Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 46

Fréttablaðið - 31.12.2004, Page 46
Eins og alþjóð veit hafa mikl- ar hræringar orðið á leikmanna- hóp Chelsea á undanförnum árum og er Eiður einn af örfáum leikmönnum sem hafa staðið all- ar breytingar af sér. Nú, undir stjórn nýs þjálfara sem hefur lýst Eið sem „sérstökum“ leik- manni sínum, hefur stjarna Eiðs aldrei skinið skærar. Hann kveðst eiga Jose Mourinho mikið að þakka og man vel eftir þeirra fyrstu kynnum. „Ég talaði við hann fyrst í síma þegar ég var að fara í sumarfrí. Það samtal var mjög stutt og laggott og eiginlega bara það sem ég þurfti að heyra. Þá sagði hann mér að hann vildi pottþétt hafa mig hjá Chelsea, það kæmi ekki til greina að ég færi neitt annað og hann liti á mig sem mjög mikilvægan hlekk í liðinu. Hann sagði við mig að þarna væri ég kominn með þjálf- ara sem hefði mikla trú á mér og vænti mikils af mér. Ég þakkaði fyrir mig og svaraði í sömu mynt,“ segir Eiður, sem farið hefur mikinn í vetur og fest sig í sessi sem sóknarmaður númer eitt hjá Chelsea. Hann kveðst sáttur með eigin frammistöðu í vetur. „Ég er í fínu formi og það er greinilegt að það hefur skilað sér að þjálfarinn ber mikið traust til mín. Hann lætur mig vita að hann sé mjög ánægður með hvernig ég er að spila og hvernig ég vinn fyrir liðið. Ef ég á að vera krítískur á sjálfan mig þá ætti ég að vera búinn að skora fleiri mörk.“ Og ertu krítískur á sjálfan þig öllu jöfnu? „Já. Ef ég skora ekki, og sér- staklega ef ég skora ekki og við töpum stigum vegna þess, þá er það eitthvað sem getur eyðilagt það sem hefði getað orðið góð kvöldstund.“ Eiður lýsir Mourinho sem af- skaplega léttum og skemmtileg- um náunga og segir hann að sú ímynd sem birtist af honum, bæði í fjölmiðlum og á hliðarlín- unni í leikjum, sé ekki alltaf sú rétta. „En hann er mjög strangur og mikill sigurvegari. Hann vill alltaf fá það besta úr sínum mönnum og hann vill sjá okkur vinna hvert einasta einvígi inni á vellinum hverja einustu sek- úndu. Hann hefur náð að búa til frábæra stemningu innan liðsins og menn eru miklu samstilltari en áður,“ segir hann. Gríðarlegt skipulag Tilkoma Mourinhos í ensku knattspyrnuna í sumar vakti mikla athygli. Hann hafði gert kraftaverk með lið Porto tímabil- ið áður þar sem hann sagði sjálf- ur að lykillinn að velgengninni hefði verið agi, agi og aftur agi. Mourinho fór aldrei leynt með það hann ætlaði sér að nota sömu vinnubrögð hjá Chelsea og einn orðrómurinn í haust var að hann hefði fært hverjum og einum leikmanni skýrslu sem tilgreindi væntingar til hvers og eins - slík- ur væri metnaður Portúgalans. Eiður segir eitthvað til í þessum orðrómi þó hann vilji ekki fara út í smátriði skýrslunnar. „Við fengum mjög skýr skrif- uð fyrirmæli um það hvernig undirbúningstímabilinu yrði háttað og hinum og þessum regl- um sem okkur ber að fara eftir. Og þannig er það bara hjá Mour- inho; it’s my way or the highway. Þessar reglur eru vissulega strangar en alls ekki glórulaus- ar,“ segir Eiður en vill ekki fara mikið nánar út í hvernig málum sé háttað hjá Mourinho. Hann sé einfaldlega bundinn trúnaði um hvað fari fram innan félagsins og á æfingasvæðinu. En það er enginn skortur á sögusögnum um það sem sumir vilja bendla við „brjálæði“ Mo- urinhos í skipulagi og taktík. Ein segir frá einum aðstoðarmanna Mourinhos, Andreas Villas að nafni, sem sér um að kortleggja andstæðinga Chelsea hverju sinni. Hann síðan afhendir Mo- urinho væna skýrslu daginn fyr- ir leik þar sem líklegt byrjunar- lið andstæðinganna er tilgreint, veikleikar og styrkleikar hvers einasta leikmanns og jafnvel mögulegar innáskiptingar. Til að styðja þetta má nefna að eft- ir sigurleikinn gegn Aston Villa á annan í jólum hrósaði Mour- inho stjóra Villa, David O´Leary, fyrir að hafa gert innáskipting- ar sem hann hafi ekki séð fyrir. Aftur hikar Eiður við að svara vegna trúnaðar en hann neitar þó ekki að slíkar kortlagningar, sem segja má að jaðri við sjúk- leika, eigi sér stað. „Ég má ekki segja of mikið en það sem ég get sagt er að Mourinho er með ein- valalið aðstoðarmanna sem hver hefur sitt hlutverk. Eitt af því er að líta á andstæðingana,“ segir Eiður. Allt rannsakað Ein umdeildasta sala á leik- manni í gegnum tíðina í knatt- 46 31. desember 2004 FÖSTUDAGUR Eiður Smári Guðjohnsen, nýkjörinn íþróttamaður ársins bæði hjá samtök- um íþróttafréttamanna og hjá Fréttablaðinu og Vísi, er nú hálfnaður með sitt fimmta ár í herbúðum Chelsea. Fréttablaðið ræddi við Eið Smára um lífið hjá Chelsea, peningana í boltanum, vonir og væntingar. Er í draumaliðinu Ef ég skora ekki, og sérstaklega ef ég skora ekki og við töpum stigum vegna þess, þá er það eitthvað sem getur eyðilagt það sem hefði get- að orðið góð kvöldstund. ,, „Mourinho vill alltaf fá það besta úr sínum mönnum og hann vill sjá okkur vinna hvert einasta einvígi inni á vellinum hverja einustu sekúndu.“ Þannig er það bara hjá Mour- inho; it’s my way or the highway. Þessar reglur eru vissulega strangar en alls ekki glórulausar. ,, „Ég trúi því virkilega að ég eigi mikið inni og ef ég mætti kjósa þá myndi ég ekki vilja fara frá Chelsea fyrr en ég væri búinn að ná því besta út úr sjálfum mér.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.