Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 1
● svíagrýlan enn ekki farin til fjalla Íslenska landsliðið: ▲ SÍÐA 26 Annað tapið í röð ● ný heimildarmynd um ísland Kristín Ólafsdóttir: ▲ SÍÐA 38 Há dú jú læk Æsland? MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI FÖSTUDAGUR NÝÁRSTÓNLEIKAR Ingveldur Ýr Jónsdóttir syngur einsöng á nýárstónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Háskólabíói sem hefjast klukkan 19.30. Stjórnandi er Michael Dittrich. DAGURINN Í DAG 7. janúar 2005 – 5. tölublað – 5. árgangur JÁTAR MORÐ Hákon Eydal játar að hafa svipt Sri Rahmawati lífi þegar manndráps- ákæra á hendur honum var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Sjá síðu 2 ENN ÓGIRT OG OPIÐ Enn hefur ekki verið hægt að girða af miltisbrandssýkta svæðið á jörðinni Sjónarhóli á Vatnsleysu- strönd vegna andstöðu landeigenda. Sjá síðu 2 DÆMD FYRIR SMYGL Hollensk tveggja barna móðir var dæmd í eins árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að smygla kókaíni innvortis. Sjá síðu 8 ÓVÍST UM HAG AF SKATTAÍVILN- UNUM Stjórnvöld telja óljóst hvort skatta- ívilnanirnar gagnvart skipaflutningafyrirtækj- um skapi íslenskum farmönnum störf. Sjá síðu 10 Kvikmyndir 30 Tónlist 32 Leikhús 32 Myndlist 32 Íþróttir 26 Sjónvarp 36 Kjartan Halldórsson: ▲ Í miðju blaðsins Smá hamingja fyrir fólk ● matur ● tilboð Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 DAGAR EFTIR AF JANÚARTILBOÐI TOYOTA 25 Corolla Sedan, 1,4 l Tilboðsverð 1.709.000 kr. HAMFARIR Margir helstu þjóðar- leiðtogar heims funduðu í gær í Jakarta í Indónesíu um hvernig haga bæri neyðaraðstoð og upp- byggingu á hamfarasvæðunum. Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna, brýndi fyrir leiðtogun- um að standa við loforð sín um aðstoð. Bærist hún ekki fljótt gætu alvarlegir sjúkdómar breiðst út og enn fleiri látist til viðbótar við þá 140.000 sem þeg- ar eru taldir hafa týnt lífi. Ríflega 200 milljörðum króna hefur verið lofað til aðstoðar. Auk þess hafa lánardrottnar landanna sem verst urðu úti samþykkt að létta skuldabyrði þeirra umtals- vert. Carol Bellamy, framkvæmda- stjóri Unicef, segir í viðtali við Fréttablaðið í dag að flóðin við Indlandshaf hafi bitnað verst á börnunum á svæðinu. Í það minnsta þriðjungur látinna er börn og þau sem lifðu af eru enn í hættu. Bellamy segist aldrei hafa orð- ið vitni að þvílíkum hörmungum en hún ferðaðist í vikunni um hamfarasvæðin á Srí Lanka og Indónesíu. Sjá síður 4 og 16 VEÐRIÐ Í DAG VÍÐA EINHVER ÉLJAGANGUR SÍST ÞÓ Í BORGINNI. Ákveðinn vindur um allt land og frost 3-9 stig. Sjá síðu 4. Tuttugu og sex þjóðarleiðtogar á fundi um náttúruhamfarirnar: Milljörðum lofað og skuldabyrði létt FERSK Á FÖSTUDEGI stjörnuspá fólk tíska áramót persónuleikapróf SJÓ NV AR PS DA GS KR ÁI N 7. jan – 1 3. jan + Víkingur Heiðar Stjörnuspá ársins 2005 Dagbækur » fyrir tilviljun _x|~~ÉÇt KATLA MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR Leikkona fyrir tilviljun Katla Margrét Þorgeirsdóttir: ▲ Fylgir Fréttablaðinu í dag ● stjörnuspá 2005 ● víkingur heiðar KJARAMÁL Impregilo segir að fyrir- tækið geti ekki ábyrgst