Fréttablaðið - 07.01.2005, Qupperneq 4
4 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Deilendur á Srí Lanka:
Dvínandi friðarlíkur
COLOMBO, AP Litlar líkur eru á að
friður milli stjórnvalda á Srí
Lanka og tamíl-tígranna verði til
langframa. Íbúar Srí Lanka höfðu
vonast til þess að hamfarirnar við
Indlandshaf yrðu til þess að ríkis-
stjórnin og skæruliðasamtökin
Frelsistígrar Tamíl Eelam semdu
frið sín á milli. Þeir slíðruðu
sverðin á meðan þeir aðstoðuðu
fórnarlömb flóðbylgjunnar og
tamíl-tígrar gáfu meðal annars
blóð til hjálpar þeim sem slösuð-
ust.
Deilendurnir eru nú farnir að
saka hver annan um nísku og
tamíl-tígrar segja stjórnvöld ekki
dreifa neyðaraðstoð jafnt til
þeirra sem á henni þurfa að halda.
Styr hefur staðið milli tamíl-tígra
og stjórnarinnar í rúma tvo ára-
tugi og alls hafa 65 þúsundir
manna legið í valnum, en undan-
farin þrjú ár hefur ríkt vopnahlé.
Litlar líkur eru á að vopnahléið
verði rofið en vonir almennings,
sem er orðinn langþreyttur á
átökunum, um langvarandi frið
fara minnkandi. ■
JAKARTA, AP Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, segir að þjóðir sem hafa
lofað fé til hjálpar- og uppbygg-
ingarstarfs við Indlandshaf verði
að efna loforð sitt sem fyrst.
Þjóðarleiðtogar hvaðanæva úr
heiminum hittust í Jakarta, höfuð-
borg Indónesíu, í gær og ræddu
hvaða úrræði væru best til þess
fallin að hjálpa fórnarlömbum
flóðbylgjunnar á Indlandshafi og
hvernig mætti hugsanlega koma í
veg fyrir aðrar eins hörmungar.
Um 250 milljarðar króna hafa
safnast um allan heim vegna ham-
faranna og ræddu leiðtogarnir um
skilvirkustu leiðirnar til að koma
neyðargögnum til þeirra sem
skortir mat og húsnæði. „Hamfar-
irnar voru svo miklar og gengu
svo hratt yfir að við erum enn að
reyna að átta okkur á ástandinu,“
sagði Annan.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
segir afar mikilvægt að sjá íbúum
svæðisins fyrir hreinu drykkjar-
vatni og öðrum björgum ekki
seinna en í þessari viku ef það á
að koma í veg fyrir að farsóttir
gjósi upp og verði enn fleirum að
falli. Talið er að 140 þúsund
manns hafi þegar látið lífið í
hörmungunum og talsmenn Al-
þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
telja annan eins fjölda í hættu ef
farsóttir ganga. Þeir segja að
læknar og hjúkrunarfólk hafi þeg-
ar tekist að afstýra miklum hörm-
ungum með því að halda farsótt-
um í skefjum en hættan sé hvergi
nærri liðin hjá og eftir því sem
tíminn líður aukist líkurnar á
sjúkdómum sem berast með vatni
og að malaría og beinbrunasótt
taki sig upp. Fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna segja að óþrifnaður í
flóttamannabúðum sé mikil
heilsufarsógn en talið er að þrjár
til fimm milljónir manna búi í
flóttamannabúðum.
Þá hétu fundarmenn því að
koma upp viðvörunarbúnaði fyrir
flóðbylgjur við Indlandshaf eins
og gert hefur verið á Kyrrahafi en
ekki var tekin ákvörðun um
hvernig skyldi staðið að því. ■
Landssöfnun í næstu viku
Neyðarhjálp
úr norðri
FLÓÐBYLGJAN Samstarfshópur ein-
staklinga, fyrirtækja og stofnana
undirbýr nú landssöfnun til
styrktar fórnarlömbum flóðanna í
Asíu. Söfnunin hefst á mánudag
en nær hámarki með sjónvarpsút-
sendingu laugardaginn 15. janúar.
Verndari og talsmaður söfnunar-
innar verður Vigdís Finnbogadótt-
ir, fyrrverandi forseti Íslands.
Söfnunin fer fram undir kjör-
orðunum Neyðarhjálp úr norðri.
Landsmönnum gefst kostur á að
hringja í söfnunarsíma alla næstu
viku og einnig verður safnað í
Smáralind og Kringlunni á föstu-
dag og laugardag. ■
MATARSENDING
Bandaríkjaher færir fórnarlömbum í Banda
Aceh matvæli.
