Fréttablaðið - 07.01.2005, Síða 10
10 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
BJÖRGUNARSTARF Í ACEH
Bandarískur hermaður heldur á ungum
dreng sem fannst heill á húfi í Aceh-heráði
á Súmötru.
Hækkun þjónustugjalda étur upp hækkun bóta almannatrygginga:
Ríkisvaldið seilist í vasa öryrkja
HEILBRIGÐISMÁL Ríkisvaldið seilist í
vasa öryrkja þegar bornar eru
saman hækkanir á lækningagjöld-
um annars vegar og bótum al-
mannatrygginga hins vegar, segir
Arnþór Helgason, framkvæmda-
stjóri Öryrkjabandalags Íslands.
„Mér virðist sem hækkun komu-
gjalda á heilsugæslustöðvar sé um
12-16%,“ sagði Arnþór. „Bætur al-
mannatrygginga hækka um 3,5%
og frítekjumarkið um 5%. það er
því augljóst að nokkuð er verið að
skerða hlut þeirra sem þurfa á
læknisaðstoð að halda. Auðvitað
munar þá lífeyrisþega, sem hafa
lítið annað en bætur almannatrygg-
inga, mest um slíkar hækkanir.
Því hefur verið haldið fram, að
þessi gjöld hafi ekki hækkað um
nokkurt skeið. En þá ber að líta á
að sátt hefur verið um að halda
þeim frekar í lágmarki og þegar á
annað borð þarf að gera verð-
breytingar er óeðlilegt að þær séu
meiri en nemur verðbólgunni
hverju sinni og hækkunum bót-
anna.“
Arnþór benti á að þegar aðrar
hækkanir í heilbrigðiskerfinu
væru skoðaðar kæmi í ljós að
gjöld fyrir ýmsar aðgerðir og
sjúkraakstur hækki mun minna.
„Það er því svo að mesti skell-
urinn af þessum hækkunum lend-
ir á lífeyrisþegum eins og jafnan
þegar hagræða þarf í heilbrigðis-
kerfinu,“ sagði Arnþór. jss
Stjórnvöld óviss um
hag af skattaívilnun
Stjórnvöld telja óljóst hvort skattaívilnanir gagnvart skipaflutninga-
fyrirtækjum skapi íslenskum farmönnum störf. Samtök atvinnulífsins
segja að án reglubreytinga leggist íslensk kaupskipaútgerð af.
FLUTNINGASKIP Stjórnvöld segja að
einhverjar vikur taki að ákveða
hvort réttlætanlegt sé að ívilna hér-
lendum skipaflutningafyrirtækjum.
Óljóst sé hvort sambærilegar regl-
ur og tíðkist í nágrannalöndunum
skapi íslenskum farmönnum störf.
Það sé í skoðun. Framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins segir ekki
undan því vikist að samræma regl-
urnar. Verði það ekki gert sé tekin
ákvörðun um að leggja íslenska
kaupskipaútgerð niður.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra segir rétt að tryggja störf
íslenskra stétta eins og kostur sé
hverju sinni: „En málið er hins veg-
ar mjög snúið og þess vegna hefur
það verið til sérstakrar skoðunar
hjá okkur. Ekki er hlaupið að því að
finna lausn sem hentar.“
Baldur Guðlaugsson, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins, segir
að þrátt fyrir sérreglur í nágranna-
löndunum um kaupskip hafi sýnt
sig að störf þarlendra sjómanna
hafi ekki verið tryggð.
„Allt snýst þetta um hvort taka
eigi upp ríkisstyrki fyrir útgerðir
sem standa vel fjárhagslega eftir
því sem best er vitað,“ segir Baldur.
