Fréttablaðið - 07.01.2005, Page 40
7. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
Hátíðartónleikum Rótarý í
Salnum í kvöld klukkan 20.00 í
tilefni af hundrað ára afmæli
Rótarýhreyfingarinnar á þessu
starfsári. Jónas Ingimundarson
verður þar í stóru hlutverki ásamt
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og
Skólakór Kársness undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur...
Sýningunni Ný íslensk mynd-
list; um veruleikann, manninn og
ímyndina sem lýkur sunnudaginn
16. janúar í Listasafni Íslands...
menning@frettabladid.is
Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir Híbýli vindanna,
leikgerð að sögu Böðvars
Guðmundssonar, í kvöld.
Híbýli vindanna, eftir vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar,
verður frumsýnt í Borgarleikhús-
inu í kvöld klukkan 20.00. Leik-
gerðin er eftir Bjarna Jónsson í
samvinnu við Þórhildi Þorleifs-
dóttur leikstjóra, Vytautas Nar-
butas höfund leikmyndar og leik-
hópinn.
Í Híbýlum vindanna segir frá
Ólafi Jenssyni fíólín og ættmenn-
um hans en um leið er verkið saga
lífsbaráttu Íslendinga austan hafs
og vestan á ofanverðri nítjándu
öld og í upphafi þeirrar tuttug-
ustu. Híbýli vindanna er leikrit
um drauma, brostnar vonir og
söknuð, en fjallar síðast en ekki
síst um þrautseigju og fórnir
fólks í leit að nýjum samastað í til-
verunni. Seinni bók Böðvars um
vesturfarana, Lífsins tré, hlaut Ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
1996.
„Í rauninni erum við, enn sem
komið er, bara með fyrri bókina,
Híbýli vindanna,“ segir höfundur
leikgerðarinnar, Bjarni Jónsson.
„Þeirri sögu er í sjálfu sér fylgt
nokkuð nákvæmlega. Við getum
ekki tekið allt, en við fylgjum
Ólafi fíólín frá því að hann er ung-
ur maður að reyna að komast af á
Íslandi, þar til hann tekur sig upp
og fer til Vesturheims og kemur
sér fyrir þar – en það komast auð-
vitað ekki allir karakterarnir með
í pakkann.
Við leggjum áherslu á að sýna
fólk sem býr við ómögulegar að-
stæður hér heima á Íslandi. Það
er, að mörgu leyti, dæmt sem
auðnuleysingjar og er á hreppn-
um – en vex síðan og nær að
blómstra þegar það flytur í annað
umhverfi þar sem það fær tæki-
færi og aukinn kraft til þess að
hrinda sínum hugmyndum í fram-
kvæmd. Svo er þetta líka saga um
fólk sem hreinlega leggur allt í
sölurnar til þess að koma upp
annarri kynslóð. Þetta er ekki síð-
ur saga af börnum og hvað fólk
leggur á sig til þess að halda sam-
an fjjölskyldunni. Það má segja að
þetta sé megináherslan fyrir utan
fjölskyldusögu Ólafs.“
Bjarni segist auðvitað draga
fram hversu niðurnjörvaðir allir
hlutir hafi verið hér í bændasam-
félaginu á nítjándu öld. „Það var
allt reynt til að hamla gegn þeirri
þróun sem Íslendingar gengu í
gegnum í upphafi tuttugustu ald-
arinnar. En þetta fólk sem fer
burtu frá Íslandi eftir harðinda-
vetur og hefur hvorki í sig né á,
kemur í ónumið land. Það var biðl-
að til fólks að koma til Vestur-
heims, því var hreinlega gefið
land. Það var ýmislegt gert til
þess að freista fólksins og þeir
sem fóru vestur héðan voru mikið
fjölskyldufólk – sem er ólíkt
þorra annarra þjóða. Íslending-
arnir voru að stórum hluta til fjöl-
skyldufólk og sáu þarna tækifæri
til þess að byrja upp á nýtt.“
Bjarni segir sögu þessa fólks
eiga mikið erindi við okkur í dag.
„Það er enn þá fólk að taka sig
upp, yfirgefa ættlandið til þess að
öðlast möguleika á betra lífi ann-
ars staðar og við Íslendingar eig-
um að taka við slíku fólki. Við
erum kannski komin í þá stöðu
sem Bandaríkin og Kanada voru í.
Þetta hefur snúist við og þessi
sýning er kannski áminning um
að þjóðflutningar eru sífellt að
eiga sér stað.“
Í sýningu Borgarleikhússins
fara þau Björn Ingi Hilmarsson
og Katla Margrét Þorgeirsdóttir
með hlutverk Ólafs Jenssonar
fíólin og Sæunnar, fyrri konu
hans. Í öðrum hlutverkum eru
Bergur Þór Ingólfsson, Birna
Hafstein, Guðmundur Ólafsson,
Gunnar Hansson, Halldór Gylfa-
son, Halldóra Geirharðsdóttir,
Hanna María Karlsdóttir, Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Pétur
Einarsson, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Sveinn Geirsson og Theo-
dór Júlíusson. Auk þeirra taka sex
börn og fjórir leikarar frá stúd-
entaleikhúsinu þátt í sýningunni.
