Fréttablaðið - 31.12.2004, Qupperneq 37
FÖSTUDAGUR 31. desember 2004 37
19. ágúst - Breytingar í ráðherraliði ríkisstjórnarinnar
Siv missir stólinn sinn
„Þessi niðurstaða er þvert á samþykktir helstu stofnana flokksins en ég hlíti henni,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þá umhverfisráðherra, eftir þingflokks-
fund Framsóknarflokksins þar sem Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, tilkynnti að henni yrði vikið úr ráðherraliði flokksins 15. september.
Framsóknarkonur fóru mikinn Siv til varnar dagana áður en ákvörðunin var kynnt og töldu það andstætt lögum flokksins að kona yrði látin víkja.
24. ágúst - Clinton sækir landið heim
Fékk sér pylsu með sinnepi
Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseti, gerði sig heimakominn í
miðbæ Reykjavíkur þegar hann sótti landið heim, þvert á óskir
öryggisvarða. Hann rölti um eins og hver annar maður, fékk sér
pylsu og varð við óskum fólks um myndatökur og eiginhandar-
áritanir. Clinton var hér daglangt og heimsótti auk miðbæjarins
Þingvelli og heillaðist af. „Hugmyndin bak við bandarísku stjórn-
arskrána var að koma í veg fyrir misnotkun valds en Alþingi Ís-
lendinga hefur alltaf haft það að meginmarkmiði,“ sagði hann
meðal annars.
24. ágúst - Þingmannanefnd frá Bandaríkjunum
fundar með ráðamönnum
Dorrit og Hillary ræðast við
Hér að ofan ræðir Hillary Rodham Clinton, öldungadeildarþing-
maður og fyrrverandi forsetafrú, við Dorrit Moussaieff forsetafrú
í heimsókn sinni til landsins. Hillary hitti eiginmann sinn hér
áður en þau flugu hvort í sína áttina. Hún var í för með banda-
rískri þingmannanefnd sem fundaði með ráðamönnum hér um
umhverfismál og vetni sem framtíðarorkugjafa.
7. september - Kóngafólk Svía í opinberri heimsókn
Rok og rigning á Bessastöðum
Viktoría krónprinsessa, Karl Gústaf XVI Svíakonungur, Ólafur
Ragnar Grímsson forseti, Dorrit Moussaieff forsetafrú og Silvía
drottning Svía stilla sér upp til myndatöku í leiðindaveðri við
Bessastaði í opinberri heimsókn sænsku konungsfjölskyldunnar.
Kóngafólkið staldraði við í nokkra daga og heimsótti meðal
annars Nesjavelli og Akureyri, en leiðindaveður einkenndi tíðar-
farið á meðan.
1. október - Forseti Alþingis móðgar þingmenn
Yfirgáfu þingsetningu í fússi
Tugur stjórnarandstöðuþingmanna, þar á meðal Össur Skarp-
héðinsson formaður Samfylkingarinnar (hér að ofan), gekk út
undir þingsetningarræðu Halldórs Blöndal, forseta Alþingis.
Halldór sagði synjunarákvæði stjórnarskrárinnar leifar þeirrar
trúar að konungurinn færi með guðsvald, en stjórnarandstöð-
unni misbauð að hann skyldi vekja upp deilur sumarsins á há-
tíðarstundu þegar hann ætti í raun að tala nafni þingheims alls.
15. september - Halldór tekur við af Davíð
sem forsætisráðherra
Ráðherrar skiptast á stólum
Líkt og kveðið var á um í ríkisstjórnarsamstarfssamningi Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks skiptust formenn flokkanna á
ráðherrastólum þegar kjörtímabilið var hálfnað. Halldór Ás-
grímsson varð forsætisráðherra eftir að hafa áður gegnt
nokkrum ráðherraembættum. Hann er aldursforseti þingsins, en
þangað var hann fyrst kjörinn árið 1974. Stjórnarandstaðan taldi
ekki von á stefnubreytingu, en sumir höfðu á orði að ankanna-
legt væri að minnsti flokkurinn samkvæmt mælingum tæki við
forystu í ríkisstjórn.
6. október - Verkalýðsbarátta á kæjanum
Forsvarsmenn sjómanna teknir höndum
Jónas Garðarsson, formaður Sjómannasambands Reykjavíkur,
veifar ljósmyndara á leið inn í lögreglubíl þegar hann var
handtekinn á bryggjunni á Akureyri ásamt fleiri forsvarsmönn-
um samtaka sjómanna. Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn á Akureyri horfir á. Forystumenn sjómanna höfðu í um
tvo sólarhringa komið í veg fyrir uppskipun úr skipinu Sólbaki,
en stofnað var sérstakt fyrirtæki um útgerð þess og gerðir sér-
samningar við áhöfnina. Í deilunni var tekist á um félagafrelsi
og lágmarkslaun samkvæmt kjarasamningum.
17. október - Aðalmeðferð í líkfundarmálinu
Framburður Jónasar sagður fráleitur
Jónas Ingi Ragnarsson, Grétar Sigurðsson og Tomas Mala-
kauskas voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir fíkni-
efnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir
illa meðferð á líki, en þeir höfðu reynt að fela lík Vaidasar
Jucevicius við netagerðarbryggjuna í Neskaupstað. Vaidas lést í
Kópavogi með fíkniefni innvortis, en þremenningarnir óku aust-
ur með líkið. Dómurinn taldi framburð Jónasar Inga, sem alfarið
neitaði sök, svo fráleitan að engu tali tæki.
18. október - Eitt mesta búfjártjón sem orðið hefur
á fjárbýli
Stórbruni í aftakaveðri
Hiti í heyi leiddi til stórbruna á bænum Knerri í Breiðuvík á Snæ-
fellsnesi í aftakaveðri eftir kvöldmat síðla í október og á sjöunda
hundrað fjár brann inni. Vindhraði fór í 60 metra á sekúndu í
hviðum og stóð slökkvistarf næturlangt við þær aðstæður, en
fjárhús, hlaða og vélageymsla með tækjum urðu eldi að bráð.
Allnokkuð var um bruna á árinu. Atvinnuhúsnæðið Votmúli
brann í septemberlok á Blönduósi, í nóvember varð Hringrásar-
bruninn í Reykjavík, piltur um tvítugt lést í bruna á Sauðárkróki
5. desember, hluti verslunar Nóatúns við Hringbraut í Reykjavík
brann einnig í desember og tveimur dögum síðar kviknaði í
Kebabhúsinu við Lækjargötu. Þá kviknaði í vélsmiðju í Garðabæ
um miðjan desembermánuð þannig að húsið varð alelda.
G
VA
PJETU
R
VILH
ELM
G
VA
VILH
ELM
G
VA
G
VA
E.Ó
L
G
VA