Fréttablaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 20
REYKJAVÍKURVEGI 66 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 565 4100
ÚTSALA
10%-50%
AFSLÁTTUR
Opið til 16 í dag
Öryggis-
hurðir
B Í L S K Ú R S
OG IÐNAÐAR H U RÐ I R
Smíðað
eftir máli
Hurðir til
á lager
Eldvarnar-
hurðir
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
Fjörukráin er löngu orðin að
kennileiti Hafnarfjarðar og
hefur að auki mikla sögu.
Í húsinu eru reknir tveir veitinga-
staðir, Fjörugarðurinn þar sem
hinar frægu víkingaveislur eru
haldnar og svo Fjaran sem er ró-
legur og hefðbundnari veitinga-
staður. Álman sem hýsir Fjöruna
var byggð árið 1841 og er því næs-
telsta húsið í Hafnarfirði. Húsið
var gert upp og hafinn þar veit-
ingarekstur árið 1984. Árið 1990
tók Jóhannes Viðar Bjarnason við
rekstrinum og hóf strax þema-
tengda veitingastarfsemi í hús-
inu. Árið 1991 var aukið við húsið
með því að bæta þar við tjöldum
og Fjörugarðurinn, víkingaveit-
ingastaður, leit dagsins ljós.
Vegna velgengni hans var ráðist í
að byggja hús og voru það Haukur
Halldórsson myndlistarmaður og
Sigurður Þorvarðarson arkitekt
sem teiknuðu húsið.
Húsið var byggt í áföngum og
mikið lagt í glæsilegan frágang og
útskurð sem var í fimum höndum
þeirra Erlends Magnússonar og
Smára Eggertssonar. Útlitið á
Fjörugarðinum er byggt á norskri
stafkirkju. Húsið er á tveimur
hæðum og að innan eins og lang-
hús frá víkingatímanum, skreytt
munum og myndum eftir íslenska
og erlenda handverksmenn.
Fjörugarðurinn er um 900 fer-
metrar og þar geta snætt allt að
320 matargestir. Á efri hæðinni er
að finna hof helgað Freyju, þar
sem eru ýmis listaverk í myndum
og útskurði. Í tengslum við Fjöru-
krána hefur verið byggt 29 her-
bergja hótel í sama stíl svo nú
blasir heilt víkingaþorp við veg-
farendum um Strandgötu.
[ ]SnjóskóflaSkófla úr plasti getur auðveldlega brotnað undan þungum snjó, því er betra að velja skóflu sem er úrsterkara efni með skafti úr tré eða málmi. Veldu eins stóra skóflu og þú telur þig ráða við fulla af snjóog gakktu úr skugga um að auðvelt sé að hella úr henni snjónum. Snjómokstur er erfitt verk og þvímikilvægt að skóflan henti þér vel til að koma í veg fyrir eymsli.
Margir verða hissa að sjá norska stafkirkju í miðjum Hafnarfirði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Stafkirkjan við Strandgötu
FRÁ VINSTRI: Tólfhundruð lítra fiskabúr nær yfir sextán metra útskorinn bar. Í fuglabjarginu eiga allir íslenskir sjófuglar sér full-
trúa. Nánast hver þumlungur Fjörukráarinnar er skreyttur og útskorinn.
Í hofinu getur á að líta þessar styttur af
þeim systkinum Freyju og Frey og
Þrymskviðu í myndum eftir Hauk Hall-
dórsson.