„Reynslan sýnir að þrátt fyrir kaup-
skipaskrár sem settar hafa verið
upp í nágrannalöndunum hefur
hlutfall erlendra farmanna farið
vaxandi í þeim löndum af ýmsum
ástæðum.“
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, segir sigl-
ingar kaupskipa vera alþjóðlega
starfsemi: „Þegar staðan er þannig
að öll önnur lönd í okkar heimshluta
búa sínum kaupskipaútgerðum til-
tekin starfsskilyrði, þá annaðhvort
laga íslensk stjórnvöld sig að því og
búa íslenskum útgerðum sam-
keppnishæf starfskilyrði eða út-
gerðirnar verða einfaldlega að
flytja sig annað.“
Áhafnir tveggja skipa Samskipa
verða skráðar í Færeyjum í lok
mánaðarins. Forsvarsmenn Eim-
skips og Samskipa segja að séu
áhafnir einu sinni skráðar erlendis
þurfi meira en sambærilegt um-
hverfi til að þær verði færðar aftur
heim.
Spurður um hvort stjórnvöld séu
að renna út á tíma, svarar Sturla því
til að skipafélögin skrái skip alla
daga ársins. Ákvarðanir félaganna
séu ekki óbreytanlegar.
gag@frettabladid.is
Strætó bs.:
F-listi vill
engin gjöld
SAMGÖNGUR F-listinn vill að strætis-
vagnafargjöld barna, unglinga,
aldraðra og öryrkja verði felld nið-
ur. F-listinn lagði fram tillögu
þessa efnis í borgarráði í gær en
henni var vísað frá. Vísaði meiri-
hlutinn til álits stjórnar Strætó bs.
um að niðurfelling fjargjalda leiddi
ekki til aukinnar nýtingar almenn-
ingssamgangna.
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi F-listans, segir að afgreiðsla
málsins í borgarráði sé mikil von-
brigði og lýsi uppgjöf R-listans
gagnvart því mikilvæga samfélags-
og umhverfismáli sem felist í betri
nýtingu almenningssamgangna. - th
Seltjarnarnes:
Fasteigna-
skattar lækka
FASTEIGNIR Síðar í þessum mánuði
mun meirihluti sjálfstæðismanna í
bæjarstjórn Sel-
tjarnarness leggja
fram tillögu um
lækkun fasteigna-
gjalda árið 2005.
Jónmundur Guð-
marsson, bæjar-
stjóri á Seltjarnar-
nesi segir að ekki
sé búið að útfæra
tillöguna. „En mun-
urinn á fjárhagsá-
ætlun og hækkun
f a s t e i g n a m a t s
nemur um 13 prósentum. Tillagan
mun ganga út á að skila verulegum
hluta af því til baka.“ Álagning
fasteignagjalda er nú 0,36 prósent
af fasteignamati. Um áramót tók í
gildi nýtt fasteignamat frá Fast-
eignamati Ríkisins sem kveður á
um 30 prósenta hækkun sérbýlis á
Seltjarnarnesi. Að meðaltali hækk-
ar fasteignamat í sveitarfélaginu
um 20 prósent á milli ára. - ss
Járnblendifélagið:
Samningar
á bláþræði
KJARAMÁL Ekki verður af frekari
úthýsingu verkefna og starfa frá
starfsemi Íslenska járnblendi-
félagsins á næstunni.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
urðu við þeirri kröfu samninga-
nefndar starfsmanna á fundi með
ríkissáttasemjara á þriðjudag.
Þar er tekist á um kjör og eru enn
nokkur atriði sem ekki hefur
náðst samkomulag um.
Kjarafundum samninganefnda
starfsmanna og eigenda Íslenska
járnblendifélagsins hefur verið
frestað til 11. janúar. Er búist við
að semjist eða slitni upp úr við-
ræðunum þá, samkvæmt vef
Verkalýðsfélags Akraness. - gag
Loðnuveiðar:
Byrjunin
lofar góðu
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuskip hafa
verið að fá góðan afla austur af
Kolbeinsey síðustu sólarhringa.
Hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson er kominn á veiðisvæðið
og mun, ásamt loðnuskipunum,
leita loðnu
allt frá Vest-
fjörðum og
austur fyrir
land.