Gervi eru í höndum Guðrúnar
Þorvarðardóttur. Höfundur tón-
listar er Pétur Grétarsson. Lárus
Björnsson lýsir. Höfundur bún-
inga er Filippía I. Elísdóttir. Höf-
undur leikmyndar er Vytautas
Narbutas. Leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir. ■
KRINGLUKRÁIN UM HELGINA
• Fjölbreyttur sérréttamatseðill
öll kvöld vikunnar
• Tilboðsmatseðill
fyrir Leikhúsgesti
• Hópamatseðill
• Sérsalur fyrir hópa
Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is
Unglingahljómsveitin
POPS
alla helgina
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudaga
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Börn 12 ára og yngri fá frítt
í Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI -
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
STÓRA SVIÐ
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar á vesturfara-
sögu Böðvars Guðmundssonar
Frumsýning í kvöld 7/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 8/1 kl 20 - gul kort - UPPSELT
Su 9/1 kl 20 - aukasýning - UPPSELT
Lau 15/1 kl 20 - rauð kort - UPPSELT
Su 16/1 kl 20 - græn kort
Fö 21/1 kl 20 - blá kort
Lau 22/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 29/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
Lau 5/2 kl. 20, Sun 6/2 kl 20
Fö 11/2 kl 20, Lau 12/2 kl 20
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Fö 14/1 kl 20, Su 23/1 kl 20
LÍNA LANGSOKKUR
e. Astrid Lindgren
Su 9/1 kl 14, Su 16/1 kl 14, Su 23/1 kl 14
Su 30/1 kl 14
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
Fjölskyldusýning
THE MATCH, ÆFING Í PARADÍS, BOLTI
Lau, 15/1 kl 14, Lau 22/1 kl 14
kNÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ
BELGÍSKA KONGÓ
e. Braga Ólafsson
Gríman fyrir besta leik í aðalhlutverki
Í kvöld kl 20
Fö 14/1 kl 20
Su 16/1 kl 20
AUSA eftir Lee Hall og
STÓLARNIR eftir Ionesco
Í samstarfi við LA
Lau 8/1 kl 20, Su 9/1 kl 20, Fi 13/1 kl 20,
Lau 15/1 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Fö 14/1 kl 20
Fi 20/1 kl 20
SAUMASTOFAN 30 ÁRUM SÍÐAR
eftir Agnar Jón Egilsson
Í samstarfi við TÓBÍAS
Frumsýning Su 16/1 kl 20 - UPPSELT
Lau 22/1 kl 20, Fi 27/1 kl 20, Su 30/1 kl 20
Tosca
eftir Puccini Frumsýning 11. febrúar
Frumsýning fös. 11. feb. kl. 20.00 - UPPSELT - 2 sýning. sun. 13. feb. kl. 19.00
3. sýning fös. 18. feb. kl. 20.00 - 4. sýning sun. 20. feb. kl. 19.00 - FÁAR SÝNINGAR
www.opera.is midasala@opera.is Sími miðasölu: 511 4200
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Miðasala á Netinu: www.opera.is
Styrktarsjóður Halldórs Hansen verður
formlega stofnaður í dag klukkan 16.00 í
Salnum, Kópavogi og verður boðið til há-
tíðarsamkomu af því tilefni. Bergþór Páls-
son söngvari mun minnast Halldórs og
starfa hans í þágu tónlistar, tilkynnt verður
um verðlaunahafa sjóðsins á árinu 2004
og koma þeir fram á samkomunni. Einnig
verður tilkynnt um afhendingu fyrsta fram-
lags sjóðsins til uppbyggingar tónlistar-
bókasafns LHÍ.
Halldór Hansen barnalæknir ánafnaði
Listaháskóla Íslands veglegt tónlistarsafn
sitt fyrir þremur árum, auk þess sem hann
arfleiddi skólann að
öllum eigum sínum
með þeim formerkjum
að þeim yrði ráðstafað
í sérstakan styrktarsjóð
í hans nafni.
Meginmarkmið sjóðs-
ins er að styrkja upp-
byggingu og styðja við
tónlistarsafn Listahá-
skóla Íslands. Auk þess veitir sjóðurinn ár-
lega tónlistarnemum sem náð hafa fram-
úrskarandi árangri að mati sjóðstjórnar
styrki til frekara náms.
Stofnun styrktarsjóðs
Margþætt saga um lífsvilja
BJÖRN INGI HILMARSSON OG KATLA MARGRÉT ÞORGEIRSDÓTTIR Í hlutverkum Ólafs Jenssonar fíólin og Sæunnar, fyrri konu hans.