Fréttablaðið - 31.12.2004, Síða 38
38 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR
Fréttamyndir
ársins 2004
15. október - Sýnt á tröppunum meðan húsið var reykræst
Brunaútkall í Þjóðleikhúsið
Allt tiltækt lið slökkviliðsins var kallað út þegar tilkynnt var um eld í Þjóðleikhúsinu. Eldurinn var í potti í Þjóðleikhúskjallaranum og
litlar sem engar skemmdir urðu á húsinu. Verið var að sýna söngleikinn Edith Piaf þegar eldurinn kom upp og hélt Brynhildur Guð-
jónsdóttir leikkona sýningunni áfram á tröppum Þjóðleikhússins á meðan verið var að reykræsta húsið.
27. október - Risarækjueldi Orkuveitu Reykjavíkur
Stjórnarformaðurinn smakkar framleiðsluna
Orkuveita Reykjavíkur tilkynnti í október að tilraun með risarækju-
eldi hefði gengið vel og komið væri að því að fela öðrum rekstur-
inn. Af þessu tilefni matreiddi Úlfar Eysteinsson matreiðslumeist-
ari hluta framleiðslunnar og Alfreð Þorsteinsson stjórnarformaður
OR (hér að ofan) var meðal þeirra sem brögðuðu á henni. Hann
sagði íslensku risarækjuna mýkri og betri en útlenda.
25. október - Ríkisstjórn fundar með deiluaðilum
Fórnarlömb verkfalls krefjast úrbóta
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hlustar á grunnskólabörn sem
kröfðust úrlausnar í launadeilu sveitarfélaga og kennara þannig að
bundinn yrði endi á verkfall kennara. Að loknum fundi ríkisstjórnar
með kennurum, skólastjórum og launanefnd sveitarfélaga boðaði
ríkissáttasemjari til samningafundar í deilunni. Samningar náðust
þó ekki fyrr en 17. nóvember eftir ellefu mánaða samningaferli, sjö
vikna verkfall og lög á verkfallið 13. nóvember sem kváðu á um
gerðardóm, næðust ekki samningar fyrir miðjan desember.
9. nóvember - Átök á bensínmarkaði
Njósnað um Atlantsolíu
Ingibjörg Reynisdóttir, starfsstúlka Atlantsolíu, brosti sínu breið-
asta við stöð fyrirtækisins á Kársnesi í Kópavogi í skammdeginu,
en viðskipti þar jukust eftir að fréttist að ESSO hefði gert út af
örkinni starfsfólk til að telja viðskiptavini fyrirtækisins. Samkeppni
virðist hörð á bensínmarkaði, en Skeljungur kvartaði nýlega við
Kópavogsbæ yfir leyfi til Atlantsolíu til að reisa nýja bensínstöð.
Bensínverð sveiflaðist til á árinu en hækkandi heimsmarkaðsverð
varð til þess að olíu- og bensínverð náði methæðum.
29. október - Ráðist á íslenska friðargæsluliða
Komu sárir heim frá Kabúl
Laugardaginn 23. október varð nærvera íslenskra friðargæslu-
liða við teppaverslun í Kabúl til þess að öfgamaður lét til skarar
skríða með sjálfsmorðsárás þar sem bandarískur túlkur, 23 ára
kona og 11 ára gömul afgönsk stúlka biðu bana og þrír gæslu-
liðar særðust. Við heimkomuna viku síðar vöktu bolir gæslulið-
anna hneykslan en á þeim stóð: „Chicken Street - Shit happens
- Survivor Afghanistan.“ Friðargæsluliðarnir sögðu bolina til að
mótmæla viðhorfi yfirmanns þeirra í Kabúl.
2. nóvember - Borgarstjóri fundar með borgarfulltrúum
Öll spjót stóðu á Þórólfi
Hart var sótt að Þórólfi Árnasyni, borgarstjóra í Reykjavík, í kjölfar þess að skýrsla Samkeppnisstofn-
unar um samráð olíufélaganna kom út, en í skýrslunni voru frekari upplýsingar um aðkomu hans
að þeim málum sem starfsmaður ESSO. Níunda nóvember tilkynnti hann svo um ákvörðun sína og
borgarstjórnarflokks Reykjavíkurlistans um að hann ætlaði að láta af störfum 30. nóvember. Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi tók við starfi borgarstjóra. Þórólfur gegndi starfinu í tæp tvö ár.
22. nóvember - Hringrás brennur við Sundahöfn
Íbúar fluttir burt vegna mengunar
Um sex hundruð íbúar Kleppsvegar og nágrennis voru fluttir á brott seint um kvöld vegna stórbruna
í dekkjum og spilliefnum á athafnasvæði förgunarfyrirtækisins Hringrásar við Sundahöfn í Reykjavík.
Starfsemi lá niðri í mörgum nærliggjandi fyrirtækjum eftir brunann og þurfti matvælafyrirtæki í
grenndinni að farga framleiðslu sinni. Á fjórða hundrað manns tók þátt í samhæfðum aðgerðum
við björgunar- og slökkvistörf, en hér hafa ekki áður komið fleiri að slíkum störfum í einu.
13. desember
Minningarstund um
Ragnar Björnsson
Aðstandendur
helteknir af sorg
Ættingjar og vinir Ragnars Björns-
sonar, sem lést eftir að hafa verið
veitt höfuðhögg á sveitakránni
Ásláki í Mosfellsbæ, hittust í
Lágafellskirkju þar sem haldin var
um hann minningarstund. Hálf-
þrítugur maður sló Ragnar þar
sem hann stóð og forðaði því að
fólk gengi í glerbrot þar sem glas
hafði brotnað við útgöngudyr
staðarins.
24. nóvember
Á lokaæfingu fyrir góðgerð-
artónleika í Hallgrímskirkju
Stjarna fellur
Kristján Jóhannsson óperu-
söngvari kom fram á jólatónleik-
um í Hallgrímskirkju til styrktar
krabbameinssjúkum börnum, en
nokkurt veður var gert úr því
hvað hann fékk greitt fyrir að
koma þar fram. Kristján hafði
áður sagt að hann gæfi nánast
vinnu sína, tæki eingöngu fyrir
kostnaði. Mörgum þótti Kristján
fara offari þegar málin voru
rædd við hann í sjónvarpsþátt-
unum Íslandi í bítið og Kastljósi.
VALLI
E.Ó
L
H
AR
I
STEFÁN
STEFÁN
VILH
ELM
PJETU
R
E.
Ó
L.
ST
EF
ÁN