V i l h e l m
Þorsteinsson
EA var
fyrsta skipið
sem veiddi
loðnu á ár-
inu, sl.
mánudag, en
áhöfnin á Berki NK var fyrst til
að landa. „Börkur kom til Nes-
kaupstað með 1200 tonn af góðri
loðnu sl. miðvikudagskvöld og fór
megnið til frystingar,“ sagði Frey-
steinn Bjarnason, framkvæmda-
stjóri útgerðar SVN. -kk
Atlantsskip:
Komið við í
Kollafirði
SAMGÖNGUR Frá og með 15. þessa
mánaðar hefja Atlantsskip viku-
legar viðkomur í Kollafirði í Fær-
eyjum.
Í tilkynningu fyrirtækisins er
það sagt í takt við vöxt Evrópulínu
fyrirtækisins að fjölga viðkomu-
höfnum og auka um leið þjónustu.
„Er helst litið til tækifæra í út-
flutningi frá Íslandi til Færeyja
og frá Færeyjum til meginlands
Evrópu,“ segir þar og tekið fram
að þegar hafi tekist samningar um
slíka flutninga. Fyrirtækið verður
frá og með miðjum mánuðinum
með vikulegar viðkomur í höfnum
í Hollandi, Englandi, Danmörku
og Færeyjum. - óká
Hlíðarsmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • www.belladonna.is
Regnbogadagar
10-50%
afsláttur
Vertu þú sjálf
- vertu Bella donna
Bruninn á Sauðárkróki í byrjun desember:
Rannsókn lögreglu er enn í biðstöðu
BRUNI Rannsókn lögreglunnar á
Sauðárkróki á orsökum brunans
sem varð ungum manni að bana í
byrjun desember er í biðstöðu.
Björn Mikaelsson, yfirlögreglu-
þjónn á Sauðárkróki, segir að enn
sé beðið eftir niðurstöðum úr sýna-
töku tæknideildar lögreglunnar í
Reykjavík. Lítið sé hægt að aðhaf-
ast í málinu þar til þau gögn komi.
Lögreglan hefur þegar tekið
skýrslu af fjölda manns. Björn
segir að vel geti verið að niður-
stöður sýnatökunnar gefi til
kynna að það þurfi að taka skýrsl-
ur af einhverjum aftur. Hann seg-
ir ljóst að eldurinn hafi ekki
kviknað út frá rafmagni. Líkleg-
ast hafi hann því kviknað af
mannavöldum og því verið um
íkveikju að ræða en hvort hún
varð af gáleysi eða ekki sé ómögu-
legt að segja. Björn segir að
fyrstu rannsóknir bendi ekki til
þess að eldhvetjandi efni hafi ver-
ið þar sem eldurinn kviknaði.
Ungur maður sem slapp
ómeiddur úr brunanum fékk rétt-
arstöðu grunaðs manns skömmu
eftir að bruninn varð. ■
ARNÞÓR HELGASON
Óeðlilegt að verðbreytingar séu meiri en
verðbólgan og hækkun bóta almanna-
trygginga.
JÓNMUNDUR
GUÐMARSSON
Sjálfstæðisflokk-
urinn á Seltjarn-
arnesi vill lækka
fasteignagjöld.
LOÐNA
Vilhelm Þorsteinsson EA
landaði fyrstu
loðnuninni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
K
AG
AF
JO
R
D
U
R.
C
O
M
ELDSVOÐINN VIÐ BÁRUSTÍG
Piltur um tvítugt lést í eldsvoða á heimili sínu við Bárustíg á Sauðárkróki
þann 5. desember.
ARNARFELL SAMSKIPA VIÐ BRYGGJU
Tvö níuhundruð gáma einingaskip eiga að leysa eldri skip Samskipa af hólmi. Arnarfell er eitt þeirra sem hverfur á braut.
Íslenskar áhafnir nýju skipanna verða skráðar í Færeyjum. Með því fá Samskip tekjuskatt þeirra endurgreiddan.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI