og er búið að lýsa yfir
þjóðarsorg í Noregi og Svíþjóð á ný-
ársdag. Íslensk stjórnvöld hafa haft
samband við sænsk og norsk stjórn-
völd og boðist til að fljúga með slas-
aða frá Asíu og á sjúkrahús í Noregi
og Svíþjóð eða á sjúkrahús á Íslandi.
Það mun skýrast í dag hvort boðið
verður þegið. Ef svo verður mun
flugvél Icelandair annast fólks-
flutningana.
Sjá síðu 2, 4 og 10
SÍÐA 34-37
● segir íþróttamaður ársins
Eiður Smári í ítarlegu viðtali:
▲
Ég er í drauma-
liðinu mínu
SÍÐA 46-47
Bæklingurinn
Feneyska Rivieran og Portoroz
fylgir blaðinu í dagwww.urvalutsyn.is
VEÐRIÐ Í DAG
VONSKUVEÐUR OG STORMUR
VÍÐA Í KVÖLD Það gengur lægð yfir
landið í dag og hvessir mjög þegar líður á
daginn og má reikna með éljum víða um
land. Sjá síðu 4
Opi› í dag
10-13
Gle›ilegt ár
Gleðilegt ár
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Gamlárskvöld:
Spáð leið-
indaveðri
VEÐRIÐ Útlit er fyrir leiðindaveð-
ur sunnan- og vestanlands
seinni partinn í dag. Þar er búist
við stormi með snjókomu og
éljagangi. Á Norðaustur- og
Austurlandi gæti hins vegar
orðið sæmilegt veður með hæg-
ari vindi og einhverjum éljum.
Hitastigið verður líklega um
frostmark og fer kólnandi með
kvöldinu.
Höfuðborgarbúar geta þó enn
haldið í vonina um að það viðri
sæmilega á flugeldana um mið-
næturbil, en mögulegt er að það
birti aðeins til og vind lægi þeg-
ar líða fer á kvöldið. ■
Árið í stjórnmálum:
Mesta átaka-
ár um ára-
tugaskeið
STJÓRNMÁL Deilurnar um fjöl-
miðlafrumvarpið, synjun for-
seta Íslands á staðfestingu þess
og hið dramatíska ár, jafnt í
einka- sem pólitísku lífi Davíðs
Oddssonar, stóðu upp úr í ís-
lenskum stjórnmálum árið 2004.
Þetta er álit stjórnmálasérfræð-
inga fjölmiðlanna sem tóku út
árið fyrir Fréttablaðið. Davíð
Oddsson var sá stjórnmálamað-
ur sem stóð upp úr, fjölmiðla-
frumvarpið var stærsta póli-
tíska málið og það var líka
mesta axarskaftið ásamt yfir-
lýsingum Halldórs Ásgrímsson-
ar um sinnepsgassfundinn í Írak
sem reyndist vera skyldara
díjónsinnepi en efnavopnum.
- ás
Sjá bls. 12.
Stjórnvöld bjóða aðstoð
Íslensk stjórnvöld bjóða sænskum og norskum stjórnvöldum aðstoð við
að flytja slasaða frá Asíu. Hátt í 130 þúsund manns hafa fundist látin.