Fréttablaðið - 07.01.2005, Síða 32
Marinó Guðmundsson rekstrar-
hagfræðingur hefur verið ráð-
inn forstjóri 66˚Norður - Sjó-
klæðagerðarinnar hf. Marinó
var framkvæmdastjóri fjár-
málasviðs Norðurljósa og að-
stoðarútvarpsstjóri Íslenska út-
varpsfélagsins. Hann tekur við
af Þórarni Elmari Jensen, sem
hefur verið forstjóri og aðaleig-
andi frá því árið 1966. Elmar
lætur nú af störfum þegar Sig-
urjón Sighvatsson eignast ráð-
andi hlut í fyrirtækinu. Marinó
hefur víðtæka reynslu úr við-
skiptalífinu, hér heima og er-
lendis. Hann var viðskiptafræð-
ingur hjá Coopers og Lybrant
og var fjármálastjóri aug-
lýsingastofunnar „Gott fólk“.
Marinó starfaði erlendis um
fimm ára skeið og gegndi sér-
fræðingsstöðu hjá Fortisbank í
London. Sigurjón Sighvatsson,
hinn nýi aðaleigandi 66˚Norður,
og Marinó störfuðu saman
þegar Sigurjón var einn af eig-
endum og stjórnarmaður í
Norðurljósum.
Marinó er 38 ára gamall,
kvæntur Guðrúnu Steindórs-
dóttur viðskiptafræðingi. Þau
eiga þrjú börn. ■
24 7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN GERALD DURRELL
(1925-1995) fæddist þennan dag.
Nýr forstjóri 66˚Norður
TÍMAMÓT: 66˚NORÐUR SKIPTIR UM AÐALEIGENDUR
„Margir halda að náttúruvernd felist í því að
vernda skrítin dýr – þeir átta sig ekki á því
að náttúruvernd er stríð til að koma í veg fyrir
tortímingu mannkynsins.“
- Það sem gerir Gerald Durrell ódauðlegan er kímnigáfan.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Friðrik Baldvin Jónsson,, Hraunkoti í
Lóni, lést föstudaginn 31. desember.
Guðmundur Magnús Jónsson, Garða-
braut 6, Akranesi, lést sunnudaginn 2.
janúar.
Paul Erik Símonarson,, Grýtu, Eyjafjarð-
arsveit, lést þriðjudaginn 4. janúar.
Maríus Sigurjónsson,, Háteig 2B, Kefla-
vík, lést þriðjudaginn 4. janúar.
Guðrún Jakobsdóttir, frá Grund í Svína-
dal, lést miðvikudaginn 5. janúar.
JARÐARFARIR
13.00 Þórður Elíasson frá Saurbæ, fyrrv.
leigubílstjóri, Hraunbæ 103, verð-
ur jarðsunginn frá Árbæjarkirkju.
13.00 Davíð Kr. Jensson bygginga-
meistari, Langagerði 60, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju.
13.00 Páll Lúðvíksson verkfræðingur,
Álfheimum 25, verður jarðsung-
inn frá Langholtskirkju.
13.00 Ólafur Stefánsson, Engihjalla 1,
Kópavogi, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni
15.00 Margrét Hjálmarsdóttir verður
jarðsungin frá Landakotskirkju.
15.00 Lilja Magnúsdóttir, Staðarbakka
30, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni.
MARINÓ GUÐMUNDSSON Marinó tekur við starfi forstjóra 66° Norður - Sjóklæðagerðarinnar hf. af Þórarni Elmari Jensen, sem hefur
verið forstjóri og aðaleigandi fyrirtækisins frá 1966.
Þennan dag 1714 fékk breskur
verkfræðingur einkaleyfi á ritvél.
Ekki er vitað til þess að þessi
hugmynd hafi orðið að veru-
leika, líkur benda til þess að Mill
hafi aldrei smíðað ritvélina,
einkaleyfið varð aldrei nema
hugarsmíð. Liðið var langt fram
á 19. öld þegar nothæfar ritvélar
urðu til. Margir hafa verið taldir
frumkvöðlar í þessari grein vél-
fræðinnar en Skandinavar halda
gjarnan fram danska prestinum
Malling Hansen sem fann upp
skrifkúluna um 1870. Sagt er að
heimspekingurinn Nietzsche
hafi eignast eina slíka og bölvað
henni mikið. Undir lok 19. aldar
kom fram sú tegund ritvéla sem
algengust var allt til loka ritvéla-
aldar, þar sem blaðið hringaðist
um sívalan vals og hnappaborð-
ið byrjaði á QWERTY, rétt eins
og það gerir enn á hnappaborð-
um tölvanna. Meira að segja
forveri kúluritvélanna, Hamm-
ond ritvélin, kom fram fyrir lok
19. aldar og eignaðist sterkan
hóp áhangenda. Þó var tuttug-
asta öldin blómaskeið ritvélar-
innar. Segja má að því blóma-
skeiði sé enn ekki lokið. Hjá
mörgum er tölvan eiginlega
ekkert annað en fjölhæf raf-
magnsritvél með ljósi og inn-
byggðum leiðréttingarborða.
