Fréttablaðið - 31.12.2004, Qupperneq 24
31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án
lyfseðils og eru notuð þegar reyk-
ingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum.
Í fylgiseðlinum eru
upplýsingar um: Verkun og notkun,
varúðarreglur, mikilvægar upplýsing-
ar sem nauðsynlegt er að lesa áður en
lyfin eru notuð, hugsanlegar auka-
verkanir og aðrar upplýsingar.
Til að ná sem bestum
árangri skal ávallt fylgja leiðbeining-
um í fylgiseðli.
Dagplástur
fyrir þá sem
reykja
á nóttunni
ekki
Vinningar verða afhendir hjá
Office 1, Skeifunni. Reykjavík.
Með því að taka þátt
ertu kominn í SMS klúbb.
99 kr/skeytið
Vinningar eru:
Miðar f. 2 á Blade Trinity
Blade 1 og 2 á DVD
Aðrar DVD myndir
Margt fleira.
Sendu SMS skeytið JA B3F
á númerið1900 og þú gætir unnið.
9. hver vinnur
2 X bíómiðar á 99kr.-
Margt kemur spánskt fyrir sjónir.
Og það sem Spánverjar hafast að á
miðnætti á gamlárskvöld kemur
öðrum þjóðum sannarlega
„spánskt“ fyrir sjónir, þ.e. þegar
þeir kveðja árið sem þá er að líða
með andvarpi í aldanna skaut og
fagna því sem gengur galvaskt í
garð. Þeir úða nefnilega í sig tólf
vínberjum um leið og klukkur slá
áramótaslögin tólf. Þá standa allir
landsmenn, ungir sem aldnir, háir
sem lágir, og mæna á einhvern
tímamæli, hvort sem það er í
mannfjölda útá torgi undir fornri
turnklukku á kirkju eða höll eða
innivið hjá gauksklukku í stofu
eða vekjaraklukku á náttborði...
Flestir raða sér þó líklega fyrir
framan sjónvarpstækið heima í
stofu ásamt vinum og/eða vanda-
mönnum, úttroðnir og dæsandi,
nýstaðnir uppfrá hátíðarkvöld-
verði. Og á skjánum er sýnt í
beinni útsendingu frá einhverri
turnklukku landsins. Sú sem mest
er á mænt er án efa klukkan í
turni heimastjórnarhallarinnar
hér í Madrídarhéraði, við Sólhliðs-
torg (La Puerta del Sol), í miðborg-
inni. Í útsendingunni láta upp-
skinnaðar og uppdubbaðar sjón-
varpsstjörnur ljós sitt skína, oft
léttklæddar, a.m.k. þær kvenkyns,
oft heldur glænæpulegar í kvöld-
kjólnum, hreint að krókna úr
kulda, þótt þær reyni að bera sig
vel, vera hressar og skemmtilegar
en með misjöfnum árangri. Og
þær búa sig undir að stjórna þessu
samstillta þrúgnaáti þjóðarinnar.
Hver sem vettlingi getur valdið og
á diski haldið bíður tilbúinn með
tylft vínberja og eitt þeirra
kramið milli fingra; bíður í ofvæni
eftir því að klukkan taki að
klingja. Og þarna kemur fyrsta
slagið. Það er ekki seinna vænna
en að þeyta krömdu þrúgunni uppí
sig, tyggja eldsnöggt, kyngja í ein-
um grænum og fingra í senn þá
næstu um leið og klukkan glymur
aftur. Og þannig koll af kolli, ber
af beri, uns öll eru etin, ýmist
tuggin, hálftuggin eða ótuggin
með öllu, gleypt með húð og hári,
hýði og steinum. Þótt sumir
svindli á því og séu búnir að úr-
steina og afhýða bévítans berin til
að auðvelda sér átið eða standi eft-
ir með hvoftinn troðinn berjum
svo að þeir þemba gúla. En ef
þessar tilfæringar ganga vel og
mönnum tekst að renna tylftinni
niður á tilsettum tíma og með til-
heyrandi takti á það að vita á
gæfuríkt nýtt ár. Og þá er óhætt
að skála fyrir því, oftast í cava,
þ.e. innlendu freyðivíni.