Matvælaaðstoð SÞ:
Milljónir
þurfa aðstoð
RÓM, AP Matvælaaðstoð Sameinuðu
þjóðanna þarf 1,6 milljarða króna til
að brauðfæða rúmlega tvær millj-
ónir manna á hamfarasvæðunum í
Suðaustur-Asíu næsta hálfa árið.
Um 1,2 milljörðum króna yrði varið
til að kaupa 169 þúsund tonn af mat-
vælum en það kostar um 400 millj-
ónir að koma matvælaaðstoðinni til
þeirra sem á henni þurfa að halda.
Stofnunin segir að um ein millj-
ón Indónesa þurfi á matvælaaðstoð
að halda, 750 þúsund í Srí Lanka, 50
þúsund á Maldíveyjum og um 200
þúsund á öðrum svæðum. Aðstoð til
þeirra sem misstu fjölskyldu eða
heimili sín mun ganga fyrir. ■
■ FLÓÐBYLGJAN
Íslendingar í Asíu:
Allir fundnir
heilir á húfi
FLÓÐBYLGJAN Íslendingurinn sem
ekki hafði spurst til í Taílandi eft-
ir hamfarirnar er fundinn. Haft
hefur verið upp á öllum sem sakn-
að var.
Pétur Ásgeirsson, stjórnandi
neyðarvaktar utanríkisráðuneyt-
isins, segir að hvorki sé talið að
Íslendingar hafi látist né slasast
af völdum flóðbylgjunnar sem
skall á ströndum Suðaustur-Asíu.
Utanríkisráðuneytið leitaði ríf-
lega sextíu manns. Flestir fundust
strax en nokkra daga tók að hafa
uppi á fjölskyldu á Balí og sjö Ís-
lendingum í Taílandi. - gag
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
113,36 -0,07%
Bandaríkjadalur 62,87 63,17
Sterlingspund 117,66 118,24
Evra 82,84 83,30
Dönsk króna 11,13 11,20
Norsk króna 10,04 10,10
Sænsk króna 9,18 9,23
Japanskt jen 0,60 0,60
SDR 95,65 96,23
SALA
GENGI GJALDMIÐLA 06.01.2005
GENGIÐ
Bandaríkjaher gagnrýndur:
Sagður hamla
hjálparstarfi
BANDA ACEH, AP Talsmenn hjálpar-
starfs Sameinuðu þjóðanna sem
hafa yfirumsjón með hjálpar-
starfi á indónesísku eyjunni
Súmötru segja að bandaríski her-
inn á svæðinu hafi lítil samskipti
við aðrar hjálparsveitir og það
bitni á hjálparstarfinu.
Þeir segja að Bandaríkjamenn
komi ekki mikilvægum upplýs-
ingum til annarra hjálparsveita
sem eiga því erfiðara með að
koma neyðargögnum til nauð-
staddra. Talsmenn Sameinuðu
þjóðanna gagnrýna herinn meðal
annars fyrir að upplýsa ekki
hvers konar neyðargögnum þeir
hafa komið til skila og hvert. ■
Heimild: Seðlabanki Íslands
FLÓTTAMANNABÚÐIR
Fjögurra ára gömul stúlka og móðir hennar fá mat í flóttamannabúðum í Andaman í Indlandi. Talið er að þrjár til fimm milljónir manna
hafist við í flóttamannabúðum á flóðasvæðinu.
Annan brýnir þjóðir
til að efna loforðin
Þjóðarleiðtogar hvaðanæva að hittust í Jakarta í gær og ræddu hamfarirnar
við Indlandshaf. Kofi Annan brýndi fyrir mönnum að efna gefin loforð. Talið
er að 140 þúsund hafi dáið. Óttast að talan tvöfaldist ef farsóttir brjótast út.
HERMAÐUR
Flóðasvæðin skoðuð.
SENDIHERRA VIKIÐ ÚR STARFI
Janos Vandor, sendiherra Ung-
verjalands í Taílandi, hefur verið
vikið úr starfi fyrir að gera ekki
hlé á fríi sínu í Ungverjalandi
eftir að hamfarirnar dundu yfir.
Tuga ungverskra ferðamanna var
saknað fyrstu dagana. Vandor
sagðist ekki hafa getað gert hlé á
fríi sínu þar sem hann hafi verið
að undirgangast læknismeðferð.
SÁDI-ARABAR ÞREFALDA FRAM-
LAG SITT Sádi-Arabar þrefölduðu
framlag sitt til hjálparstarfs í
Asíu í landssöfnun sem ríkis-
stjórnin skipulagði í gær. Á fyrstu
þremur klukkustundunum söfnuð-
ust rúmlega 300 milljónir króna
auk þess sem margir gáfu fatnað
og teppi handa bágstöddum.
FRÁ SRÍ LANKA
Íbúar landsins eru lang-
þreyttir á átökum og vonuð-
ust til að deilendur slíðruðu
sverðin.