Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 12
12 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
SYRGIR SON SINN
Makgatho Mandela sonur Nelsons
Mandela, fyrrverandi forseta
Suður - Afríku, lést í gærmorgun.
Mandela tilkynnti á blaðamannafundi
að banamein hans hefði verið alnæmi.
TOGSTREITA Tölvubréf til forstjóra
Fjarðaáls hefur farið sem eldur í
sinu um Austurland síðustu daga.
Í bréfinu, sem undirritað er af
„Íbúa Fjarðabyggðar,“ er forstjór-
anum sagt upp störfum en brott-
rekstrarsökin er ákvörðun hans
að setjast að á Egilsstöðum en
ekki í Fjarðabyggð.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri
Fjarðaáls, að vitað væri hver rit-
aði bréfið en í því er m.a. ýjað að
mengunarhættu frá væntanlegu
álveri. „Ég svaraði bréfritara með
kurteisum hætti og fullvissaði
hann um að hann þyrfti ekki að
hafa áhyggjur af mengunarhættu
þar sem Fjarðaál verður eitt allra
fullkomnasta álver í heimi hvað
varðar umhverfismál. Þetta bréf
einkennir ekki þá reynslu sem ég
hef haft af Fjarðabyggð og fólk-
inu þar. Móttökur við fyrirtækið
og mig hafa verið mjög góðar og
kraftur og jákvæðni einkennir
samfélagið,“ sagði Tómas.
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar sagði um
bréfið: „Það er lélegt að senda
svona nafnlausan tölvupóst
manna í millum og hittir að lokum
sendandann.“ kk@frettabladid.is
Kvaðir á inneignar-
nótum skapa vanda
Margvíslegar kvaðir á inneignarnótum í verslunum geta sett neytendur í vanda, segja
Neytendasamtökin. Sumir kaupmenn iðki að setja stuttan gildistíma á nóturnar og neiti
jafnvel að taka þær og gjafakort gild á útsölum.
VIÐSKIPTI Inneignarnótur í versl-
unum gilda í fjögur ár, sé ekki
annað tekið fram á þeim, að sögn
Sesselju Ásgeirsdóttur fulltrúa
hjá Neytendasamtökunum.
Nú fer sá tími í hönd, að margt
fólk skiptir eða skilar vörum í
verslunum eða er með gjafakort
upp á vasann. Útsölurnar eru
einnig að hefja göngu sína og í
þessum tilvikum öllum er mikil-
vægt að neytendur séu meðvit-
aðir um rétt sinn.
„Kaupmenn hafa sett tíma-
mörk á inneignarnótur og gjafa-
kort fólks. Dæmi eru um að gild-
istími sé aðeins tveir mánuðir,“
sagði Sesselja. „Þegar kaupand-
inn er búinn að taka við nótunni
er hann um leið búinn að sam-
þykkja þá skilmála sem á henni
eru. Kaupmenn geta ákveðið
hvernig þeir hafa nóturnar því
það eru ekki í gildi nein lög um
skilarétt. Kaupandinn á því
aldrei rétt á að skila eða skipta
vöru nema sérstaklega sé um það
samið.Þess vegna er mikilvægt
að kaupandinn kynni sér skilmála
verslunarinnar um skilarétt áður
en kaupin fara fram. Slíkur
samningur tryggir rétt kaup-
anda.“
Sesselja sagði að fólk gæti lent
í vanda ef ströng tímamörk væru
á inneignarnótum, og að á nótu
stæði að hún gilti ekki á útsölu,
því svo gæti farið að það fyndi
ekkert við sitt hæfi í viðkomandi
verslun og nótan um það bil að
renna út. Það eina sem kaupand-
inn gæti gert væri þá að reyna að
fá frestinn framlengdan.
Hún sagði það algengt að
kaupmenn settu tímamörk á inn-
eignarnótur, auk þess sem marg-
ir þeirra vildu setja ákvæði um
að þær, og jafnvel gjafakort,
giltu ekki á útsölum.
