Fréttablaðið - 07.01.2005, Blaðsíða 39
FÖSTUDAGUR 7. janúar 2005 30
Alfie
Rottentomatoes.com 48% = Rotin
Imdb.com 6.0/10
Metacritic.com 49/100
Entertainment Weekly B-
Taxi
Rottentomatoes.com 9% = Rotin
Imdb.com 3,8/10
Metacritic.com 27/100
Entertainment Weekly D
Old Boy
Rottentomatoes.com 64% = Fersk
Imdb.com 8,6/10
FRUMSÝNDAR UM HELGINA
(DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM)
The Incredibles
„Tölvunördarnir hjá Pixar toppa sig með frábærri
teiknimynd sem býður upp á allt sem þarf að
prýða góða bíómynd. Hraði, spenna, létt grín,
skemmtilegar persónur og glæsilegt útlit gera The
Incredibles að einni allra bestu mynd síðasta árs.“
ÞÞ
Ocean’s Twelve
„Ocean’s Twelve gerir meira út á grín en spennu
og léttir og góðir sprettir halda manni ágætlega við
efnið á milli þess sem maður getur dáðst að Róm.
Það leynir sér líka ekki að leikararnir hafa skemmt
sér konunglega við gerð myndarinnar og galsinn
er smitandi þannig að ránin verða aukaatriði.
Áherslan er á persónurnar og létt flipp sem er gott
mál.“
ÞÞ
Í takt við tímann
„Með allt á hreinu stendur enn ómenguð af Í takt
við tímann sem ætti í flestum tilfellum að laða
fram nógu mörg bros til að fólk fyrirgefi Stuð-
mönnum uppátækið.“
ÞÞ
Íslenska sveitin
„Íslenska sveitin er á köflum mjög smart, skemmti-
lega tekin en er fyrst og fremst skemmtileg heim-
sókn til Íslendinga í byssuleik og þeir eru vitaskuld
mátulega sveitalubbalegir eins og við er að búast.“
ÞÞ
The Polar Express
„Sagan sem hér er sögð er einföld og sígild og
það má segja að hér sé boðið upp á tæknivætt til-
brigði við gamalt stef þar sem rauði þráður mynd-
arinnar er mikilvægi þess að finna hinn sanna
anda jólanna innra með sér og skynja friðinn og
gleðina sem fylgir hátíðinni.“
ÞÞ
Open Water
„Myndin er alls ekki gallalaus en eftir stendur samt
frumleg saga sem á köflum er bæði hrikalega
spennandi og skelfilega átakanleg.“
EÁ
Bad Santa
„Sérstaklega skemmtileg og hressandi svört
kómedía fyrir þá sem hafa vott af gálgahúmor.
Billy Bob Thornton fer á kostum sem drykkfelldur
jólasveinn, svarti dvergurinn Tony Cox sýnir stórleik
sem jólaálfur og Lauren Graham leikur vergjarna
gyðingastelpu með blæti fyrir jólasveinum. Hittir
beint í mark.“
EÁ
Bridget Jones: The Edge of
Reason
„Framhaldið er heldur þunnt enda reynt að byggja
á sama söguþræði og í síðustu mynd með smá
ferðalagi til annarra landa. Leikararnir standa þó
fyrir sínu og sumir brandarar virka ágætlega – þótt
margir þeirra hafi verið fyrirséðir hálfa myndina.“
KH
[ SMS ]
UM MYNDIRNAR Í BÍÓ
Sendu SMS skeytið JA TBF á
númerið 1900 og þú gætir unnið.
SMS LEIKU R
Vinningar eru miðar á myndina TAXI, DVD myndir og margt fleira.
Bíómiði á 99 kr?
9. HVER VINNUR! Í B
ÍÓ
6
.J
AN
.
Vinningar verða afhendir hjá Office 1, Skeifunni. Reykjavík.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Rómantíska gamanmyndin Alfie
verður frumsýnd í kvikmynda-
húsum hérlendis í dag. Alfie er
endurgerð samnefndrar breskrar
myndar frá árinu 1966 með
Michael Caine í aðalhlutverki.
Í þetta skiptið er það enginn
annar en hjartaknúsarinn Jude
Law sem fer með aðalhlutverkið.
Hann var nýverið kjörinn kyn-
þokkafyllsti maður ársins af tíma-
ritinu People og mætti því ætla að
hann væri kjörinn í hlutverki
kvennabósans Alfie.
Myndin gerist í New York og
fjallar um bílstjórann Alfie sem
talar við myndavélina á sama
tíma og hann dregur konur borg-
arinnar á tálar. Hann þarf loks að
endurskoða líf sitt þegar hann
neyðist til að takast á við glund-
roðann sem hann hefur skapað
með kvennafari sínu.
Þær Marisa Tomei og Susan
Sarandon fara með hlutverk
kvenna sem Alfie táldregur í
myndinni en einnig kemur þar við
sögu leikkonan Sienna Miller,
unnusta Law. Kynntust þau
einmitt við tökur á myndinni og
hafa nú trúlofað sig. Leikstjóri Al-
fie er Charles Shyer, sem áður
hefur m.a. leikstýrt Baby Boom
og Father of the Bride 2. ■
Jimmy Fallon úr Saturday
Night Live-þáttunum fer með
sitt fyrsta aðalhlutverk í
Hollywood-mynd í Taxi sem
verður frumsýnd í dag.
Taxi, sem er byggð á
franskri samnefndri mynd eftir
handriti Luc Besson, fjallar um
klaufskan lögreglumann í New
York (Fallon) sem setur flest
sem hann kemur nálægt á
annan endann. Hann sest í
leigubíl hjá hinum hraðskreiða
bílstjóra Belle (Queen Latifah)
eftir að hann fréttir af
bankaráni í grenndinni og
framhaldið verður heldur betur
æsilegt. Brasilíska fyrirsætan
Gisele Bundchen fer með hlut-
verk eins bankaræningjans og
er þetta frumraun hennar á
hvíta tjaldinu.
Leikstjóri Taxi er Tim Story
sem áður leikstýrði Barber-
shop. ■
LAW ER ALFIE Jude Law í hlutverki sínu í
Alfie.
Kvennabósinn Alfie
TAXI Jimmy Fallon og Queen Latifah í
hlutverkum sínum í Taxi.
Klaufsk lögga í leigubíl