að vinnu við gerð Kárahnjúkavirkjunar ljúki á tilsettum tíma ef fyrirtækinu verð- ur neitað um að ráða vant starfsfólk sem þjálfað sé af Impregilo. Í fréttatilkynningu frá Impregilo er það gagnrýnt að fyrirtækið sé þvingað til þess að leita starfsfólks í öðrum löndum. Guðmundur Gunn- arsson, formaður Rafiðnaðarsam- bandsins, segir að þarna sé um hót- un að ræða gagnvart Íslendingum. „Þeir eru að reyna að halda mál- inu í þeim farvegi að þeir losni við að borga dagsektir ef virkjunin bregst. Þeim hefur tekist að halda málinu í þeim farvegi,“ segir Guð- mundur og telur að auglýsingar Impregilo beri þess glögglega merki að þeir séu búnir að ákveða hverja þeir ætli að ráða. Þeir reyni svo að firra sig ábyrgð og snúa henni á verkalýðshreyfinguna og Ís- lendinga því þeir fái ekki að ráða það starfsfólk sem þeir vilja; starfs- fólki sem þeir geti borgað það sem þeim sýnist. Impregilo hefur óskað eftir at- vinnuleyfi fyrir 180 Kínverja sem hafa starfað við stíflu- og jarð- gangagerð í Norður-Kína, sumir í meira en sjö ár, þar sem íslenskar aðstæður hafa reynst slæmar fyrir portúgalska leigustarfsmenn. Hjá þeim sé starfsmannaveltan yfir 70 prósent. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra segir að ekki hafi verið tekin nein ákvörðun, hvorki af né á, um að veita þessi leyfi. Það verði Vinnu- málastofnun að gera. „Ég ætla ekki að tjá mig um þá ákvörðun, hvorki núna né þegar hún verður tekin, vegna þess að þar með verð ég bú- inn að gera mig vanhæfan í því að fjalla um þá ákvörðun ef hún verður kærð til mín.“ Þorbjörn Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Samiðnar, segir að Impregilo láti portúgalska leigu- starfsmenn borga skatta til Portú- gals, sem séu lægri en hér, og hirði mismuninn. - ghs sjá síðu 6 Impregilo með hótanir gagnvart Íslendingum Impregilo segir að vinnu við stíflugerðina á Kárahnjúkum verði ekki lokið á tilsettum tíma ef fyrirtækið fær ekki að ráða Kínverjana sem það sótti um atvinnuleyfi fyrir. Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands segir þetta vera hótun. JÓLIN KVÖDD Í GRAFARVOGI Mikil stemning var á árlegri þrettándagleði Grafarvogsbúa á Gufunessvæðinu í gærkvöld. Ýmsar kynjaver- ur voru á svæðinu svo sem álfakóngur, álfadrottning, grýla og jólasveinar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Snjóflóðahætta í Bolungarvík: Íbúar enn að heiman SNJÓFLÓÐ 66 íbúar sem þurftu að yfirgefa heimili sín vegna snjó- flóðahættu í Bolungarvík fengu að snúa aftur heim til sín í gær eftir að almannavarnanefnd aflétti hættuástandi á því svæði. 26 manns bíða því enn eftir að hættuástandið gangi yfir en þang- að til búa flestir hjá annaðhvort ættingjum eða vinum, en nokkrir gista í húsnæði sem bæjarfélagið útvegar. Einar Pétursson, bæjarstjóri í Bolungarvík, segir erfitt að spá til um hvenær restin af fólkinu kemst heim til sín en veðurspá sé ágæt og á hádegi í dag mun al- mannavarnanefnd Bolungarvíkur hittast og endurmeta stöðuna. Í fyrradag fengu 46 manns að snúa heim á Ísafirði og í Hnífsdal eftir að hættuástandi var aflétt. - bs

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.