„Í þeim tilvikum minnum við
viðkomandi neytendur á að að
versla í þeim verslunum sem til-
einka sér gildandi skilareglur.
Kaupmönnum er í sjálfsvald sett
hvort þeir fara að þeim eða ekki.
Samkvæmt þessum reglum getur
fólk notað inneignarnótu hvenær
sem er og á útsölu ef nótan er
dagsett 14 dögum áður en útsala
hefst. Þetta kemur í veg fyrir að
menn skili vörunni og kaupi hana
strax aftur á lægra verði.“
Sesselja sagði, að neytendur
leituðu mjög mikið til samtak-
anna með mál varðandi inneign-
arnótur og rétt sinn á útsölum,
ekki síst eftir áramótin. Neyt-
endasamtökin hvettu neytendur
til að versla þar sem skilareglun-
um væri framfylgt. Með því móti
vissu þeir nákvæmlega hvaða
rétt þeir ættu. jss@frettabladid.is
Fljótsdalshérað:
Sex nýir
stjórnendur
SVEITARSTJÓRNARMÁL Bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs hefur ákveðið
hverjir verða ráðnir í sex ný stjórn-
unarstörf hjá sveitarfélaginu. Bæj-
arstjórn var ekki einhuga í afstöðu
sinni en meirihlutinn ákvað að
ganga til samninga við eftirtalda:
Guðlaug Sæbjörnsson, í starf fjár-
málastjóra, Helgu Guðmundsdótt-
ur, í starf fræðslufulltrúa, Karenu
Erlu Erlingsdóttur, í starf menn-
ingar- og frístundafulltrúa, Óðinn
Gunnar Óðinsson, í starf verkefnis-
og þróunarstjóra, Skarphéðinn
Smára Þórhallsson, í starf héraðs-
fulltrúa og Önnu Björk Hjaltadótt-
ur, í starf umhverfisfulltrúa. - kk
MIKIÐ TJÓN
Óboðnir gestir brutust inn í hesthús í Mos-
fellsbæ og höfðu á brott með sér mikið
magn af verðmætum reiðtygjum. Sverrir
Jóhannsson, eigandi hesthússins, varð fyrir
tilfinnanlegu tjóni.
Innbrot í hesthús:
Milljóna
króna tjón
LÖGREGLUMÁL Ekkert hefur enn
spurst til mikils magns af reið-
tygjum sem stolið var úr hesthúsi
í Reykjahlíð í Mosfellsbæ
skömmu fyrir áramót. Að auki var
stolið talsverðu af tækjabúnaði
sem notuð eru til umhirðu hrossa,
svo sem járningaráhöldum og
tannröspum.
Reiðtygin, og annað það sem
stolið var, eru sögð vel á aðra
milljón króna virði.
Eigandi hesthússins, Sverrir
Jóhannsson, sagði að sparkað
hafði verið upp hurð til að komast
inn í húsið. Hann sagði að um til-
finnanlegt tjón væri að ræða og
hefur heitið þeim verðlaunum
sem getur gefið einhverjar vís-
bendingar um hvað varð af reið-
tygjunum. Sverrir beinir því til
fólks að vera á verði sé verið að
bjóða því mikið magn af notuðum
reiðtygjum til sölu. - jss
! "#
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ ÚTSÖLUR
Neytendasamtökin brýna fyrir fólki að vera meðvitað um rétt sinn til notkunar á gjafakort-
um og inneignarnótum, sem margir hyggjast ráðstafa eftir jólin, ef til vill á útsölum sem
nú eru að fara í fullan gang.
TÓMAS MÁR SIGURÐSSON
Forstjóri Fjarðaráls fékk nafnlaust bréf
í tölvupósti þar sem honum er sagt
upp upp störfum.
Vaxandi hrepparígur vegna álversframkvæmda á Austurlandi:
Álforstjóri fær það óþvegið