Heilagur eða heiðinn siður
Það mætti halda að þessi þrúgna-
fórn væri einhver hundheiðin
frjósemishefð aftrúr grárri forn-
eskju eða launhelgar tengdar vín-
goðunum Díonysíosi eða Bakkusi.
Þó er þessi siður í raun engu heil-
agri eða heiðnari en flugeldasala
björgunar- eða hjálparsveita
skáta á Íslandi. Og ekki nema tæp-
lega hundrað ára. Í upphafi aldar-
innar sem leið, í kringum 1909,
herma fregnir, áraði vel til vín-
berjaræktar hér á Spáni. Engar
sögur hef ég þó af því hvort vín
varð gott, gómsætt og höfugt það
árið. Það eitt er víst að þrúgur
þroskuðust margar, jafnvel of-
margar, svo að vínyrkjubændur
og víngerðarmenn sátu uppi með
berjafjall eitt mikið um haustið.
En neyðin kennir naktri konu að
spinna og þrúgnamanni að þenkja.
Einhverjum flaug það snjallræði í
hug að nota mætti þessi blessuðu
afgangsber til þess að halda uppá
áramót og fagna nýju ári. Hví
ekki að koma þeirri hefð á að öll
þjóðin gleypti vínber á miðnætti á
gamlárskvöld, eitt við hvert
klukkunnar slag, semsagt tólf á
kjaft. Það er hreint óf berja hjá
fjölmennri þjóð. Og viti menn:
Spánverjar gleyptu við þessu,
tóku að gleypa ber, höfðu glaðir
stofnað til hefðar.
Þrúgur farsældar á nýju ári
Þessi áramótavínber eru því eins-
konar þrúgur gleðinnar, þrúgur
farsældar á nýju ári. Þó er hætta á
að í ár súrni þær í munni margra,
verði beiskar og sárt blóðbragð af
þeim því að á áramótum líta menn
ekki aðeins frammá veginn heldur
líka til baka. Og árið 2004 er
dimmt þegar litið er yfir farinn
veg hér syðra enda varð það Ma-
dríd þungt í skauti, Spáni öllum
þungt í skauti. Að morgni hins 11.
mars myrtu ofsafullir íslamistar
191 Madríding (af ýmsu þjóðerni
því að Madríd hefur breyst í fjöl-
þjóðlega borg með öllum þeim inn-
flytjendum sem hingað hafa kom-
ið síðustu ár) og særðu um 1800
þegar 10 sprengjur sprungu í fjór-
um grannlestum troðnum fólki á
leið til daglegra erinda sinna
þennan morgun. Og þau sár eru
ógróin enn þótt borgin beri sig vel.
Vínberin sem við borðum hér á
Spáni í kvöld verða því ekki að-
eins þrúgur gleðinnar heldur líkar
þrúgur reiðinnar, þrúgur sorgar-
innar. Og vonarinnar um að slíkt
endurtaki sig ekki. ■
Beiskar þrúgur gleðinnar
Skámáni
frá Spáni
KRISTINN R. ÓLAFSSON
SKRIFAR FRÁ MADRID
ÆVINTÝRI GRIMS
GRIM Í FRÍ Teiknimyndasprelligosinn Grim er frá og með áramótum kominn í ótímabundið frí. Fréttablaðið þakkar Grim og fóstra hans,
Hallgrími Helgasyni, kærlega fyrir samstarfið á árinu.
UPPISTAND Á BROADWAY
FIMMTUDAGINN 30. DESEMBER
MIÐASALA Í VERSLUNUM SKÍFUNNAR, BT Á AKUREYRI & SELFOSSI,
Á SKIFAN.IS, EVENT.IS OG Í SÍMA 575 1522. MIÐAVERÐ AÐEINS 3.500 KR.
Vinningar verða afhendir hjá Office 1 Superstore, Skeifunni. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr.
VILTU MIÐA!
Sendu SMS skeytið BTL JKF á númerið
1900 og þú gætir unnið.
Vinningar eru Miðar á Jamie Kennedy, DVD myndir,
CD´s og margt fleira.