7. JANÚAR 1714 var skráð fyrsta
einkaleyfið á ritvél. Hér sést ein af
ritvélum nítjándu aldar
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1533 Frakkar ná Calais á sitt
vald, seinustu bækistöð
Englendinga á meginland-
inu.
1730 Árni Magnússon prófessor
deyr í Kaupmannahöfn.
1785 Blanchard og Jeffries fara í
loftbelg yfir Ermarsund,
fyrstir manna.
1942 María Markan syngur hlut-
verk greifafrúarinnar í
„Brúðkaupi Figarós“ í
Metropolitan-óperunni í
New York.
1944 Helgi Hjörvar hefur lestur-
inn á „Bör Börsson“ í út-
varpinu.
1953 Truman forseti segir frá
nýju vopni: Vetnissprengj-
unni.
1989 Hirohito Japanskeisari deyr
og Akihito tekur við.
1999 Réttarhöld hefjast yfir Clint-
on forseta.
Fyrsta ritvélin
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, s: 587 1960, www.mosaik.is
MOSAIK
af legsteinum
gegn staðgreiðslu
í janúar og febrúar
Sendum myndalista
15% afsláttur
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
tengdadóttir, systir og amma,
Ragnhildur Guðjónsdóttir
Skipastíg 11, Grindavík,
sem andaðist á heimili sínu laugardaginn 1. janúar síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 8. janúar
kl. 14.00.
Sævar Þórarinsson
Gunnlaugur Sævarsson, Auður Arna Guðfinnsdóttir, Albert Sævarsson,
Eydna Fossadal, Steinþóra Sævarsdóttir, Árni Þór Sævarsson, Þórarinn
Ólafsson, Guðveig S. Sigurðardóttir, Málfríður Guðjónsdóttir, Vilborg
Guðjónsdóttir og barnabörn.
Eiríkur Einarsson
bóndi, Hallskoti, Fljótshlíð,
Elskulegur eiginmaður minn,
andaðist á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi Hringbraut mánu-
daginn
3. janúar síðastliðinn.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna,
Stefanía Guðmundsdóttir.
LOKAÐ
Skrifstofur okkar verða lokaðar frá kl. 14.00 í dag,
föstudaginn 7. janúar, vegna útfarar Hafsteins Einarssonar.
Ásgeir Einarsson ehf.
Garðabæ.
Skrefi nær
Stefán Kristjánsson úr Tafl-
félaginu Helli tryggði sér sinn
fyrsta áfanga að stórmeist-
aratitli þegar hann gerði jafn-
tefli við ísraelska stórmeistar-
ann Victor Mikhalevski í loka-
umferð alþjóðlegs móts í
Drammen í Noregi gær. Þetta er
fyrsti stórmeistaraáfangi sem
Íslendingur tryggir sér síðan
Þröstur Þórhallsson varð stór-
meistari árið 1995.
Íslenskir stórmeistarar eru
alls tíu talsins og þar af eru
fjórir þeirra atvinnumenn, sem
þýðir að þeir eru á sambærileg-
um launum frá ríkinu og fram-
haldsskólakennarar. Íslensku at-
vinnumennirnir eru Hannes
Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafs-
son, Helgi Áss Grétarsson og
Þröstur Þórhallsson. - bs
AFMÆLI
Einar Tjörvi Elíasson, fyrrv. yfirverkfræð-
ingur í Kröflu, er 75 ára í dag.
Óðinn Geirsson prentari er 62 ára.
Trausti Valsson, arki-
tekt og skipulagsfræð-
ingur, er 59 ára.
Daniel Teague skjalaþýðandi er 58 ára í
dag.
Anna Mjöll Ólafsdóttir söngkona er 35
ára.
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, ungkrati
og kaupmaður, er 28 ára.
Svava Þ. Johansen
kaupmaður er 41 árs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R